Tíminn - 23.04.1988, Page 20

Tíminn - 23.04.1988, Page 20
20 Tíminn Laugardagur 23. apríl 1988 Halldóra Halldórsdóttir Mýrum, Villingaholtshreppi Fædd: 15. nóvember 1888 Dáin: 13. apríl 1988 Þann 13. apríl s.l. lést á sjúkrahús- inu á Selfossi Halldóra Halldórsdótt- ir, Mýrum í Villingaholtshreppi. Halldóra var fædd að Nesi í Selvogi 15. nóvember 1888 og hefði því orðið 100 ára í haust. Foreldrar hennar voru þau Sigur- björg Sigurðardóttir frá Kvíarvöll- um í Garði og Halldór Halldórsson bóndi í Sauðholti í Holtum. Halldóra ólst upp í Sauðholti, elst af stórum systkinahópi, til 23 ára aldurs en þá flutti hún sig í Villinga- holtshreppinn og réð sig í vist að bænum Mjósundi hjá þeirri miklu sómakonu Þórunni Jónsdóttur. Svo skemmtilega vildi til að sama daginn og hún flutti í hreppinn var einmitt kirkjan í Villingaholti vígð. Næstu árin stundar hún margvísleg störf bæði í Villingaholtshreppnum og í Reykjavík en 1919 giftist hún Sigurði Guðmundssyni frá Saurbæ í Villingaholtshreppi sem þá hafði nýlega hafið búskap að Jaðarkoti í sömu sveit. Ekki var jörðin stór og húsakynni heldur bágborin en ungu hjónin voru full bjartsýni og lögðu ótrauð á brattann. Þau eignuðust 5 börn en eitt þeirra, drengur, lést ungur að árum. Börn þeirra eru: Halldór, sjómað- ur f. 1920 d. 1944. Guðmunda Oddbjörg, húsmóðir í Reykjavík f. 1920. Kristinn, bóndi að Mýrum f. 1923. Jóhanna Guðrún, húsmóðir að Mýrum f. 1926. Sigríður Friðsemd, húsmóðir í Kópavogi f. 1929. Lífsbaráttan var hörð á þcssum tíma og snemma þurftu börnin að hjálpa til en búið stækkaði og lagt var á ráðin um byggingu nýs íbúðar- húss. En þá dundi ógæfan yfir. Sigurður lést 1936 aðeins 41 árs að aldri og eftir stóð Halldóra með 5 börn og þau elstu aðeins 16 ára. Skuggi kreppuáranna lá eins og mara yfir þjóðinni og víst er að það voru ekki margir sem trúðu á það að Halldóru tækist að halda búinu. En með sína sterku guðstrú og óbilandi bjartsýni að Ieiðarljósi neitaði hún að gefast upp, heldur barðist áfram með dyggri aðstoð barnanna. Nýtt íbúðarhús var byggt og bú- skapurinn óx og dafnaði, sam- sveitungar hennar lærðu fljótt að hér var engin meðalkona á ferð. Ákveðin og föst fyrir en hjarta- gæskan og glaðværðin alltaf í fyrir- rúmi og þessir eiginleikar hennar fleyttu henni yfir margan erfiðan hjallann. Sorgin bankaði þó aftur á dyrnar á þessum árum er eldri sonur hennar Halldór drukknaði árið 1944 en þá eins og svo oft áður og síðar fann hún styrk í bæninni til Guðs. Ekki er svo hægt að tala um börnin hennar Dóru, eins og hún var oftast nefnd, að ekki sé getið um Margréti Sigurgeirsdóttur, nú bú- sett á Selfossi. Dóra frétti af Mar- gréti, þá 5 ára gamalli í Reykjavík, og veikindum sem hrjáðu fjölskyldu hennar. Hún tók stúlkuna þegar í stáð til sín austur í Jaðarkot og þar ílentist hún og var alin upp sem eitt af börnum henanr. Hafði Dóra ávallt mikið dálæti á henni Möggu og var það örugglega gagnkvæmt. Dóra mín, orð verða svo fátækleg þegar maður ætlar að reyna að lýsa öllum þeim tilfinningum sem hrærast með manni á svona kveðjustund. Minningar þjóta framhjá eins og myndir á tjaldi en sumar staldra auðvitað lengur yið en aðrar. Það var heldur hryssingslegt vor- kvöld 1954 þegar 10 ára strákhvolpur úr vesturbænum í Reykjavík var skilinn eftir í ókunnu húsi meðal fólks sem hann hafði aldrei séð, á bænum Mýrum í Villingaholts- hreppi. Þangað hafði hann ráðið sig sem snúningastrák um sumarið og þóttist nú heldur betur maður mcð mönnum. En þegar fylgdarmaður hans kvaddi og hann varð allt í einu einn eftir þá brast nú kjarkurinn og tárin læddust fram. Þá voru ekki höfð mörg orð, en Dóra tók hann í fangið og umvafði hann þeirri hlýju og hjartagæsku sem hún átti svo mikið af og sem hann þarfnaðist svo mjög þetta kvöld. Þessa nótt sofnaði hann í rúminu hjá Dóru og næsta dag skein sólin skært og feykti burtu öllum trega og söknuði. Rigningasumarið 1955 var erfitt sumar og oft komu menn inn blautir og kaldir frá verkunum en alltaf var Dóra nálægt með hlýja ullarsokka, eða teppi til að koma lífi í kaldar hendur og fætur. Já það er margs að minnast frá þessum dögum og þeir eru örugglega margir snúningastrákarnir sem nutu þess sama og undirritaður á þeim árum sem liðin eru. Árið 1954 tók Kristinn sonur hennar við búskapnum, keypti bæ- inn Mýrar í Villingaholtshreppi og hóf þar myndarbúskap ásamt systur sinni Jóhönnu Guðrúnu. Dóra fluttist með þeim að Mýrum og hefur búið þar síðan í öruggum og traustum faðmi þeirra Kristins og Jóhönnu. Börn hennar öll héldu miklu sambandi við hana og mörg eru þau barnabörnin sem stigið hafa sín fyrstu spor í atvinnulífinu á Mýrum. Barnabörnin eru orðin 14, barna- barnabörnin 17 og fimmti ættliður- inn fæddist s.l. ár. Dóra var mikil fjölskyldumann- eskja og lagði mikla áherslu á að halda sterku sambandi við börnin. Þetta kunnu þau vel að meta og rómaður var stuðningur og styrkur sá sem tengdasonur hennar Ágúst Steindórsson ávallt sýndi henni og ekki síst nú þegar hallaði að leiðar- lokum. Dóra fylgdist ávallt vel með og mikið var hún stolt af að sjá hvernig búið blómstraði hjá Kristni syni sínum. Þá tók hún virkan þátt í starfsemi kvenfélagsins og er reyndar heiðursfélagi þess, hún var einnig GunnarGuðjónsson Hvolsvelli Þegar árin færast yfir fer mörgum svo að flestar bernskuminningarnar gleymast, en eftir verða atvik, sem lýsa eins og leiftur um nótt. Þær minningar geta verið bjartar gleði- stundir eða sár harmur. Eitthvað sem sker sig úr hversdagsleikanum með þeim hætti að það fylgir fólki til æviloka. Eitt af því fyrsta, sem ég man, var bjartur sumarmorgunn, hestar söðl- aðir í hlaði og við öll ferðbúin. Ég hafði vaknað óvenju snemma því tilhlökkunin lét mig ekki hafa svefnró. Foreldrar mínir, Sigurður Vigfússon og Björg Jónsdóttir á Brúnum undir Eyjafjöllum, ætluðu með okkur systkinin í heimsókn til móðurbróður míns, Guðjóns og konu hans, Guðrúnar Gunnarsdótt- ur í Hallgeirsey í Austur-Landeyj- um. Ég vissi að hvergi var betra að koma en að Hallgeirsey og þar var góða leikfélaga að finna. Um hádegisbil var komið á áfangastað og þó ég væri ungur að árum, gleymast mér aldrei þær hlýju móttökur, sem við fengum og alltaf hafa einkennt heimilið í Hallgeirsey. Dagurinn leið allt of fljótt. Systkinin þrjú voru óþreytandi að sýna okkur allt sem markverðast var í bænum og umhverfis og þar sem við Gunnar vorum elstir okkar systkina þóttumst við vera sjálfkjörnir foringjar hvors hóps fyrir sig. Þegar haldið var heim að kvöldi hafði tekist sú vinátta, sem hélst upp frá því. Þegar Gunnar hefur nú farið á undan þá leið, sem allir fara, finnst mér mest um vert að eiga minning- arnar frá þeim stundum, sem við áttum saman. Þar ber engan skugga á. Gunnari var tónlistin í blóð borin og samdi nokkur lög, sem bera vitni þeirri viðkvæmu lund, sem bjó undir glaðværu yfirbragði. Hann var þjóð- haga smiður, listamaður í öllu, sem hann tók sér fyrir hendur. Ég veit með vissu að mesta gæfu- spor Gunnars var þegar hann hitti lífsförunaut sinn, Ásu Guðmunds- dóttur. Þau bjuggu sér fallegt heimili að Vallarbraut 6 á Hvolsvelli og garðurinn kring um húsið bar því vitni hvað hægt er að gera þegar samhent fólk leggst á eitt að fegra umhverfi sitt. Á Vallarbrautina var gott að koma, þar vorum við alltaf velkom- in. Ekki gestir, sem tekið var á móti af skyldurækni, heldur aufúsugestir beggja hjónanna, sem tekið var tveim höndum hvernig sem á stóð. Oft var glatt á hjalla, en sorgin gekk ekki heldur þar hjá garði. Einkadóttur sína, Guðrúnu misstu þau i blóma lífsins, eina yndislegustu ungu stúlku, sem ég hef kynnst. Hún var búin bestu kostum beggja for- eldra sinna, enda augasteinn þeirra beggja. Ég ætla ekki að rekja ævisögu Gunnars í þessum fáu orðum, aðeins langaði mig að þakka frænda mínum öll hlýju handtökin og tryggð hans á liðnum árum. Fyrir skömmu var ég í auðu sam- komuhúsi, hliðarsalur var myrkvað- ur. Lítill drengur kom þar inn með móður sinni, hann hljóp til mín, benti inn í dimmuna og sagði: „Heyrðu, er nóttin þarna inni? Oft er það svo, þegar einhver okkur nákominn hefur vistaskipti að okkur finnst nóttin hafa tekið völdin, en ég trúi því að hinumegin við tjaldið sé bjartur dagur og þeir sem á undan eru farnir bíði þar eftir okkur sem seinna komum. Fjölskylda mín og ég sendum ykkur Ásu, Guðrúnu í Hallgeirsey og öðrum ástvinum Gunnars innileg- ustu samúðarkveðjur. Jón Sigurðsson. elsti íbúi hreppsins. Elsku Dóra mín, nú þegar þín hinsta ferð er hafin og komið er að kveðjustund þá verður okkur vinum þínum og ætt- ingjum tregt um mál. En þótt söknuðurinn sé mikill og tregi þungur þá mun minningin lifa. Minningin um mikla persónu, konu sem aldrei gafst upp þótt á móti blési um stund, glæsilegan fulltrúa bænda- stéttarinnar, sem ávallt hafði að leiðarljósi sterka og innilega guðstrú og óbilandi bjartsýni. Ég sendi fjölskyldu hennar og vinum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hennar. Einar Gunnar Bollasson Hún amma er gengin yfir móðuna miklu. Um kl. 8 að kvöldi 13. apríl reifstu þig lausa og lagðir af stað til þíns fyrirheitna lands - þitt kall var komið. Þú varst búin að gera þitt, það vitum við öll, en við munum öll sakna þín mikið. „Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mín verí vörn. í nótt Æ, virzt mig að þér taka, méryfirláttu vaka þinn engil, svo ég sofni rótt. “ (Sveinbjörn Egilsson) Þú varst í huga okkar aldrei gömul þótt árin þín væru að nálgast eitt hundrað, það gerði gleði þín og þitt hlýja faðmlag. Við munum minnast þess hversu þú tókst alltaf vel á móti okkur er við heimsóttum þig til dvalar í lengri eða skemmri tíma. Þú óskaðir alltaf skjótra endurfunda. Þú varst vön að lofa Guð og sagðir: „Við munum hittast fljótt ef Guð lofar“. Alltaf vildir þú vita hvernig við öll hefðum það. Okkur barna- börnum þínum mun aldrei úr minni líða, sú mikla og góða hvatning og samkennd er þú gafst okkur og góðvildin í hvers annars garð. Mörg okkar áttum þess kost að dvelja hjá þér sumarlangt, og hjálpa til í sveitinni hjá þér, Kidda og Jóu. Heyskapurinn og skepnuhaldið var okkur öllum sameiginlegt kappsmál, að það færi sem best úr hendi. Hvernig þér tókst að hvetja okkur og samstilla með þínu hugarþeli. Bænir kvölds og morgna settu á daginn mark. Ekki mátti koma illa fram við skepnurnar og fuglarnir áttu sér griðastað í kringum þig. Þetta veganesti sem þú gafst okkur viljum við þakka fyrir - því lífsins gangur og samskipti við aðra menn eru einmitt farsælust á þennan veg. Virðingu fyrir öðrum og trú- mennska í starfi sagðir þú að væri það sem við þyrftum að innprenta í huga okkar. Gæta skyldum við eigna annarra betur en okkar eigin. Þessi atriði koma svo oft í hugann þegar við hugsum til þín. Vertu dyggur trúr og tryggur tungu geymdu þína. Við engan styggur né í orðum hryggur athuga ræðu mína. Hailgrímur Pétursson Hvað er hægt að gefa ungu fólki meira í veganesti en slíkan kærleika? Það er svo margt sem sækir á hugann. amma á þessari kveðju- stund. En slíkt verðurseint upptalið. Amma nú er rödd þín þögnuð en við munum minnast orða þinna. Það sem þú hefur gefið okkur munum við reyna að varðveita af öllu hjarta. Amma þú hefur svo sannarlega lokið þínu dagsverki. „Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrír allt og allt, gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. “ (Vald. Briem.) Megi Guð vísa þér leiðina, og hið eilífa jós lýsa þér. Þess óska barnabörn þín 1 dag, 23 apríl verður jarðsungin frá Villingaholtskirkju hún amma mín Halldóra Halldórsdóttir. Hún var fædd í Nesi í Selvogi 15. nóv. 1888, dóttir Halldórs Halldórs- sonar og Sigurbjargar Sigurðardótt- ur. Eins árs fluttist hún með föður sínum að Sauðholti í Holtum. Þegar hún var á sínum yngri árum var hún í kaupavinnu í Villingaholtshreppn- um. Þar kynntist hún manni sínum Sigurði Guðmundssyni frá Saurbæ í sömu sveit. Þau hófu búskap á Jaðarkoti í Villingaholtshreppi. Börn þeirra eru: Tvíburarnir Guð- mundar og Halldór fædd 26. sept. 1920, Kristinn fæddur 5. apríl 1923, Jóhanna fædd 3. mars 1926, Sigríður fædd 28. sept. 1929, sem er móðir mín og Margrét fædd 1. sept. 1936 en hana tók amma að sér. Amma missti mann sinn úr lungnabólgu á miðjum aldri frá ung- um börnum. Það segir sig sjálft að þetta hefur verið þungur róður fyrir ömmu þar sem hún þurfti nú að gegna tveimur hlutverkum. Ungur fór elsti sonur hennar, Halldór á sjóinn til að afla heimilinu tekna. Hann fórst með togaranum Mars Pemberton aðeins24 ára. Þetta hafa verið miklir erfiðleikar sem fjölskyldan þurfti að ganga í gegnum. En með óbilandi dugnaði og trú hefur hún sigrast á þeim erfiðleikum. Þá tók hún að sér fósturdótturina Margréti. Amma bjó sín búskaparár í Jaðarkoti. Hún fluttist svo að Mýrum í Villingaholts- hreppi er börn hennar, Kristinn og Jóhanna, keyptu þá jörð. Amma átti nokkra mánuði í að verða 100 ára er hún lést. Hún mundi því tímana tvenna. „Sem barn þurfti hún að vinna mikið og yfir sláttinn var hún vön að fara ofan kl. sex á morgnana til að sækja hrossin. Hún sagði mér frá jarðskjálftanum sem varð á Suðurlandi fyrir aldamótin, „það var eins og alda sem kæmi eftir jörðinni sem fólk ekki stóð af sér“. Ég kynntist ömmu er ég fór að vera í sveit að Mýrum á sumrin. Amma var sérstakur persónuleiki, hún var ákveðin en öllum vildi hún vel. Gott lag hafði hún á börnum, gaf þeim festu og ástúð, góð var hún að leggja lífsreglurnar enda búin að reyna margt um dagana. Hún var vön að segja, vertur trúr í litlu sem í stóru“. Það hefur verið mér og fleirum góður skóli að hafa fengið að alast upp í návist hennar. Amma hafði gaman af því að spila, þær voru margar ánægjustundirnar sem við börnin áttum með henni við spil. Ef einhver átti um sárt að binda var hún tilbúin að hjálpa. Hún var alltaf tilbúin að taka upp hanskann fyrir þann sem minna mátti sín. Ámma var hrein og bein í öllu og aldrei baktalaði hún fólk. Hún var léttlynd og kát og hafði gaman af að gera að gamni sínu. Amma gerði gott úr öllu. Gestrisin var hún og skemmtileg heim að sækja. Amma var með trúuðustu mann- eskjum sem ég hef þekkt. Alltaf á sunnudögum hlustaði hún á messuna í útvarpinu og söng með. Hún kunni margar bænir og sálma. Oft fór hún með sálma og hafði guðs orð á vörum. Hún var alltaf að þakka guði það sem hann hafði gert fyrir hana. Amma var dugleg að kenna börnum sem að Mýrum komu bænir og sálma. Amma bað mikið. Hún sagði mér er hún varð níutíu og níu ára að aldrei hefði hún náð þessum aldri nema með guðs hjálp. Síðustu árin á Mýrum naut hún góðrar aðhlynn- ingar barna sinna, Jóhönnu og Kristins, eiga þau miklar þakkir skildar. Amma var búin að vera á Sjúkra- húsi Suðurlands núna eftir áramótin. Á skírdag heimsótti ég hana, þá var hún furðu hress. Núna hefur hún yfirgefið okkur hér á jörð. Hún er farin til fyrirheitna landsins. Góður guð blessi hana nú sem áður. Sigþór K. Ágústsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.