Fréttablaðið - 25.02.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er miðvikudagurinn
25. febrúar, 56. dagur ársins.
8.49 13.41 18.34
8.39 13.26 18.14
„Veita
persónulega
ráðgjöf.“ Kona, 39 ára.
Í dag, miðvikudaginn 25. febrúar,
sitja ráðgjafar okkar við símann.
Rágjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins og
Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum
Íslandsbanka.
Hringdu í okkur á milli kl. 17 og 21
í síma 440 4000.
Getum við aðstoðað?
Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í
útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki
starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka.
Á islandsbanki.is getur þú einnig pantað fjármála-
viðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með
okkur og fara ítarlega yfir stöðuna.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
Þú ert búinn að vera að sverta bankann minn,“ sagði Davíð
Oddsson við Sigmar Guðmunds-
son í Kastljósi gærkvöldsins.
Það er enginn agi í þjóðfélaginu,
sagði hann síðar í viðtalinu og í
millitíðinni ræddi hann um þann
fjölda fólks sem staðið hefur
norpandi fyrir utan Seðlabank-
ann og barist fyrir sannfæringu
sinni. Þeirri sannfæringu sinni
að Davíð eigi að víkja. Um þetta
fólk hafði Davíð það að segja að
einhverjir væru í því að „flytja
fólk að Seðlabankanum“.
DAVÍÐ var í gærkvöldi í ein-
hverju lengsta varnarviðtali sem
sést hefur í seinni tíð. Hann fór
yfir ferilinn í aðdraganda banka-
hrunsins og sagði frá sínum við-
vörunum og fór yfir það sem gert
hefur verið síðan. Jú vissulega
hefðu allir getað gert mistök,
fékkst upp úr Davíð, en ljóst var
að í raun fannst honum það varla
eiga við um sig.
OG láti Davíð svo lágt að lesa
þennan pistil mun hann líta á
hann sem enn eina árás Baugs-
veldisins í sinn garð. Það kom
nefnilega berlega í ljós að Davíð
er í stríði. Hann er að verja bank-
ann sinn og kannski umfram allt
heiður sinn. Og að honum veitast
vondir menn, með Jón Ásgeir í
broddi fylkingar.
SÉRKENNILEG var líka kvört-
un Davíðs um að ekki væri réttu
hlutunum haldið að fólki. Allir
sem vinna við fjölmiðla hafa
reynt að ná í Davíð án árangurs
til að fá hans sjónarmið. Hann
hefur haft næg tækifæri til að
halda „réttu hlutunum“ að fólki,
en hefur ekki látið svo lítið að
ræða við fjölmiðla. Enda sást
langar leiðir hve honum mislík-
aði að þurfa að standa fyrir máli
sínu í gærkvöldi.
OG Davíð sagðist ekki hafa
orðið var við óánægju í sinn garð.
Þar sem augljóst er að Davíð er
hvorki heyrnarlaus né blindur
skýrist það eingöngu út frá þeirri
vissu hans að hann sé í baráttu
gegn her andstæðinga. Og þenn-
an her ber ekki að virða. Þetta
er fólk á mála Baugs sem lætur
flytja sig að Seðlabankanum að
baula eins og gripirnir sem Davíð
telur þá vera.
ÞVÍ hvernig sem veröldin velk-
ist veit Davíð að Davíð hefur rétt
fyrir sér. Og skiptir þá eitthvað
annað máli?
Bankinn minn
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé