Fréttablaðið

Ulloq
  • Qaammatit siuliiFebruary 2009Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    2324252627281
    2345678
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttablaðið - 25.02.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 25.02.2009, Qupperneq 10
10 25. febrúar 2009 MIÐVIKUDAGUR Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Félagsfundur VR verður haldinn á Hilton Nordica hótel Reykjavík, miðvikudaginn 25. febrúar nk. kl. 19:30. Dagskrá: 1. Kynning frambjóðenda til trúnaðarstarfa fyrir VR 2. Fyrirspurnir og umræður Félagsmenn hvattir til að mæta. Fundurinn verður sendur beint út á Mínum síðum á vr.is Kosningar í VR EFNAHAGSMÁL Þingflokkar allra flokka sem sæti eiga á Alþingi fjalla nú um tillögu stjórnarflokk- anna um stjórnlagaþing. Sam- kvæmt tillögunni mun 41 þingfull- trúi verða kjörinn persónukjöri á þingið. Þetta kom fram á fundi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjár- málaráðherra í Þjóðmenningarhús- inu að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Bæta þyrfti ákvæði um stjórn- lagaþing í stjórnarskrána til að það verði að veruleika. Verkefni stjórnlagaþingsins yrði að endur- skoða stjórnarskrána. Alþingi þarf að gefa umsögn sína um nýja stjórnarskrá áður en hún verður samþykkt. Að því loknu þarf í það minnsta fjórðung- ur kosningabærra manna að sam- þykkja nýja stjórnarskrá í þjóðar- atkvæðagreiðslu til að hún öðlist gildi. Stjórnvöld stefna að því að settar verði nánari reglur um skipulag stjórnlagaþings og kosn- ingu fulltrúa á þingið eftir kosn- ingar í vor. Jóhanna segir að einnig sé lagt til að ákvæði stjórnarskrárinnar um að kjósa þurfi um breytingar á stjórnarskránni á Alþingi, kjósa til þings, og svo kjósa um breyting- arnar á Alþingi aftur verði breytt. Í staðinn skuli bera breytingar á stjórnarskrá undir þjóðaratkvæði. Í þessu samhengi segir Jóhanna að fjalla þurfi um þjóðaratkvæða- greiðslur. Meðal þess sem taka þurfi afstöðu til sé hin svokallaða danska leið, þar sem þriðjungur þingmanna getur krafist þjóðarat- kvæðagreiðslu. Einnig sú leið að 30 þúsund kjósendur geti krafist þjóð- aratkvæðagreiðslu. Breytingar á stjórnarskrá eiga einnig að ná til náttúruauðlinda. Stjórnvöld leggja því til að ákvæði um að ríkið megi ekki afsala sér náttúruauðlindum varanlega verði fest í stjórnarskrá. Frumvarp um persónukjör hefur einnig verið sent þingflokkunum, sagði Jóhanna. Verði það að lögum munu flokkar geta boðið fram órað- aðan lista og látið kjósendum eftir að raða frambjóðendum í sæti. Það mun þó ekki útiloka hefðbundna lista. Flokkunum verði í sjálfs- vald sett hvort þeir notist við hefð- bundna lista eða óraðaða. brjann@frettabladid.is Tillaga um stjórnlaga- þing tilbúin Tillögum um breytingar á stjórnarskrá hefur verið vísað til þingflokka. Setja á inn ákvæði um að bera verði stjórnarskrárbreytingar undir þjóðaratkvæði og að ríkið megi ekki afsala sér náttúruauðlindum. SPEGILL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra spegluðust skemmtilega í bókaskápunum í Þjóðmenningarhúsinu á vikulegum fundi fulltrúa ríkisstjórnarinnar með fjölmiðlafólki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRETLAND Yfirmenn hjá bresku verslanakeðjunni Waitrose ferð- uðust til Íslands fyrir tveimur vikum til að kanna hvort við- skiptamenn keðjunnar hefðu tengsl við hvalveiðar, sagði á heimasíðu Guardian í gær. Jeremy Langley, sérfræðing- ur Waitrose í fiskafurðum, segir athugunina hafa leitt í ljós að enginn viðskiptaaðila Waitrose á Íslandi hafi nokkur tengsl við hval- veiðar. Einnig er haft eftir Langley að yfirmennirnir hafi fundað með Steingrími J. Sigfússyni og fleiri háttsettum aðilum. Steingrím- ur segist ekki muna eftir slíkum fundi, en mögulegt sé að aðilarn- ir hafi fundað með aðstoðarmanni sínum. Waitrose hefur mótmælt ákvörð- un um hvalveiðikvóta til fimm ára. - kg Yfirmenn hjá Waitrose: Könnuðu tengsl við hvalveiðar Skipað hefur verið fólk í nefndir sem semja eiga um Icesave-reikningana annars vegar og lán erlendra ríkja hins vegar. Aðeins einn nefndar- maður í nefndunum, sem eru á for- ræði fjármálaráðuneytisins, er kona. Níu karlar eiga sæti í nefndunum tveimur. Þetta virðist ganga beint gegn ákvæði jafnréttislaga. Þar segir að í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli, þar sem því verði við komið, sitja sem næst jafnmargar konur og karl- ar. Í samninganefnd vegna Icesave- skuldbindinga, sem Svavar Gestsson sendiherra stýrir, situr ein kona og fimm karlar. Í samninganefnd vegna lána vinaþjóða, sem Jón Sigurðsson stýrir, sitja fjórir karlar en engin kona. Ýmsir skipa í nefndirnar, til dæmis forsætisráðuneyti, fjármála- ráðuneyti, viðskiptaráðuneyti og Seðlabankinn. AÐEINS EIN KONA Í NÝJU NEFNDUNUM ASTEKAR MINNAST KEISARA Þessi asteki í Ixceteaopan í Mexíkó tók þátt í hátíðarhöldum til að minnast fæðingar Guauthemok, síðasta keisara astek- anna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SELTJARNARNES Fordómar bæjar- stjórnarmanna á Seltjarnarnesi réðu því að ekki er veitt rekstrar- leyfi fyrir Rauða ljónið á Eiðis- torgi. Þetta segir Hafsteinn Egils- son sem sótti um leyfið en því var hafnað um jákvæða umsögn hjá bæjarstjórninni hinn 11. febrúar síðastliðinn. „Það hefur komið fram í máli bæjarfulltrúanna, meðal annars þegar ég hef talað við þá persónu- lega, að forsagan sé sú að sá sem rak staðinn síðast hafi brotið öll lög og reglur og þar af leiðandi vilji þau ekki veita leyfið aftur,“ segir Hafsteinn. „Þetta er í raun svipað ef bæjarstjórnin ákvæði að leggja Gróttu niður þar sem síðasti þjálf- ari hafi verið svo lélegur,“ bætir hann við. „Ég hef verið í þessum bransa í 40 ár og hef ekki áhuga á því að enda ferilinn með því að brjóta lög og reglur.“ Hann segir vanta slíkan stað í menningar- og mannlífi Seltjarnar- ness. „Það var sorglegt að sjá það um daginn þegar Grótta vann Sel- foss í körfuboltanum og 800 manns vildu fá sér bjór og fagna sigri en til að gera það urðu þeir að fara í miðbæ Reykjavíkur.“ Hann segir að mörgum sé það kappsmál að staðurinn verði opnaður, meðal þeirra eru íbúar á Eiðistorgi. Hann segist vongóður um að bæjar- stjórnin endurskoði afstöðu sína í ljósi þess að hann vilji hafa styttri afgreiðslutíma en forveri sinn. - jse Veitingamaður á Seltjarnarnesi segist þurfa að líða fyrir mál fyrirrennara síns: Segist líða fyrir fordóma bæjarins HAFSTEINN EGILSSON Veitinga- manninum þykir það ósanngjarnt að hugmyndir hans nái ekki fram að ganga vegna slælegrar framgöngu fyrrum veitingamanns. HAFNARFJÖRÐUR Lokunartími Suðurbæjarlaugar í Hafnarfirði frá 1. júní til 10. júlí í sumar er ekki valinn af handahófi, sam- kvæmt Steinunni Þorsteinsdóttur, upplýsinga- og kynningarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar. Fréttablaðið sagði í gær frá óánægju laugargesta með þá ákvörðun að loka lauginni á besta tíma, hvað veður varðar. Steinunn segir meðal annars að ekki sé hægt að loka laug- inni meðan á skólasundkennslu standi. Auk þess komi þúsund fleiri gestir í laugina í júlí en í júní. Laugin sé orðin gömul og kominn tími á viðgerðir. - kg Lokun Suðurbæjarlaugar: Ekki valinn af handahófi STJÓRNMÁL Hópur framsóknar- manna í Suðvesturkjördæmi leitar logandi ljósi að frambjóðanda til að bjóða sig fram gegn Siv Friðleifs- dóttur í efsta sætið í kjördæminu, samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins. Enn sem komið er hefur þeim ekki orðið kápan úr því klæðinu. Jóhann Benediktsson, fyrrver- andi lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfestir í samtali við Fréttablað- ið að hart hafi verið að sér sótt til að sækjast eftir fyrsta sæti í kjör- dæminu. „En hugur minn horf- ir annað en til stjórnmála,“ segir Jóhann. „Þrátt fyrir margar áskoran- ir mun ég ekki bjóða mig fram,“ segir Marteinn Magnússon, full- trúi flokksins í bæjarstjórn Mos- fellsbæjar. „En hins vegar get ég staðfest það að ég skynja að fram- sóknarmenn í kraganum kalla á enn meiri breytingar.“ Einar Bolla- son, varaformaður kjördæmis- stjórnar í Suðvesturkjördæmi, lagði fram þá tillögu á kjördæmis- þingi um þarsíðustu helgi að Siv tæki annað sætið. „Ég hef ekki heyrt þessa hug- mynd viðraða annars staðar,“ segir Siv. Hún óttast ekki að hún eigi eftir að gjalda fyrir kröfu um endurnýjun. „Ég heyri ein- mitt kröfu í þá átt að það megi alls ekki koma allri reynslunni frá. Við erum aðeins þrjú sem bjóð- um okkur fram til áframhaldandi starfa svo það verður dágóð endur- nýjun.“ - jse Skorað var á Jóhann Benediktsson að fara fram: Leita að keppinauti sem fari gegn Siv

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar: 49. tölublað (25.02.2009)
https://timarit.is/issue/280454

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

49. tölublað (25.02.2009)

Iliuutsit: