Fréttablaðið - 25.02.2009, Síða 2
2 25. febrúar 2009 MIÐVIKUDAGUR
Davíð Þór, flokkast þetta ekki
undir svefnguðlast?
„Ég lagði allavega nafn svefnguðs
við hégóma.“
Í síðasta Gettu betur-þætti var spurt
hvaða Morfeus Ólafur Stefánsson hand-
boltakappi hefði líkt sér við á Ólympíu-
leikunum. Davíð Þór Jónsson dómari
gaf MH rétt fyrir grískan svefnguð, en
FS rangt fyrir persónu úr kvikmyndinni
Matrix. Þar urðu Davíð á mistök.
Aðalfundur
Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
Minnt er á áður boðaðan aðalfund sem verður í
kvöld miðvikudaginn 25. febrúar.
Fundurinn verður í húsnæði Samfylkingarinnar
að Hallveigarstíg 1 og hefst kl. 20:30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir félagsmenn velkomnir.
Ásgeir Beinteinsson formaður SffR
Borgarmálaráð kemur saman klukkan 19 á sama stað.
ÍSRAEL, AP Shimon Peres, forseti
Ísraels, brýndi fyrir þingmönn-
um að semja um frið við Palest-
ínumenn.
Nýkjörið þing kom saman í
fyrsta sinn í gær, skipað fleiri
harðlínumönnum en færri friðar-
sinnum en síðasta þing.
Benjamin Netanyahu, leið-
togi hægriflokksins Likud, fékk
stjórnarmyndunarumboð fyrir
helgi. Hann hefur reynt að fá frá-
farandi stjórnarflokka, bæði Kad-
ima og Verkamannaflokkinn, til
þátttöku í nýrri ríkisstjórn, en
staðið hefur á samkomulagi um
afstöðu til friðarsamninga við Pal-
estínumenn.
Tzipi Livni, leiðtogi Kadima,
segist ekki vilja vera „fíkjublað“
fyrir stjórn sem ætlar ekki að
vinna að friði. Nái Netanyahu
ekki samkomulagi við Kadima og
Verkamannaflokkinn þarf hann að
leita til annarra hægriflokka, sem
hafa samanlagt 65 þingsæti á 120
manna þingi.
Í ávarpi sínu við þingsetningu
sagði Peres forseti að „samninga-
viðræðum við Palestínumenn
verði að halda áfram þangað til
samkomulag hefur tekist“. Hann
sagði að samningur við Palestínu-
menn muni í reynd þýða frið við öll
nágrannaríki Ísraels.
Netanyahu fékk sex vikna frest
til að mynda ríkisstjórn. Takist
það ekki þarf að kjósa upp á nýtt.
- gb
Nýkjörið þing kom saman í fyrsta sinn í gær í Ísrael:
Peres hvetur til samninga
BENJAMIN NETANYAHU Á engan veginn
auðvelt með að mynda ríkisstjórn, þrátt
fyrir meirihluta hægri flokka á þingi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EFNAHAGSMÁL Fyrirtæki og ein-
staklingar munu finna minna
skjól í svokölluðum skattaparad-
ísum verði frumvarp sem Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra er með í smíðum að lögum.
Steingrímur reiknar með að
leggja frumvarpið fyrir ríkis-
stjórn á föstudag. Þar verða
meðal annars settar auknar kvað-
ir á fyrirtæki að veita upplýsing-
ar um dótturfyrirtæki og útibú
erlendis.
Skattlagning fyrirtækja verður
einnig samræmd því sem tíðkast
víða erlendis, svokallaðri CFC
löggjöf, og fyrirtæki því skatt-
lögð út frá móðurfélaginu. - bj
Frumvarp fjármálaráðherra:
Minna skjól í
skattaskjólum
AÐGERÐIR Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra undirbýr aðgerðir gegn
skattaparadísum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Íslensk kona ættuð
frá Miðbaugs-Gíneu, Catalina
Mikue Ncogo, hefur setið í gæslu-
varðhaldi frá því á föstudag grun-
uð um að ætla að reyna að smygla
allt að tíu kílóum af kókaíni til
Íslands. Þá er varðhaldið einnig
grundvallað á grunsemdum um
að hún hafi stundað skipulagt
mansal hérlendis. Það er líklega
í fyrsta sinn sem Íslendingur er
úrskurðaður í varðhald á þeim
grunni, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
Íslendingur fæddur 1974, Helgi
Valur Másson, var handtekinn á
Schiphol-flugvelli í Amsterdam
fyrir helgi með um eða yfir tíu
kíló af kókaíni í fórum sínum.
Maðurinn er kærasti Catalinu,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins, og hafa þau meðal ann-
ars verið í óskráðri sambúð. Hann
mun ekki hafa komið að ráði við
sögu lögreglu hérlendis.
Catalina kom til Íslands frá
Hollandi á föstudaginn og var
handtekin í Leifsstöð. Í kjöl-
farið var hún úrskurðuð í viku
varðhald. Það er meðal annars
byggt á því að hún er talin hafa
ætlað, ásamt kærasta sínum, að
flytja efnin, hluta þeirra eða öll,
áfram til Íslands frá Amster-
dam. Í gæsluvarðhaldsúrskurð-
inum segir að hún hafi ekki getað
útskýrt á sannfærandi hátt hvaða
erindi hún átti í Hollandi.
Catalina er jafnframt grun-
uð um að hafa skipulagt vændis-
starfsemi hérlendis og hagnast
á henni. Til dæmis hefur verið
greint frá því í
fréttum að hún
sé grunuð um að
hafa gert út að minnsta kosti fjór-
ar vændiskonur í húsi á Hverfis-
götu. Hún er jafnframt talin hafa
flutt konur til landsins gagngert
til að stunda hér vændi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa skýrslur verið tekn-
ar af einhverjum þeirra kvenna
sem Catalina er talin hafa gert út
sem vændiskonur.
Catalina kærði gæsluvarðhalds-
úrskurð héraðsdóms til Hæsta-
réttar og er niðurstöðu að vænta
í dag. Lögregla í Hollandi fer með
mál Helga Vals. stigur@frettabladid.is
Kærasti Catalinu með
um tíu kíló af kókaíni
Íslendingur sem handtekinn var í Hollandi fyrir helgi var með um tíu kíló af
kókaíni í farteskinu. Hann er kærasti Catalinu Ncogo, sem situr í gæsluvarðhaldi
grunuð um aðild að smyglinu sem og skipulagt mansal, líklega fyrst Íslendinga.
■ Catalina Ncogo varð íslenskur rík-
isborgari árið 2004. Hún er ættuð
frá Miðbaugs-Gíneu.
■ Lögregla hefur haft Catalinu undir
smásjánni í töluverðan tíma,
grunaða um mansal og ýmis
önnur afbrot.
■ Hún er talin hafa gert út vændis-
konur í húsi við Hverfisgötu
105 og einnig á heimili sínu í
Hafnarfirði.
■ Í viðtali við Stöð 2 sagði Catalina
að stúlkurnar fjórar í íbúðinni við
Hverfisgötu „skemmtu körlum“ og
að við það væri ekkert athuga-
vert.
SAGÐI ÞÆR BARA „SKEMMTA KÖRLUM“
VÆNDISHÚSIÐ Það er í íbúð
í þessu húsi sem talið er að
vændisstarfsemi fari fram. Til
hægri á myndinni má sjá lög-
reglustöðina í Reykjavík.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
EFNAHAGSMÁL Sendinefnd Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins kemur hingað
til lands á morgun og verður til
10. mars. Þetta hefur verið stað-
fest af fjölmiðlafulltrúa sjóðsins.
Gerð verður úttekt á framgangi
yfirvalda við að fylgja áætlun
sem fyrir liggur og er forsenda
fyrir 2,1 milljarða dala fyrir-
greiðslu sjóðsins. Mark Flanagan
fer fyrir nefndinni og mun hún
gera hérlendum fjölmiðlum grein
fyrir afrakstri vinnu sinnar í lok
ferðar. - jse
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Kemur á morg-
un, fer 10. mars
VINNUMARKAÐUR Kjararáð
hefur ákveðið almenna lækk-
un launa embættismanna, sem
undir kjararáð heyra, annarra
en dómara og skrifstofustjóra í
Stjórnarráði Íslands en þessir
hópar höfðu mótmælt kröftuglega
í umsögn sinni til Alþingis.
Heildarlaun þeirra sem eru
með 1.125 þúsund krónur á mán-
uði lækka um fimmtán prósent og
heildarlaun sem eru 450 þúsund á
mánuði lækka um fimm prósent.
Enginn lækkar meira en fimmt-
án prósent. Ákvörðun kjara-
ráðs verður birt embættismönn-
um með bréfum sem send verða
hverjum og einum. - ghs
Embættismenn:
Launin lækka
um 5-15 prósent
ALÞINGI Það „blasir við að umsvif
í bankakerfinu hafa minnkað það
mikið að bankarnir eru of margir
eða of stórir og það verður að taka
á því máli“, sagði Gylfi Magnús-
son viðskiptaráðherra á þingi í
gær. Var þetta svar við fyrirspurn
Ólafar Nordal um hvort standi til
að sameina ríkisbankana.
Gylfi sagðist telja að einhver
fækkun bankastofnana yrði frá
því sem nú er, en enga ákvörðun
sé búið að taka um sameiningu.
Þá sagði Gylfi að verið sé að
skoða aðkomu erlendra kröfuhafa
að íslenskum bönkum. Það yrði
jákvætt ef þeir myndu eignast
einhvern hlut í bönkunum. - ss
Gylfi Magnússon:
Bankar of stórir
eða of margir
FJÖLMIÐLAR Nefnd um fjölmiðla-
markað hittist á ný á mánudag.
Nefndin var skipuð í tíð fyrrver-
andi menntamálaráðherra, Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
en nú hafa orðið mannabreyting-
ar í henni.
Nefndin er ekki síst að skoða
stöðu Ríkisútvarpsins og aðkomu
þess að auglýsingamarkaði.
Nefndin fer einnig yfir stöð-
una almennt á fjölmiðlamark-
aði. Nefndina skipa Sigtryggur
Magnason, Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir, Birgir Guðmundsson,
Magnús Þór Hafsteinsson og
Skúli Helgason. - kóp
Nýmönnuð RÚV-nefnd:
Fundað aftur
um fjölmiðla
RÍKISÚTVARPIÐ Nefnd um fjölmiðla og
stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamark-
aði hefur hist á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÖLVUR „Það rignir inn til okkar fyrirspurnum frá
foreldrum, þar sem þeir velta fyrir sér hvort þeir
eigi að leyfa börnunum sínum að skrá sig á Face-
book,“ segir Guðberg K. Jónsson, verkefnastjóri hjá
vakningarátakinu SAFT (Samfélag, fjölskylda og
tækni). Vinsældir Facebook-félagsvefsíðunnar hafa
nýverið teygt sig niður í yngstu aldurshópana.
Að sögn Guðbergs hefur það ágerst síðustu vikur
að börn hætti að nota MySpace-félagsvefsíðuna, sem
notið hefur mikilla vinsælda síðustu ár, og færi sig
yfir á Facebook. „Við fáum fyrirspurnir daglega frá
foreldrum, og þetta er auðvitað erfið spurning. Að
sjálfsögðu er það á ábyrgð foreldra hvað þau leyfa
börnum sínum að gera á netinu. Ef þessar síður eru
notaðar á skynsamlegan og uppbyggilegan hátt, og
það kemur ekki niður á náminu og öðrum tómstund-
um, þá er þetta mjög jákvæður hlutur fyrir unga og
aldna.“
Viðmiðin sem Facebook notast við er að börn
undir þrettán aldri geti ekki skráð sig á síðuna
án þess að ljúga til um aldur. Guðberg hvetur því
foreldra til að fylgjast vel með Facebook-notkun
afkvæmanna. „Það er tiltölulega auðvelt að nýta sér
öll þau öryggisatriði sem boðið er upp á varðandi
persónuupplýsingar og slíkt. Einnig er sjálfsagt að
foreldrar skilgreini aðganginn með börnum sínum,
og gott er að foreldrar barna í bekkjum setji sam-
eiginlegar reglur um netumgengni barnanna,“ segir
Guðberg K. Jónsson. - kg
Notkun Facebook-félagsvefsíðunnar hefur færst mjög í aukana hjá börnum:
Fyrirspurnunum rignir inn
FACEBOOK Verkefnastjóri SAFT brýnir
fyrir foreldrum að fylgjast vel með net-
notkun barna sinna.
GUÐBERG K.
JÓNSSON
SPURNING DAGSINS