Tíminn - 23.12.1944, Síða 35
T í M I N N
35
U. Y. Hammershaimb
Framh.. a/ bls. 33.
sem honum var veitt nýtt brauð. En því
íór alls fjarri, að hann settiáfc í helgan
stein eftir að til Danmerkur kom. Hann
hélt þvert á móti starfi sínu áfram af
kappi og forsjá. Það var einmitt á þessum
árum, er hann gaf út „Sýnishorn færeyskra
bókmennta,“ sem fyrr er á minnzt. Þetta rit
hans hefir haft geysimikla þýðingu, þar
eð það hefir valdið því, að fjölmargir menn,
meðal annars erlendir fræðimenn, hafa
komizt í kynni við færeyskt mál og fær-
eyska menningu. Hér skal tekinn upp ör-
stuttur kafli úr formála hans að bók þess-
ari: „Allt frá barnæsku hefi ég verið hald-,
inn þeirri þrá, að verja fyrnsku og bjarga
frá glötun þeim minjum fornaldar og for-
tíðar, sem í máli, þjóðkvæðum og sögnum
lifá enn á þjóðarvör.um í Færeyjum, svo
og að kynna þær sem flestum, og mér til
mikillar ánægju hefi ég notið góðvilja og
margvíslegrar fyrirgreiðslu í því starfi
mínu.“
Það gladdi Hammershaimb mjög, þegar
stjórn „Sjóðsins til útgáfu fornra norrænna
bókmennta" fór þess á leit við hann, að
hann annaðist útgáfu á sýaisbók færeyskra
bókmennta og stjórn Karlbergssjóðsins
bauðst til þess að kosta útgáfu ritsins. Hann
er þess fullviss, að „Sýnisbók færeyskra
bókmennta“ sé mesta afrek sitt. Hann er
glaður og þakklátur, og formáli ritsins
verður eins konar lofsöngur, þakkaróður
fyrir að honum skuli hafa auðnazt að ná
þessu hinu þráða marki. Hann nafngreinir
ýmsa góða Dani, sem hafa stutt hann með
ráðum og dáð, en landi hans, Jakob
Jakobsen hafði þó aðstoðað hann mest
og bezt allra manna við útgáfu rits þessa.
Eftir að Hammershaimb hafði rætt um
það, hversu mjög hann hefði verið önnum
kafinn að rækja skyldustörf sín sem pró-
fastur, kemst hann þannig að orði: „Ég hefi
þó notið góðra aðstoðarmanna. Fyrstan
þeirra vil ég nefna Færeyinginn stud. mag.
Jakob Jakobsen, sem eigi aðeins hefir að-
stoðað mig við afritun og prófarkalestur,
helflur og átt mikinn þátt í ritinu með
því að annast hljóðritunina og hljóðrit-
unardæmin, svo og samningu orðasafns-
ins.“
Á öðrum stað kemst hann að orði á þessa
lund: „Ég get þó ekki neitað því, að ég
hafði áhyggjur af því, að mér myndi~ekki
reynast auðið að efna fyrirheit það, sem
felst í naf /.i ritsins. Gróöurinn á Færeyjum
er fáskrúðugur, og sömu sögu er að segja
af vangi bókmenntanna eins og við er að
búast, þegar að því er gætt, að hér er um
að ræða bókmenntir alþýðufólks á fjar’æg-
um eyjum úti í hafsauga, sem hefir lítt
af fornaldarbókmenntum að segja en hefir
í kirkjum sínum og skólum vanizt máli,
sem er mjög ólíkt því máli, sem það mælir
á dag hvern og verður að una því, að em-
bætfrismenn þess séu danskir, en það veröur
að sjálfsögðu til margvislegr-a óþæginda,
þar eð þegnarnir mæla á öðru máli en
yfirböðarar þeirra.“
„Þjóðfélagsmyndir“ þær, er Hammers-
-haimb ritaði í „Sýnisbók færeyskra bók-
mennta“ eru kunnar um gervallar Færeyj-
ar> og þær sanna betur en flest annaö
hæfni hans til þess að lifa sig inn í líf
fóiksins, — til þess að skynja hjartaslög
Færeyingsins, hvort heldur var á hátíðis-
stund eða í hversdágsraun. Hann lifði með
þjóð sinni í gleði hennar og sorgum.
Hið síðasta, sem hann lét frá sér fara
á prent, er smágrein í tímaritinu „Búreis-
ingur“. Þá var hann áttatíu og þriggja ára
gamall. Greinin nefnist „Samljóð' og Mis-
Uóð.“ — Síðustu orð þess^rar greinar má
með sanni velja sem einkunnarorð ger-
valls ævistarfs hans:
„Tað ynskið er mær í hjarta fyri kæra
föðilandi mínum og fólkinum sum har býr
— Guðs friður yvir öllum!“
f
GLEÐILEG JÓL !
%
Guðm. Þorsteinsson9
gullsniiður
------ -——--u-— 7
GLEÐILEG JÓL !
Útvarpsviðgerðarstofa
Ottó B. Arnar
Kaupfélag Skagfirðinga
Sauðárkróki
(Stofnað 1889)
Mjjólhursaniltiu — Sláturhús — Kjjötfrgstihús — Hra&frystihús — Beitugeymsla —
Saumastofa.
Selur algengar'verzlunarvörur. Tekur í umboðssölu framleiðsluvörur til lands og sjávar.
Vaxandi viðskipti skapa batnandi'viðskipti. En bætt viðskipti létta lífsbaráttuna.
Vegna samstarfs, skilvísi og félagslegrar baráttu viðskiptamanna, er Kaupfélag Skagfirðinga mesta og traust-
asta verzlunarfyrirtækið við Skagafjörð, og það er eign fólksins sjálfs, sem við það skiptir.
Kaupfélagið óshar öllum vi&shiptamönnum sínum árs og friðar.
■■ GLEÐILEG JÓL !
' I»öhh fyrir viðshipti oy vinsemd.
* ð
Siyurður Þórðarson.