Fréttablaðið - 25.02.2009, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 25.02.2009, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 25. febrúar 2009 19 Rösklega þrjátíu leikarar taka þátt í að ljá þessum fræga bæ líf að þessu sinni. Bærinn hefur greinilega tekið miklum breyt- ingum frá fyrri árum og áherslur fólksins sömuleiðis. Það er óneit- anlega meiri söngleikjabragur á þessari uppfærslu en þeim fyrri. Höfundurinn Thorbjörn Egner er íslenskum lesendum og áhorf- endum mjög vel kunnur. Það má segja að hann hafi í upphafi hannað sýninguna í heild sinni og var leikmynd hans í upp- færslu Þjóðleikhússins 1960. Að þessu sinni er það Brian Pilking- ton sem teiknar bæinn og bygg- ir hann að miklu leyti á fyrri myndum þótt litasamsetningin sé meira í anda nammis í poka en þeirrar fyrri. Norðmenn hafa verið svo gæfu- samir að rækta vel barnagarðinn sinn og er hlutverk Ríkisútvarps þeirra þar mikilvægt. Í elsta útvarpsbarnatíma veraldar „Lör- dagsbarnetimen“ sagði Egner börnum margar sögur, söng og spjallaði við þau. Sögusmiðja hans er stór og útgefin verk fleiri en fimmtíu. Hann ólst sjálfur upp í húsi þar sem rakari, bakari og pylsugerðarmaður voru hluti af daglega lífinu og hljóðfæraleikur allrar fjölskyldunar mikill. Kardemommubærinn er svolít- ið eins og draumur um hinn full- komna hamingjubæ. Boðskap- urinn er skýr, það er, að í öllum, jafnvel ræningjum, er eitthvað gott og allir geta orðið góðir að lokum, jafnvel hin skapstygga Soffía frænka. Í Þjóðleikhúsinu um helgina skein eftirvænting úr augum bæði barna og fullorðinna og ungir foreldrar báru saman upp- lifun sína við þá fyrri og þeir sem eldri voru höfðu sömuleiðis eldri skírskotun. Allt er breyting- um háð en grunnhugmyndin þó hin sama, að vísu var hér farið svolítið hratt yfir og lítil hvíld í einstökum atriðum. Eins og til dæmis þegar verið er að læðast bæði til að stela Soffiu og eins til að skila henni, þau atriði voru of hröð til þess að smáfólkið kæm- ist í þá stemningu sem óneitan- lega fylgir slíku næturævintýri. Ein lítil spurði: „Af hverju er hún svona?“ og gretti sig, kannski var þessi Soffia frænka ekki nógu gasaleg eða full ung og falleg. Engu að síður er Soffía frænka, sem Edda Björg Eyjólfsdóttir leikur, uppáhald og svo auðvit- að ræningjarnir. Þegar þeir birt- ust fór kliður um salinn eins og upphitunartónleikum væri lokið og nú kæmi loksins aðalhljóm- sveitin: „Þeir eru að koma, þeir eru að koma!“ kvað við úr hverj- um kima. Örn Árnason átti salinn og hvert hjarta í honum í hlutverki Kaspers og þar með hefur hann klifrað upp ræningjastigann og leikið alla þrjá bræðurna fyrir unga áhorfendur Þjóðleikhúss- ins. Hinir ræningjarnir eru hér í höndum þeirra Rúnars Freys Gíslasonar og Kjartans Guðjóns- sonar. Jesper hefur frá hendi höf- undar nokkuð erfiðara hlutverk því hann er svo ósköp venjuleg- ur. Jónatan aftur á móti er þessi hræddi og aulalegi sem hvorki þorir né nennir og Kjartan náði svo sannarlega til áhorfenda í öllum sínum óttaslegnu sveifl- um. Það sem einkenndi sýning- una í heild sinni var ógnarhraði og stirðnað bros á öllum andlitum eins og leikstíllinn væri fenginn að láni úr brúðuheimi. Það hefði svo auðveldlega mátt ná aðeins betra sambandi við leikhúsgesti með því að teygja sig örlítið út úr þessari stöðluðu mynd. Sigurður Sigurjónsson í hlutverki Tóbías- ar var í raun og veru sá eini sem braut upp þennan hasarstíl með mjúkri og skondinni nærveru hins klóka karls. Þó svo Egner hafi haft sitt eigið umhverfi í huga þegar hann samdi verkið þá hafði hann einnig verið svolítið í Alsír svo þaðan fléttar hann úlföldum og ösnum, pálma- trjám og fleiru inn í söguna. Bæði úlfaldinn og asninn hér í þess- ari sýningu voru skemmtilega útfærðir og ungir verðandi verk- fræðingar spáðu mikið í fram- og afturlappir ekki síst þegar asnan- um var lyft upp á kerruna, svona ljómandi liðugur. Birta og litagleði einkenndi búningana hér. Bæjarstjórahjón- in í meðförum þeirra Baldurs Trausta og Estherar Talíu skört- uðu bæði hinum rauða lit sem gerir alla glaða. Valur Freyr Ein- arsson í hlutverki Sörensens rak- ara spriklaði og dansaði einkar fimur í rakarasöngnum og var glettilega skemmtilegur fyrir svo utan að sokkarnir hans voru óborganlegir. Tónlistin stóð fyrir sínu í styrkri stjórn Jóhanns G. Það skiluðu allir hlutverkum sínum vel, ekki síst litlu hund- arnir sem heilluðu litlu áhorf- endurna. Það sem hefði mátt betur fara er fyrst og fremst ryþmi sýning- arinnar og eins nýting lýsingar: það er myrkurs og þeirrar dul- úðar sem það skapar. Nú verður vonandi ekki eins löng bið eftir næsta Kardemommubæ. Þjóð- leikhúsið ætti að setja hann upp alltaf á fimm ára fresti, eða einn Kardemommubæ með hverjum nýjum leikhússtjóra. Elísabet Brekkan „Ég er viss um að það var hér allt í gær“ LEIKLIST Kardemommubærinn Thorbjörn Egner Leikmynd: Brian Pilkington Búningar: María Ólafsdóttir Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson Lýsing: Lárus Björnsson og Ólafur Ágúst Stefánsson Sviðshreyfingar og dans: Birna Björns- dóttir og Guðfinna Björnsdóttir Þýðing: Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá Djúpalæk Leikstjóri: Selma Björnsdóttir ★★★ Egner með Disney-hjúp Íslenskt efnahagslíf - áskoranir og tækifæri Straumur fjárfestingabanki stendur að morgunfundi laugardaginn 28. febrúar kl. 10:00- 12:00 í Iðnó. Á fundinum verða ræddar helstu áskoranir og tækifæri Íslands í náinni framtíð. Waltraud Schelkle, sem er meðal færustu sérfræðinga á sviði efnahags- og peningamálastefnu Evrópusambandsins, mun fjalla um aðlögunarferli ríkja að stefnu sambandsins og kosti og galla aðildar. Vilhjálmur Egilsson kynnir nauðsynlegar aðgerðir til endurreisnar atvinnulífsins að mati Samtaka atvinnulífsins. Sveinn Hjörtur Hjartarsson fjallar um hagsmuni íslensks sjávarútvegs í tengslum við Evrópusambandsaðild og að lokum mun Arnór Sighvatsson fara yfir peningastefnu á óvissutímum. Raffaella Tenconi, aðalhagfræðingur og greinandi Straums mun stýra fundinum sem lýkur með pallborðsumræðum. Laugardagur 28. febrúar 2009 - Iðnó Nauðsynlegar aðgerðir til endurreisnar atvinnulífsins Dr. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri, Samtök atvinnulífsins Kostir og gallar aðildar að Evrópusambandinu Dr. Waltraud Schelke, dósent, Hagfræðideild Evrópumiðstöðvar London School of Economics ESB og sjávarútvegurinn Sveinn Hjörtur Hjartarsson, aðalhagfræðingur, LÍÚ Peningastefna á tímum óvissra gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands Pallborðsumræður og fyrirspurnir Fundarstjóri er Raffaella Tenconi, aðalhagfræðingur Straums. 10:00 10:20 10:40 11:00 11:20 Fundurinn fer fram á ensku og er engin aðgangseyrir. Skráning fer fram í síma 585-6600 eða með tölvupósti á receptionreykjavik@straumur.com Söngnámskeið 7 vikna námskeið byrja 2. mars Söngtækni og -túlkun / Tónfræði Sími 552 7366 songskolinn@songskolinn.is www.songskolinn.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.