Fréttablaðið - 25.02.2009, Blaðsíða 30
8 25. febrúar 2009 MIÐVIKUDAGUR
Á næstu vikum og mánuðum er áætlað að 10 fyrirtæki komist
í greiðsluþrot dag hvern. Nýjustu
tölur frá Vinnumálastofnun segja
að nú séu 16.000 manns á atvinnu-
leysisskrá. Þegar ný ríkisstjórn tók
við keflinu sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir, forsætisráðherra, að verk-
efni nýrrar stjórnar væri fyrst og
fremst að reisa við atvinnuvegina
og mynda skjaldborg um heimilin
í landinu. Í trausti þess ákváðum
framsóknarmenn að verja minni-
hlutastjórn Samfylkingarinnar og
Vinstri Grænna vantrausti.
Það er sannfæring okkar að
ekkert er mikilvægara en að verja
heimilin og fyrirtækin í landinu.
Það verður ekki gert með ósk-
hyggju eða fallegum orðum, heldur
aðeins með raunverulegum aðgerð-
um og einbeittum vilja.
Lækkun vaxta
Háir stýrivextir eru að sliga
íslensk heimili og fyrirtæki. Á
sama tíma og helstu viðskiptalönd
okkar eru að bregðast við minnk-
andi eftirspurn með því að lækka
stýrivexti, allt niður í núll pró-
sent, býr íslenskur almenningur
við okurvexti.
Öll rök hníga að því að lækka
vexti og þarf vaxtalækkunarferl-
ið að hefjast strax í samráði við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Helstu
rök fyrir lækkun vaxta eru mikill
samdráttur í íslensku efnahagslífi,
hratt lækkandi verðbólga, jákvæð-
ur vöruskiptajöfnuður, mikið
atvinnuleysi og minnkandi eftir-
spurn eftir þjónustu og vörum.
Aðgerðir fyrir heimilin
Skuldir eru að sliga íbúa landsins.
Ekki er hægt að bíða lengur með
að skera þjóðina úr hengingaról-
inni, og losa um skuldaklafann.
Við leggjum til að öll húsnæð-
islán verði færð frá bönkunum
til Íbúðalánasjóðs, miðað við þá
afskrift sem varð á lánasöfnun við
flutninginn yfir til nýju bankanna.
Íbúðalánasjóður veitir síðan flata
20% niðurfellingu skulda vegna
allra húsnæðislána hjá sjóðnum.
Þannig yrði tryggt jafnræði milli
þeirra sem áttu húsnæðislán hjá
bönkunum og Íbúðalánasjóði.
Þetta byggist á því að nýju bank-
arnir fengu lánasöfn gömlu bank-
anna með verulegum afslætti.
Þannig eru erlendu kröfuhafarn-
ir búnir að afskrifa eignir í gömlu
íslensku bönkunum, sumir jafnvel
að öllu leiti.
Nauðsynlegt er að koma fast-
eignamarkaðnum aftur af stað. Við
leggjum til að hámarkslán sjóðsins
verði 30 milljónir en að lánshlut-
fall verði jafnframt lækkað í 70%.
Þannig nýtist lán frá sjóðnum til
kaupa á fleiri eignum en áhætta
sjóðsins er minnkuð að sama skapi.
Stimpilgjöld á fasteignaviðskiptum
yrðu afnumin.
Snúum hjólum atvinnulífsins
Há vaxtabyrði og gjaldeyrishöft
eru að þurrka upp lausafé í land-
inu og því þarf að auka peninga-
magn í umferð. Í fyrsta lagi verði
lífeyrissjóðum gert kleift að eiga
gjaldeyrisviðskipti. Lífeyrissjóð-
irnir eiga miklar eignir erlendis.
Með því að leyfa þeim að stunda
gjaldeyrisviðskipti geta þeir selt
eignir erlendis og keypt krón-
ur á hagstæðum kjörum af þeim
erlendu aðilum sem eiga krónu-
eignir og vilja selja þær. Samhliða
þessu mun ríkið ábyrgjast lán til
skamms tíma á milli banka, til að
koma aftur á stað millibankamark-
aði með krónur. Þetta gerir bönk-
unum kleift að lána fyrirtækjum á
ný. Í þriðja lagi leggjum við til að
stjórnvöld komi á stofn sjóði sem
kaupir eignir, til dæmis lán, af
bönkunum fyrir ríkisbréf.
Allt þetta mun auka peninga-
magn í umferð til muna og tryggja
að hjól atvinnulífsins fari að snúast
á nýjan leik.
Endurskipulagning fjármálakerf-
isins
Stór þáttur í að tryggja trúverðug-
leika og traust á nýju bönkunum og
á íslensku efnahagslífi er að kröfu-
hafar eignist hlut í nýju bönkunum.
Hætta er á að með setningu neyðar-
laganna þann 6. október hafi ríkið
skapað sér bótaskyldu gagnvart
kröfuhöfum. Með því að kröfu-
hafar eignuðust hlut í nýju bönk-
unum yrði hlutur þeirra réttur
og tryggt að hagsmunir þeirra og
Íslands færu saman við uppbygg-
ingu bankanna og efnahagslífsins.
Kröfuhafar myndu þannig sjá sér
hag í að færa eignir úr gömlu bönk-
unum yfir í þá nýju á lægra verði
til að styrkja nýju bankana.
Samhliða þessu verður skipt um
yfirstjórn í Seðlabankanum.
Sannfæring okkar
Alltof oft að undanförnu hafa
stjórnmál snúist um smámuni.
Stjórnmál eiga að snúast um að
fylgja hugsjónum sínum og sann-
færingu. Þingmenn eiga að sjálf-
sögðu að hafa frelsi til að fylgja
sannfæringu sinni og Alþingi á
að sinna hlutverki sínu sem æðsta
valdastofnun landsins. Hlutverk
ríkisstjórnarinnar á að vera að
framfylgja vilja þingsins.
Hlutverk þeirra sem sitja á
Alþingi er að koma hjólum atvinnu-
lífsins í gang og standa vörð um
heimilin í landinu.
Við teljum að efnahagstillög-
ur okkar geri það kleift á þeim
skamma tíma sem er til kosninga.
Aðeins með samvinnu og sann-
girni getum við byggt upp betra
Ísland.
Endurreisn efnahagslífsins
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
Formaður
Framsóknarflokksins
BIRKIR JÓN
JÓNSSON
Varaformaður
Framsóknarflokksins
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
Ritari
Framsóknarflokksins
Byggjum betra Ísland
Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til
að koma þér af stað á mjög árangurs ríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins
er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 2. mars
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
fyrir konur og karla
María Másdóttir
Við systurnar ætluðum einungis á eitt námskeið en þau urðu þrjú og
árangurinn lét svo sannarlega ekki á sér standa. Misstum 23 kíló til
samans á þremur mánuðum. Það eigum við Gunnari Má þjálfara og
starfsfólkinu á Nordica Spa að þakka. Frábært aðhald, skemmtun, útrás
og vellíðan. Við gátum þetta og því getur þú þetta líka.
Frábær leiðsögn, frábær stöð og mesta aðhald sem hægt er að fá.
Betra en einkaþjálfun! Svo er líka fínt að kílóin fuku og orkan hefur aukist
og almenn vellíðan. Ég missti 6,2 kg á 4 vikum. Ég gerði þetta af
skynsemi og þú getur það líka!
MISSTUM 23 KÍLÓ ÉG GERÐI ÞETTA AF SKYNSEMI
ÞÚ GETUR ÞAÐ LÍKATIL SAMANS Á 3 MÁNUÐUM
Kristbjörg og Guðbjörg Sveinbjörnsdætur