Fréttablaðið - 12.02.2009, Side 20
20 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 131 Velta: 380 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
315 -1,94% 915 -3,32%
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR 0,21%
MESTA LÆKKUN
CENTURY ALUMIN. 8,82%
STRAUM.-BURÐAR. 5,70%
MAREL FOOD SY.S 5,26%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,70 +0,00% ... Atlantic
Airways 165,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 580,00 +0,00% ...
Bakkavör 2,08 -0,48% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 111,50 -3,46% ... Icelandair Group
13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 54,00 -5,26% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 2,15 -5,70% ... Össur 97,30 +0,21%
Lánastofnun sænska ríkisins, Riks-
gälden, seldi í gær sænsku fjár-
festingafélögunum Bure Equity og
Altor fjárfestingabankann Carneg-
ie. Kaupverð nemur 2,28 milljörð-
um sænskra króna, jafnvirði 27
milljarða íslenskra.
Milestone átti rúman sex pró-
senta hlut í bankanum í gegnum
sænska félagið Moderna (áður
Invik) þegar yfir lauk og var And-
ers Fällman, forstjóri Moderna,
stjórnarformaður bankans þegar
ríkið tók hann yfir í nóvember í
fyrra. Við það varð eign Milestone
í bankanum að engu.
Bankinn lenti í hremmingum í
fyrrahaust þegar hann neyddist til
að afskrifa einn milljarð sænskra
króna, hátt í tuttugu milljarða
íslenskra að þávirði, mest vegna
eins viðskiptavinar í október. Við
það þornuðu lánalínur bankans
upp og varð hann að sækja í sjóði
hins opinbera.
Bo Lundgren, forstjóri lána-
stofnunarinnar, segir bankasöluna
öllum í hag. Muni söluandvirðið
ganga upp í fimm milljarða króna
lán frá sænska ríkinu. - jab
KÁTIR MEÐ SÖLUNA Bo Lundgren,
forstjóri lánastofnunar sænska ríkisins
(hér í miðjunni) segir söluandvirði fyrir
Carnegie ganga upp í skuldir gagnvart
ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Svíar selja Carnegie
Lyfjaframleiðandinn Britos
Myers Squibb seldi hlutabréf í
matvælafyrirtækinu Mead John-
son í frumútboði í Bandaríkjun-
um á þriðjudag fyrir 720 milljón-
ir Bandaríkjadala, jafnvirði tæpra
83 milljarða íslenskra króna.
Mead Johnson er þekktast fyrir
barnamat, svo sem mjólkurduft
og mauk og annað góðgæti fyrir
ungabörn.
Talsverðrar eftirvæntingar
gætti í röðum fjárfesta enda var
útboðið það fyrsta sem sést hefur
vestanhafs í þrjá mánuði.
Árangurinn var talsvert umfram
væntingar, að sögn Bloomberg-
fréttaveitunnar.
Þrjú önnur útboð eru fyrirhuguð
vestanhafs í vikunni.
David Erickson, yfirmað-
ur eignastýringar hjá Barclays,
segir í samtali við Reuters-frétta-
stofuna, að hlutabréfamarkaður
sé víða svo botnfrosinn að búast
megi við því að fjárfestar haldi sig
mest á hliðarlínunni og muni ekki
hreyfa sig fyrr en í fyrsta falli í
haust. Ástæðan sé sú að þeir hafi
tapað á hlutabréfakaupum í rót-
grónum fyrirtækjum og því muni
þeir sitja og bíða þar til aðstæður
batni á fjármálamörkuðum. - jab
FYLGST MEÐ RÁÐHERRANUM Verð-
bréfamiðlarar í Bandaríkjunum hvíldu
taugar og lúin bein á meðan Timothy
Geithner flutti fyrstu tölu sína um horfur
á mörkuðum sem fjármálaráðherra á
þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fyrsta útboðið lítur
dagsins ljós vestra
„Ég veit ekki hvert stefnir. Vörur
okkar hafa gert það gott um jólin.
En þau eru jú aðeins einu sinni á ári
og því megum við ekki einblína á
eitt tímabil,“ segir Xavier Govare,
forstjóri matvælafyrirtækisins
Alfesca.
Fyrirtækið hagnaðist um 17,8
milljónir evra, jafnvirði rúmra 3,8
milljarða króna, á síðasta rekstrar-
fjórðungi, sem er annar ársfjórð-
ungur í bókum félagsins. Jólahátíð-
in hefur fram til þessa verið með
bestu tíðum Alfesca. Á sama tíma
í fyrra nam hagnaður Alfesca 22,5
milljónum evra. Samdrátturinn
nemur um 21 prósenti.
Sala á fjórðungnum nam 249,2
milljónum evra, sem er um 3,5 pró-
sentum minna en á sama tíma fyrir
ári.
Eins og gefur að skilja setja
aðstæður á helstu mörkuðum Alfes-
ca í Evrópu mark sitt á afkomu
félagsins, ekki síst breyttar neyslu-
venjur í kjölfar efnahagsþrenginga
auk verðhækkana á hráefni.
Stjórnendur Alfesca sögðu á upp-
gjörsfundi félagsins í gærmorgun,
að þrátt fyrir óvissu í efnahags-
málum haldi félagið sjó og hafi sett
nokkrar nýjar vörur á markað með
það fyrir augum að jafna veltuna.
Þá hafi skuldir verið greiddar hratt
niður, þar af allar íslenskar skuld-
bindingar. Erfitt sé að spá fyrir um
horfurnar. Róðurinn verði þungur
til skemmri tíma og muni fyrirtæk-
ið skila tapi á næstu tveimur fjórð-
ungum.
„Ég held að útlitið sé nokkuð
dökkt fyrir næstu fjórðunga“ segir
Haraldur Yngvi Pétursson, sérfræð-
ingur hjá IFS Greiningu. Alfesca
hafi sýnt styrk vörumerkja sinna
um jólin. Vísbendingar um þreng-
ingar í frönsku efnahagslífi, heima-
markaði Alfesca, muni hins vegar
verða fyrirtækjum með hágæðavör-
ur erfitt. Þar sé Alfesca engin und-
antekning. - jab
STERK VÖRUMERKI Philippe Perrineau,
fjármálastjóri Alfesca, rýndi í tölurnar á
uppgjörsfundi Alfesca í gær. Þeir Xavier
Govare, forstjóri Alfesca, sögðu ekki
útilokað að fyrirtækið skili tapi í þeim
þrengingum sem einkenni evrópska
neytendamarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Erfitt fram undan hjá Alfesca
Vörumerki Alfesca stóð styrkum fótum um jólin. Útlit er fyrir að efnahags-
þrengingar í Evrópu skili sér í tapi á seinni hluta ársins.
HAGNAÐUR/TAP HLUTHAFA
Tímabil Upphæð
2. ársfj. 2008 17,8 milljónir EUR
eða 3,8 milljarðar króna*
2. ársfj. 2007 22,5 milljónir EUR
eða 4,8 milljarðar króna*
Hagnaður/tap á hlut**
2. ársfj. 2008 0,305 EUR
2. ársfj. 2007 0,386 EUR
*Miðað við gengi EUR/ISK í árslok 2008
** Í evrusentum
Kínverska hagkerfið kólnar hratt,
samkvæmt nýjustu hagtölum um
vöruskipti í janúar sem birtar voru
í gær.
Útflutningur frá Kína dróst
saman um 43,1 prósent á milli ára
en innflutningur um 17,5 prósent.
Mestu munar um samdrátt á hrá-
vöru og vörum tengdum fjárfesting-
um en mjög hefur dregið úr eftir-
spurn eftir þessum vöruflokkum.
Dagblaðið International Herald
Tribune segir tölurnar vísbendingu
um að efnahagsaðgerðir kínverskra
stjórnvalda virki ekki sem skildi og
gæti því dregið hraðar úr eftirspurn
í Kína en búist var við.
Líkur eru á að þróunin muni skila
sér í hraðri kólnun kínverska hag-
kerfisins.
Hagvöxtur hefur staðið í rúmum
tíu prósentum að meðaltali síðast-
liðin fimm ár. Telja hagfræðingar
nú að svo kunni að fara að hagvöxt-
ur nái í besta falli átta prósentum á
þessu ári. Í versta falli muni hag-
vöxtur fara niður í fimm prósent,
að sögn blaðsins. - jab
GLEÐI Í KÍNA Mjög hefur dregið úr
eftirspurn í Kína, samkvæmt nýjustu
hagtölum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Hratt kólnar í Kína
Marel Food Systems tap-
aði 1,8 milljörðum króna
í fyrra. Mesta tapið felst í
hagræðingaraðgerðum og
varúðarniðurfærslu. For-
stjórinn væntir betri tíðar
um mitt ár.
„Aðstæður á mörkuðum hafa áhrif
á öll fyrirtæki,“ segir Hörður Arn-
arson, forstjóri Marel Food Syst-
ems, um afkomu fyrirtækisins á
síðasta ári.
Marel tapaði 8,4 milljónum evra,
jafnvirði 1,8 milljarða króna, í
fyrra. Þetta er viðsnúningur frá
árinu á undan. Mestu munar um
síðasta fjórðung eftir ágætt ár en
þá var afkoman neikvæð um 23,7
milljónir evra.
Eigið fé Marel nam 286,8 milljón-
um evra um áramótin, samanborið
við 181,8 milljónir árið á undan. Þá
stóð eiginfjárhlutfall í 31,1 prósenti
í lok árs sem er 27 prósenta lækkun
á milli ára.
Mestu munar um varúðarfærslu
vegna framvirkra samninga upp á
17,8 milljónir evra á fjórða ársfjórð-
ungi. Samningarnir urðu óvirkir í
efnahagshruninu hér í október.
Hörður segir færsluna eðlilega þar
sem óvissa sé um kröfuna. Viðræð-
ur standa yfir um innlausn samn-
inga og óvíst hvenær niðurstaða
liggur fyrir.
Þá varð Marel Food Systems að
endurmeta vörulager í samræmi
við alþjóðlega bókhaldsstaðla
vegna yfirtöku á matvælavinnslu-
vélahluta hollensku samsteypunnar
Stork Food Systems í fyrra. Gjald-
færslan hljóðar upp á 9,8 milljón-
ir evra en hefur ekki áhrif á sjóð-
streymi.
Marel Food Systems hefur ekki
farið varhluta af yfirstandandi
fjármálakreppu og hafa pantanir
á stórum vinnslukerfum dregist
saman um þriðjung.
Hörður bendir á að fyrirtækið
hafi gripið til annarra umfangs-
mikilla hagræðingaraðgerða, svo
sem með uppsögnum utan land-
steinanna. Þótt líkur séu á að næstu
tveir ársfjórðungar verði erfiðir
muni aðgerðirnar skila sér þegar
rofar til.
„Við teljum aðstæðurnar tíma-
bundnar enda eru langtímahorfur
okkar óbreyttar. Fyrri hluti ársins
verður erfiður en svo batnar þetta,“
segir Hörður og bendir á að margir
neytendamarkaðir, svo sem í Asíu
og Suður-Ameríku, hafi ekki orðið
fyrir skelli líkt og í Evrópu. „Kjúkl-
ingaiðnaðurinn í Bandaríkjunum
hefur skilað tapi í fimm fjórðunga.
Nú er hann að snúa við þótt fjár-
málakreppan sé ekki að leysast,“
segir Hörður. jonab@markadurinn.is
Erfiður endir á góðu ári
hjá Marel Food Systems
Kínverska ríkisálfyrirtækið Aluminum Corp-
oration of China samdi í gær um kaup á níu
prósenta hlut í Rio Tinto. Kaupverðið nemur
19,5 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði
2.240 milljarða íslenskra króna.
Álfélagið átti fyrir níu prósenta hlut í Rio
Tinto en hafði heimild til að auka hann í tæp
fimmtán. Stjórnvöld í Ástralíu og hluthafar
félagsins þurfa að gefa græna ljósið á við-
skiptin. Ef af verður er þetta umfangsmesta
fjárfesting Kínverja á erlendum mörkuðum
til þessa, samkvæmt Financial Times.
Kaupin fela í sér að kínverska fyrirtækið
kaupir skuldabréf Rio Tinto fyrir 7,2 millj-
arða Bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 830
milljarða íslenskra króna. Bréfin eru með
breytirétti sem felur í sér að þeim er hægt
að breyta í hlutafé. Afgangurinn felst í beinni
fjárfestingu Chinalco með Rio Tinto í nokkr-
um verkefnum.
Rio Tinto hefur glímt við skuldaklafa eftir
dýrkeypta yfirtöku á Alcan, móðurfélagi
álversins í Straumsvík í hittiðfyrra og mun
nýta féð til greiðslu á lánum á gjalddaga í
október. - jab
Kínverjar kaupa hlut í Rio Tinto
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Ál- og námarisinn Rio Tinto
stefnir að því að grynnka á skuldum með sölu
hlutafjár til kínversks ríkisálfyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HAGNAÐUR/TAP HLUTHAFA
Tímabil Upphæð
4. ársfj. 2008 -23,7 milljónir EUR
eða -5,1 milljarður króna*
4. ársfj. 2007 3,37 milljónir EUR
eða 728,9 milljónir króna*
Allt árið 2008 -8,4 milljónir EUR
eða -1,8 milljarðar króna*
Allt árið 2007 6,06 milljónir EUR
eða 1,3 milljarðar króna*
Hagnaður/tap á hlut**
Allt árið 2008 - EUR
Allt árið 2007 +1,65 EUR
*Miðað við gengi EUR/ISK í árslok 2008
** Í evrusentum
AFKOMAN KYNNT Í GÆR Hörður
Arnarson, forstjóri Marel Food
Systems, er fullviss um að
aðgerðir fyrirtækisins muni skila
sér til baka þegar rofi til á mörk-
uðum.
M
A
R
K
A
Ð
U
R
IN
N
/G
VA
Bretland er í djúpri efnahagskreppu
og stýrivextir virka ekki lengur
sem stjórntæki hagkerfisins.
Þetta segir Mervyn King, seðla-
bankastjóri hjá Englandsbanka,
í skýrslu um efnahags- og verð-
bólguhorfur sem kynnt var í gær.
Í skýrslunni segir að hagvöxtur
muni dragast hratt saman á fyrri
hluta árs, verði jafnvel neikvæð-
ur um fjögur prósent fram á mitt
ár. Betri tíðar megi vænta í byrj-
un næsta árs.
Þá segir í skýrslunni að erfitt
verði að ein leiðanna til að blása lífi
í útlánastarfsemi á nýjan leik verði
beiting óhefðbundinna aðgerða,
líkt og breska ríkisútpvarpið tekur
til orða. - jab
Djúp kreppa
í Bretlandi