Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur 4. apríi 1992 Setti upp lión fyrir Salvador „Taxidermi" er grein sem ekki er víst að allir átti sig strax á hver muni vera. En á góðri íslensku heitir þessi list hamskurður og felst í því að stoppa upp dýr. Þó nokkrir hafa lagt stund á uppstoppun dýra sem áhugamenn hér á landi, en þetta er vanda- samt verk sem þarf lista- mannshanda við ef besti árangur á að nást. Tveir menn munu nú hafa þetta að aðalatvinnu hér á landi og er annar þeirra á Náttúrufræðistofnun, en hinn er spánskur að þjóðerni, Manuel Arjona, sem búsettur hefur verið hér á landi frá árinu 1973, en lærði til verka í heimalandi sínu. Manuel hefur vinnustofu að Kleppsmýrarvegi 8 í Reykjavík og þangað lá leið okkar í heimsókn til hans nú í vikunni. Spurð- um við hann um uppruna hans og um margt sem að uppstoppun dýra lýtur. Manuel Arjona: „ Vandasamast er að flá dýrin og verka skinnin rétt fyrir uppstoppun. “ (Tímamynd Árni Bjarna) Rætt við spánskan hamskera, Manuel Arjona, sem starfað hefur að grein sinni á íslandi frá 1973

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.