Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. apríl 1992
Tíminn 3
Hækkun mánaðartekna ASÍ sétta
1990 1991
Verkakonur..... 80.000 83.400 4%
Afgr.konur..... 83.000 86.600 4%
Skrifst.kon.... 87.500 95.000 9%
Verkakarl....... 101.500 104.700 3%
Afgr.karl........113.100 130.300 15%
Skr.karl.........127.100 136.900 8%
Iðnaðarm........ 132.700 140.800 6%
Allir........... 102.700 108.400 6%
Eitthvað virðist hér hafa mistekist
um mestar kauphækkanir til þeirra
Iægst launuðu?
I fréttatilkynningu Kjararann-
sóknamefndar segir að helstu nið-
urstöður séu þær að greitt tímakaup
landverkafólks innan ASÍ hækkaði
um 7,1% að meðaltali frá 4. árs-
fjórðungi 1990 til sama ársfjórð-
ungs 1991, eða örlitlu minna en al-
mennar breytingar kauptaxta
(7,4%) á tímabilinu. Framfærslu-
vísitalan hækkaði um 7,8% á sama
Þrenn gömul
lög afnumin
t vetur hafa veríð lögð fram á Alþingi
þrjú fríimvörp um afnám gamalla laga.
Nýlega samþykkti þingið að afnema
lög um beitumál, en þau fóiu í sér að
sérstakar beitunefndir væru starfandi
í öllum Iandshlutum sem áttu að hafa
það hlutverk að sjá um að ávaUt vxri
til næg beita. Sjávarútvegsráðherra
hefur einnig lagt fram frumvarp um
afnám laga um bann við sölu og leigu
skipa úr landi. Þessi lög voru sett árið
1917 þegar fyrri heimsstyrjöldin stóð
sem hæst. Þá hefur samgönguráð-
herra lagt fram frumvarp um afhám
laga um Skipaútgerð ríkisins, en eins
og kunnugt er hefur fyrirtældð nú ver-
ið lagt niður og eignir þess seldar. Með
frumvarpi samgönguráðherra fylgir
sögulegt yfirlit um starfsemi Sldpaút-
gerðarinnar í 60 ár. -EÓ
Vinnuvika verkakarla hefur styst um 2,2 stundir á tveim árum og heildarlaun þeirra því sáralítið hækkað:
Afgreiðslukarlar brunað
fram úr í launahækkunum
og holl hreyfing hamlar gegn
beinþynningu.
Byggðu upp - borðaðu ost.
Afgreiðslukarlar hafa nú annað áríð
í röð sópað til sín kauphækkunum
langt umfram aðrar ASÍ- stéttir.
Þetta á bæði við um greitt tímakaup
og enn fremur hækkun heildar-
tekna sökum stöðugt vaxandi
vinnutíma. Verkakarlamir sitja
hins vegar eftir með sárt ennið,
ekki aðeins minnsta hækkun á
tímakaupi heldur líka sáralitla
hækkun heildarlauna vegna stöðugt
styttri vinnutíma. Vinnuvika ver-
kakarlanna hefur nú á tveim ámm
styst samtals um 2,2 stundir, sam-
kvæmt útreikningum Kjararann-
sóknamefndar. I launaumslagi
þeirra munar mikið um nær tíu yf-
irvinnustundir á mánuði.
Af þessu leiðir að á 4. ársfjórðungi
síðasta árs höfðu heildartekjur ver-
kakarlanna aðeins hækkað um
3.200 kr. (3%) frá sama fjórðungi ár-
ið áður. Launaumslag afgreiðslu-
karlanna þyngdist aftur á móti um
17.200 kr. (15%) á sama tímabili.
Sé litið á tveggja ára tímabil hafa
8.040 krónur (8%) bæst við heildar-
launatölu verkakaralanna, en af-
greiðslukarlarnir hafa náð að hækka
niðurstöðutöluna um 27.600 kr.
(27%) á sama tímabili.
Breyttur vinnutími skýrir þennan
mikla mun þó aðeins að háifu. Á síð-
asta ári hækkaði tímakaup ver-
kakarlanna aðeins um tæplega 6%
en afgreiðslukarlanna um nær 14%.
Kaupmáttur verkakarlanna hefur
þar með rýrnað um 2% á sama tíma
og hann hefur aukist um meira en
5% hjá hinum.
Á tveim árum hefur greitt tíma-
kaup verkakarlanna hækkað um 50
kr. (13%) upp í 426 krónur, en tíma-
kaup afgreiðslukarlanna um 101
kr.(23%) upp í 533 kr. á tímann að
meðaltali.
Verkakarlarnir eru þó ekki eini
láglaunahópurinn sem taldi litlu
fleiri krónur upp úr umslaginu sínu
síðustu mánuði ársins 1991 en einu
ári áður. Hið sama á við um verka-
konur og afgreiðslukonur. Tíma-
kaupið þeirra hækkaði að vísu rúm
8% og 9%, eða heldur meira en
verðbólgan. Hins vegar hafði vinnu-
vikan styst kringum 1,5 stundir hjá
þessum stéttum. Heildartalan á
launaumslaginu hækkaði því aðeins
kringum 3.500 krónur, eða 4% á
heilu ári, í staðinn fyrir 6.500 sem
þurfti til að halda í við verðlags-
hækkanir á tímabilinu. Tveggja ára
samanburður kemur samt mun bet-
ur út fyrir þessar kvennastéttir en
verkakarlana.
Hækkun á heildarmánaðartekj-
um fólks í fullu starfi frá 4. ársfjórð-
ungi 1990 til sama tíma 1991 (slétt-
að í heil hundruð) var sem hér segir:
tíma, þannig að kaupmáttur minnk-
aði að meðaltali um 0,6%.
Allur samanburður hér að ofan er
á milli tveggja ársfjórðunga. Sé hins
vegar borið saman greitt tímakaup
eins og það var að meðaltaii allt árið
1990 annars vegar og 1991 hins veg-
ar verður niðurstaðan 8,2% hækkun
að meðaltali fyrir alla hópana —
minnst 6% hjá skrifstofukörlum og
mest nær 11% hjá verkakonum.
„Þessar tölur sýna að á árinu 1991
stöðvaðist kaupmáttarrýrnun
tveggja undangenginna ára, en þá
rýrnaði kaupmáttur greidds tíma-
kaups um 6 til 7% hvort árið,“ segir
Kjararannsóknarnefnd.
- HEI