Tíminn - 04.04.1992, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 4. apríl 1992
Fleiri þúsund trjáplöntum fargað vegna framkvæmda Hitaveitu Reykjavíkur við Rauðavatn:
Græölingamir
jarðaöir við
Rauðavatn
Nú standa yfir framkvæmdir á vegum Hitaveita Reykjavíkur við svo-
kallaða suðuræð, sem liggur frá hitaveitutönkum við Grafarholt
suður í Kópavog og Hafnarfjörð. Vegna þessara framkvæmda hefur
verið iagður vegur í gegnum skóglendi við suðurbakka Rauðavatns,
þar sem til stendur að leggja æðina. Hafa verið eyðilagðar fleiri þús-
und piöntur og mest nýgræðlingar sem plantað hefur verið á síð-
ustu þremur árum. í síðasta tölublaði Tímans var haft eftir Gunnari
Helgasyni, forstöðumanni ráðningastofu Reykjavíkur, að hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur yrðu 200 fleiri störf en f fyrra.
Komið hefur upp ónægja hjá íbú-
um í nágrenninu, eins og kom fram
í lesandabréfi sem einn þeirra ritar í
Morgunblaðið í gær. Þeim sárnar að
horfa upp á eyðilegginguna út um
stofugluggann. Við framkvæmdirn-
ar hefur verið beitt stórvirkum
vinnuvélum og hafa fleiri þúsund
plöntur nú þegar farið undir vega-
gerð og eiga miklu fleiri eftir að bæt-
ast við. Á þessu svæði voru gróður-
settar um 600 þúsund plöntur á síð-
asta ári, rúmlega hálfu ári áður en
þessar framkvæmdir hófust. „Þaö
skal játað að það er smásvæði sem
fer undir framkvæmdir. Það var nú
reyndar ekki gróðursett á þessu
svæði t fyrra, en það var gert fyrir
þremur árum og þá var þessi æð ekki
komin á dagskrá. Þetta er nú bara
eins og gerist í borgarskipulagi að
skipulagsbreytingar koma skyndi-
lega og það verður aldrei hægt að
komast hjá þessu. Við fjarlægðum
allar þær plöntur sem hægt var og
ég vil ekki meina að hér séu á ferð-
inni stórkostlegar náttúruhamfarir.
Auðvitað sárnar manni þegar svona
fer og það er alltaf dapurt að þurfa að
tvívinna hlutina, en eins og ég sagði,
það verður aldrei komist hjá þessu
að einhverju leyti," sagði Vilhjálmur
Sigtryggsson, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Reykjavíkur. Vil-
hjálmur segir ennfremur að fram-
kvæmdirnar hafi verið ákveðnar í
samráði við Skógræktarfélagið og
það hafi verið reynt að fara yfir þá
staði sem minnst var af plöntum.
Jafnframt hafi verið rætt um að veg-
urinn yrði notaður sem umferðaræð
um þetta svæði, þannig að þrátt fyrir
að það væri ýmislegt dapurt við
þetta þá mætti einnig finna ýmislegt
jákvætt. Gunnar Kristinsson hita-
veitustjóri sagði í samtali við Tím-
ann að eftir að kostnaðartölur hefðu
verið skoðaðar hefði þetta verið besti
kosturinn. Æðin er dýr, eða um 100
þúsund krónur á metrann, og því
hefði ekki verið talið hagkvæmt að
krækja fram hjá skóginum. „Við er-
um ekki vanir að böðlast beint af
augum og ég reikna með að þetta
hafi verið skoðað ofan í kjölinn,"
sagði Gunnar Kristinsson hitaveitu-
stjóri. -PS
Mörgum þykir groddalega aö verki staðið að leggja veg og hitaveitu-
leiðslu yfir skógræktarsvæöi við Rauðavatn. Vegurínn liggur yfir
svæði þar sem unglingar plöntuðu þúsundum trjáplantna fyrírfáum
árum. Sú vinna þykir þarna fara fyrir iítið. Tímamynd Ami Bjama
Verslun ‘92 sett á Holiday Inn í gær:
Smásalar
veltu í fyrra
100 M. kr.
Verslun ‘92, ráðstefna Kaup-
mannasamtakanna, hófst á
Hótel Holiday Inn í gær. Ráð-
stefna sem þessi er orðin fast-
ur liður í starfsemi Kaup-
mannasamtakanna, en í tengsl-
um við hana nú er í fyrsta
skipti sett upp sýning þjón-
ustufyrirtækja, þar sem kynnt-
ar eru helstu nýjungar í tækj-
um og búnaði fyrir smásölu-
verslanir.
Breyttir tímar? Þetta gamla sendla-
hjól frá Sunnubúöinni stingur
óneitanlega i stúf viö hátækni-
væddan tölvubúnaö frá Einari J.
Skúlasyni hf. sem stillt er upp viö
hliöina á því á sýningunni Verslun
‘92. Bjarni Finnsson, formaöur
Kaupmannasamtakanna, brá á leik
í tilefni opnun ráöstefnunnar og
mátaði sig viö gamla fákinn.
Tfmamynd Ami Bjama
Að sögn Bjarna Finnssonar, for-
manns Kaupmannasamtakanna,
hafa orðið verulegar breytingar í
matvöruversluninni undanfarin
misseri, með aukinni samkeppni og
hagræðingu í greininni.
Það sem öðru fremur hefur ein-
kennt þróunina í matvöruverslun-
inni eru stærri einingar og mynd-
un verslanakeðja, en að sögn
Bjarna má búast við að sömu breyt-
ingar eigi eftir að ganga í gegn í
sérvöruverslun í framtíðinni.
Hér á landi stunda um 1.700 aðil-
ar smásöluverslun og á síðasta ári
var velta greinarinnar um 100
milljarðar króna. Þetta samsvarar
því að um 60% af ráðstöfunartekj-
um heimilanna fari um hendur
smásölukaupmanna. Þessi rekstur
stendur undir rúmlega átta þúsund
ársverkum, en það eru um 7% af
heildarfjölda ársverka í landinu.
ÁG.
Fatahönnuð-
ir úr Iðn-
skólanum
Þessir glæsilegu brúðarkjólar eru hannað-
ir og saumaðir af Huldu Kristinsdóttur og
Birnu Ágústsdóttur en þær eru nemendur
við Iðnskólann í Reykjavík og hafa lært
fatasaum og fatahönnun.
Fatahönnunardeildin heldur sýningu á
verkum nemenda á Hótel íslandi í dag og
hefst sýningin kl. 17. Brúðarkjóllinn með
blúndunum er eftir Huldu Kristinsdóttur
og sú sem klæðist honum er Margrét Krist-
insdóttir. Perlusaumaði kjóllinn er eftir
Birnu Ágústsdóttur. Sú sem klæðist hon-
um er Inga Rún Harðardóttir.
Stjórn Sambands ungra
framsóknarmanna rifjar upp
deilur Alþýðuflokksmanna og
framsóknarmanna frá því í
^jðustu kosningum:
Asakanir á
hendur krötum
voru réttar
Stjórn sambands ungra framsóknar-
manna lýsir furðu sinni á yfirlýsingu
Jóns Baldvins Hannibalssonar utan-
ríkisráðherra í nýútkominni skýrslu
um utanríkismál. Þetta kemur fram
í nýútkominni ályktun stjómar SUF.
í ályktun ungra framsóknarmanna
segir að nú sé komið á daginn að
fullyrðingar Framsóknarflokksins í
síðustu kosningum, um að Alþýðu-
flokkurinn hefði hug á aðild að Evr-
ópubandalaginu, séu réttar.
Orðrétt segir í ályktuninni: „Þessi
fullyrðingi olli á sínum tíma miklu
upphlaupi meðal Alþýðuflokks-
manna og var þetta tilgreint sem ein
ástæða þess að flokkurinn hefði ekki
getað haldið fyrra stjómarsamstarfi
áfram, vegna þess að þama hefði
Framsóknarflokkurinn borið ósann-
indi á Alþýðuflokinn. Stjórn SUF
spyr Alþýöuflokksmenn hvað hafi
breyst, nú þegar utanríkisráðherra
segir að skoða beri aðild að Evrópu-
bandalaginu sem mögulegan kost.“
-ÁG.
Hnífsárás í
Hafnarfirði
Ungur maður var stunginn með
hnífi í brjóstið á heimili sínu í Hafn-
arfirði í gærmorgun. Hnífurinn
snerti annað lunga mannsins og var
gert að sári hans á Borgarspítalan-
um. Hann er ekki í lífshættu.
Tveir menn hafa verið handteknir
vegna þessa máls og Rannsóknar-
lögregla ríkisins yfirheyrði þá í gær.