Tíminn - 23.04.1988, Síða 12
12 Tíminn
Laugardagur 23. apríl 1988
VORUMERKI VANDLATRA
NÆRFATNAÐUR
NÁTTFATNAÐUR
Heifcdsölubirgöir:
iguriónsion Ijf-
Þórsgata 14 - sími 24477
'o,
Hi *
;W
Þjóðarbókhlaðan
Tilboð óskast í frágang forhýsis, glugga og glerjun
aðalhúss, múrverk og frágang í stigahúsum o.fl. í
húsi Þjóðarbókhlöðunnar við Birkimel.
Verkinu skal lokið fyrir 30. apríl 1989 en þó skal
hluta þess lokið á árinu 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Borgartúni 7, Reykjavík, til og með 6. maí 1988
gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað mánudaginn 16. maí 1988 kl.
11:00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
^RARIK
HL. ^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS '
Olafsvík
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa lausttil umsóknar
starf skrifstofumanns á skrifstofu Rafmagnsveitna
í Ólafsvík. Um er að ræða 1/2 starf.
Umsókn er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf
sendist á skrifstofu Rafmagnsveitna Sandholti 34
Ólafsvík sem jafnframt veitir allar upplýsingar um
starfið. Einnig liggjaupplýsingarfyrirásvæðisskrif-
stofu Rafmagnsveitna ríkisins í Stykkishólmi.
Umsóknum skal skilað fyrir 3. maí næstkomandi.
Rafmagnsveitur ríkisins
Hamraendum 2
Stykkishólmi.
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Dýrfirðinga á
Þingeyri er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. maí n.k.
Á vegum kaupfélagsins er rekin verslun á Þingeyri,
útgerð og fiskvinnsla og er kaupfélagsstjóri jafn-
framt framkvæmdastjóri hennar.
Skriflegar umsóknir er grein aldur, menntun og
fyrri störf sendist formanni félagsins, Valdimar
Gíslasyni, Mýrum, Mýrarhreppi, 471 ÞINGEYRI,
eða starfsmannastjóra Sambandsins, sem veita
upplýsingar, ásamt kaupfélagsstjóra.
Kaupfélag Dýrfirðinga
Þingeyri
Pétur Einarsson, Mugumferðarstjóri, ásamt starfsmönnum loftferðaeftirlits og kennurum, auk hluta þeirra nemenda
sem námskeiðið sóttu.
Fyrsta flugkennaranámskeiöiö hérlendis:
AUKNAR KRÖFUR,
BÆTT FLUGÖRYGGI
Fyrsta flugkennaranámskeiðið
sem haldið er hérlendis lauk 9. apríl
s.l. Nýbreytni þessa námskeiðahalds
er sú, að í stað þess að flugmenn leiti
erlendis eftir þessari menntun eða
stundi sjálfsnám án leiðbeinenda,
njóta þeir nú leiðsagnar sérfróðra
manna, sem sniðið hafa námið að
íslenskum aðstæðum og skilyrðum.
Hverjum flugmanni sem hyggst
leggja stund á flugkennslu og hljóta
flugkennararéttindi er skylt að sækja
námskeiðið og standast próf með
lágmarkseinkunn 7.0 sem jafnframt
er lágmarkseinkunn í öllum flug-
prófum.
Námstilhögun er þannig að u.þ.b.
100 klst. kennslu er dreift á 10 vikur.
Megin uppistaðan eru þrj ár greinar:
1. Flugæfingar, kennari Haraldur
Baldursson.
2. Samskipti/sálarfræði, kennari
dr. Eiríkur Örn Arnarson.
3. Kennslufræði, kennarar Stefán
Baldursson og Birgir Baldvinsson.
Auk þess eru fluttir nokkrir
smærri fyrirlestar um breytileg efni,
s.s. leit og björgun, reglur um loft-
ferðir, o.fl.
Það er von flugumferðarstjórnar
að þessar auknu kröfur hafi bætandi
áhrif á almenna flugkennslu og flug-
öryggi í landinu, segir í fréttatilkynn-
ingu hennar.
Byggingarvísitalan hækkaöi um 1,93% frá mars til apríl:
Þriggja millj. íbúð
hækkaði um 57.900 kr.
Vísitala byggingarkostnaðar
reyndist 110,8 stig samkvæmt verð-
lagi nú í apríl, sem er 1,93% hækkun
frá mánuðinum á undan. Það jafn-
gildir því að þriggja milljóna króna
íbúð hafi hækkað um 57.900 kr. á
einum mánuði. Síðustu 3 mánuði
hefur vísitalan hækkað um 3,2%,
sem samsvarar um 13,3% hækkun á
heilu ári. Síðastliðna 12 mánuði
hefur vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 15,4%.
Af hækkuninni frá mars til apríl
stafaði 0,8% af verðhækkunum á
steypu og afgangurinn af verðhækk-
unum ýmissa vöru og þjónustuliða.
Vísitalan 110,8 gildir fyrir maím-
ánuð. Samsvarandi vísitala miðuð
við eldri grunn (des. 1982=100) er
354 stig. -HEI
Sendiherra í Egyptalandi:
Mubarak afhent
trúnaðarbréfið
Síðast liðinn fimmtudag, 14. apríl,
afhenti Sverrir Haukur Gunnlaugs-
son, sendiherra, Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands, trúnaðarbréf
sitt, sem sendiherra íslands í Egypta-
landi.
Sverrir Haukur rnun hafa emb-
ættisaðsetursitt í Genfarborgí Sviss.
“ -SÓL
Hússtjórnarskóli
Reykjavíkur
Tímanum hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Hússtjórnar-
skóla Reykjavíkur.
„Svo ánægjulega hefur viljað til
að báðar sjónvarpsstöðvarnar tóku
sig til í vetur og sögðu frá starfsemi
Hússtjórnarskólans á Hallorms-
stað. Segja má að þáttur Ríkissjón-
varpsins hafi verið sýnu betri. Þar
var fjallað um skólann á einkar
jákvæðan og skemmtilegan hátt.
Því miður slæddist sú meinlega
villa inn hjá báðum stöðvunum, að
Hússtjórnarskólinn á Hallorms-
stað var talinn eini hússtjórnarskól-
inn sem enn er starfandi.
Haft var samband við báðar
sjónvarpsstöðvarnar að þáttum
loknum og beðið um að leiðrétta
mistökin umsvifalaust. En ekki
lítur út fyrir að þessum annars
ágætu fréttamönnum sé annt um
að hafa það sem sannara reynist.
Hér skal á það bent að nu eru
starfandi þrír hússtjórnarskólar, á
Hallormsstað, ísafirði og í Reykja-
vík.
Til glöggvunar skal hér í örstuttu
máli segja frá starfsemi Hússtjórn-
arskóla Reykjavíkur:
Árlega er starfrækt fimm ntán-
aða hússtjórnardeild með heima-
vist fyrir þá sem þess óska. Þar fer
fram bæði bóklegt og verklegt
nám, s.s. fjölþætt matreiðsla og er
sú kennsla tengd manneldis-, neyt-
enda- og heilbrigðisfræði, svo og
margs konar handíðir, s.s. vefnað-
ur og fatasaumur. Jafnframt eru
starfrækt námskeið í ýmsum grcin-
um eftir því sem húsrými leyfir.
Þar er m.a. boðið upp á fjölbreytta
matreiðslu, fatasaum og vefnað.
Skólinn hefur starfað óslitið frá
árinu 1942 við góðan orðstír og
hafa nemendur skipt mörgum þús-
undum.“