Fréttablaðið - 25.02.2009, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 25. febrúar 2009 1
Drepum alltaf á bílum
þegar áð er. Bíll í lausa-
gangi veldur óþarfa
mengun og er hættu-
legur.
Ferðahandbók
fjölskyldunnar
SÉRFERÐIR
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Mikið hefur verið gert fyrir útlit
Toyota Avensis sem frumsýndur
var á Íslandi á dögunum. Bíllinn
hefur verið endurhannaður og fátt
líkt með gömlu og nýju gerðinni.
Fyrst ber að nefna ytra útlit sem
er straumlínulagað og ljóst að hugað
hefur verið að loftflæði og flæðandi
línum. Grillið setur sérstakan svip á
bílinn og ný ljós að framan og aftan
gera hann töffaralegan.
Við hönnun bílsins var hugað að
öryggi farþega og gangandi veg-
farenda. Stuðari bílsins var útbú-
inn til að valda sem minnstum
skaða en inn í bílnum eru loftpúð-
ar á ýmsum stöðum auk þess sem
sætin eru með virkum höfuðpúðum
og komi högg aftan á bílinn þrýst-
ast höfuðpúðarnir fram og draga
úr höfuðhhnykk. Önnur nýjung er
tengist öryggi eru afturljósin sem
blikka þegar ökumaður nauðheml-
ar. Þannig getur ökumaður fyrir
aftan ruðgðist hraðar við, en talið
er að slíkt kerfi geti dregið úr aft-
anákeyrslum um 50 prósent.
Innra rými Avensis er fágað
og stílhreint. Þar má einnig sjá
nokkrar nýjungar. Til dæmis raf-
stýrða handbremsu og hólf í aftur-
sæti sem má opna aftur í rúmgott
skott þannig að flutningar á gard-
ínustöngum og skíðum verður lítið
mál.
Fjórar vélastærðir eru í boði, 1,8
og 2,0 bensínvélar og 2,0 og 2,2 lítra
dísilvélar. Þá er bíllinn með hinu
nýja Toyota Optimal Drive-kerfi
sem á að minnka eldsneytisnotkun
og útblástur en hámarka afköst. Í
hnotskurn er Avensis hinn fínasti
fjölskyldubíll sem hentar bæði í
skutl innanbæjar og í langferðir
um Ísland. - sg
Fallegur fjölskyldubíll
Toyota frumsýndi nýja kynslóð Avensis á dögunum. Fátt er líkt með nýju og gömlu útgáfunni enda um
algerlega nýja hönnun að ræða, bæði í ytra byrði, innra útliti og í vélarrúmi.
Sniðugt hólf er í aftursæti sem opnast
aftur í rúmgott skott.
Nýr Toyota Avensis var frumsýndur á Íslandi nýlega. Útlit nýja bílsins er stílhreint og
fágað en Avensis hefur verið endurhannaður frá upphafi til enda.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS stendur fyrir
GPS-námskeiði fyrir göngufólk 26. febrúar.
Námskeiðið fer fram í Mörkinni 6 klukkan
20. Sjá nánar á www.fi.is
Keilir er áberandi fjall og þaðan
er mikið útsýni um Reykjanesið.
Ferðafélagið Útivist stendur fyrir
fjölbreyttum dagsferðum. Í mars
verður til dæmis farið að Hvíta-
nesi, upp á Ingólfsfjall, umhverfis
Hlíðarvatn í Selvogi og upp á fjall-
ið Keili á Reykjanesskaga.
Gengið verður á Keili 22. mars
næstkomandi. Keilir er mjög áber-
andi fjall. Því veldur lögun þess og
það að ekkert annað fjall skyggir
á Keili. Á þetta fjall fer Útivist á
hverju ári enda var fyrsta ferð
félagsins farin þangað.
Dagsferð á
fjallið Keili
Keilir er fallegur á að líta.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN