Fréttablaðið - 25.02.2009, Side 34
860 72 900milljóna króna hagnaður var á starfsemi MP Banka eftir skatta á síðasta ári sam-kvæmt nýbirtu uppgjöri. milljarðar króna falla á ríkissjóð vegna Icesave-innlána Landsbankans samkvæmt áætlun þeirri sem skilanefnd bankans lagði
fyrir kröfuhafa fyrir helgi.
milljóna dollara tap varð á starfsemi álrisans
Century Aluminum í fyrra samkvæmt uppgjöri.
Upphæðin nemur nærri 101 milljarði króna.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Í þessum dálki fyrir um hálf-
um mánuði var rúm hundrað
prósenta hækkun á gengi hluta-
bréfa í Straumi á einum mánuði
gerð að umfjöllunarefni. Nefnt
var að áhættusæknir fjárfestar
hlytu að vera kátir. Þar voru for-
sendurnar þær, eins og tíðkaðist
á Gamla Íslandi, að fjárfestar
væru séðir; komi inn í lægsta
gildi, sörfi með uppsveiflunni,
landi hagnaði á hæsta punkti
og drepi tímann á barnum fram
að næsta svingi. Önnur veröld
blasir við í dag. Fjárfestar hafa
almennt lítið milli handanna eftir
síharðnandi kreppu og aðgengi
að fjármagni er nær ekkert,
hvað þá til hlutabréfakaupa.
Fjárfestar fá því eitt tækifæri.
Stefni hlutafjáreignin niður á
við eiga þeir miskunnar-laust
veðkall yfir höfði sér og verð-
ur þess langt að bíða að annað
tækifæri gefist á hlutabréfa-
markaðnum. Forsendurnar eru
að sjálfsögðu þær, að enn sé til
sá einstaklingur á skerinu, sem
stundar hlutabréfaviðskipti.
Einn svinger
Þegar góðæri ríkti á Íslandi og
peningar spruttu upp úr hverri
hraunsprungu líkastir mosa-
lyngi var hægt að græða þvílík-
ar fjárhæðir á hérlendum hluta-
bréfamörkuðum að setningin
„böns of monní“, sem Megas
notaði um þau peningaverðlaun
sem hann landaði með verðlaun-
um Jónasar Hallgrímssonar á
Degi íslenskrar tungu fyrir níu
árum, náði ekki yfir nema smá-
brot af gróðanum. Eftir banka-
hrunið í október og vægast sagt
rússíbanareið Íslands út úr teit-
inu með ríkustu
þjóðum heims
má gefa sér að
„böns of monní“
sé aftur orðinn
heill hellingur
af pening-
um.
Böns of monní
Mannskepnan er gjörn á
að skammstafa alla skap-
aða hluti, ekki síst erlendis.
Skammstöfunin EFMA barst inn
á borð Markaðarins í vikunni.
Þegar grennslast var fyrir um
málið gegna því tvö samtök.
Önnur eru Samtök áburðafram-
leiðenda í Evrópu (e. European
Fertilizer Manufacturers
Association), hin eru Samtök
evrópskra fjármálafræðinga (e.
European Financial Management
Association), sem samanstanda
af lærðum og leikum sem áhuga
hafa á lausnum fjármálatengdra
vandamála. Af
þ e i m
er nóg
að taka
í dag,
reyndar orðið
vafamál hvor
samtakanna
standi nær
því að standa
í skítmokstri …
Í flórnum
Kannaðu rétt
þinn til bóta
Reykjavík ı Akranes ı Borgarnes ı Ísafjörður ı Blönduós ı Sauðárkrókur ı Akureyri ı Egilsstaðir ı Vestmannaeyjarwww.pacta.is