Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. apríl 1992 Tíminn 9 Um 4.500 hringdu, 1.080 heimsóttu og 78 gistu 900 nætur í Rauöakrosshúsi áriö 1991: gestaRauða- krosshúss hvoHd í starfi né skóla Gífurleg íjölgun símhring- inga er það sem helst ein- kennir 1991 í Rauðakross- húsi frá fyrri árum. Starfs- menn tóku á móti tæplega 4.500 símtölum á árinu, sem var nær helmings fjölgun frá árinu áður og þreföldun frá 1989. í 165 þeirra var rætt um sjálfs- víg. Þá eru ótalin hátt á annað þúsund skipti sem skellt var á sl. ár. Athygli vekur að um 40% allra hringinga ársins voru síð- ustu mánuðina og þar af um helmingur í nóvember, sem sker sig algerlega úr. Rólegastir voru febrúar, júlí og ágúst, 200-250 samtöl á mánuði. Þar virðist nú mikil breyting, því um 1.550 manns höfðu símasamband fyrstu tvo mánuði þessa árs, sem er nær þreföldun frá sömu mánuðum í fyrra. Nær fimmta hver stúlka sem hringdi var 14 ára en 12 ára aldur var algengastur á piltunum. „Varast ber að túlka mikla fjölg- un símtala sem afleiðingu af auk- inni þörf. Þörfin fyrir símþjónust- una hefur sennilega verið til staðar öll þessi ár. Segja má að böm, ung- lingar og ungt fólk hafi í æ ríkara mæli verið að uppgötva þessa þjónustu sem aðgengilega leið til að leita ráða og leiðbeininga. Einn- ig má merkja að greinileg fylgni er milli kynningarstarfs og fjölgunar símtala," segir m.a. í ársskýrslu Rauðakrosshússins. Um 57% (eða 2.260) þeirra sem hringdu voru stúlkur, 24% drengir og síðan nærri fimmtungur karlar og konur á ýmsum aldri, aðallega foreldrar að leita ráða varðandi samskipti við börn sín. Nærri helmingur þeirra hringjenda sem segja til sín er búsettur utan höf- uðborgarsvæðisins. Langflestir hringdu milli klukkan 13 og 17 á daginn. Þótt rætt væri um nánast ailt milli himins og jarðar voru ákveðnir þættir meira áberandi en aðrir, svo sem; spumingar um getnaðarvamir, kynlíf, Iíkamann, ástina og aðrar tilfinningar, sam- skipti við foreldra og gagnstæða kynið, vímuefnaneyslu, sjálfs- myndina, einelti, ofbeldi og vanlíð- an af ýmsum ástæðum. Helmingur í mikilli vímuefnaneyslu Á árinu leituðu 78 einstaklingar, þar af 51 í fyrsta skipti, alls 108 sinnum aðstoðar í neyðarathvarfi Rauðakrosshússins og gistu þar samtals um 900 nætur. Algeng- ustu orsakir voru miklir sam- skiptaörðugleikar við foreldra, vímuefnaneysla ungmennanna sjálfra eða foreldranna og húsnæð- isleysi. Um 58% þessa hóps átti lögheimili á höfuðborgarsvæðinu en hinir víðs vegar á landinu. Langflestir leituðu aðstoðar í janú- ar og ágúst, en einnig margir í apr- fl og maí. Strákar voru í töluverðum meirihluta. Átta þeir yngstu vom 14 og 15 ára, nærri þriðjungurinn 16 ára og meirihluti hinna 17 og 18 ára. Yngstu stúlkumar voru að- eins 12 og 13 ára. Langflestar voru þó 16 ára en hinar skiptust flestar nokkuð jafnt á aldursárin frá 14 til 18 ára. Um helmingur þessa 78 manna hóps var í mikilli vímuefnaneyslu. Aðeins 28% vom í námi og jafn- stór hópur hafði flosnað upp frá gmnnskólanámi. Nærri tveir af hverjum þrem vom hvorki í skóla né í vinnu. Aðeins þriðjungur hópsins á kynforeldra sem búa saman. Fjórðungur kom af götunni í skýrslunni er m.a. sýnt hvaðan gestirnir komu og hvert þeir fóm. Fjórðungur þeirra kom af götunni og um sjötti hver fór aftur á göt- una. Aðeins 13% kom frá heimili beggja foreldra sinna og helmingi færri sneru þangað aftur. Um 14% komu af heimili einstæðrar móð- ur eða föður og 11% af heimili for- eldris og stjúpa/stjúpu. Samtals 38% hópsins (30 ungmenni) hafa því búið á heimili annars eða beggja foreldra, en aðeins 24% snem þangað aftur eftir dvölina í Rauðakrosshúsinu. Nær fjórðungur alls hópsins fékk hins vegar húsaskjól hjá systkinum, ættingjum eða vinum. Um sjöundi hluti gestanna kom úr sambýlum eða meðferðarheim- ilum fýrir vímuefnaneytendur og nær fjórðungurinn fór á slík heimili eftir dvölina í Rauðakross- húsi. Nokkrir fóm hins vegar í heimavist, komu sér fyrir á vinnu- stað, í leiguhúsnæði og öðrum stöðum. Margir leituðu ráða í maí Undanfarin ár hefur það farið vaxandi að börn og unglingar leiti eftir viðtali við starfsmenn Rauða- krosshúss án þess að óska gisting- ar. Þetta leiðir síðan oft af sér að viðkomandi fara að líta við eða koma í reglulegar heimsóknir. Um 400 daggestir leituðu þannig ráðgjafar í Rauðakrosshúsi á ár- inu og þar af áberandi margir (21%) í maímánuði einum, eða 6- 7 sinnum fleiri en mánuðina ág- úst til október. Hátt á 7. hundrað daggesta litu síðan við vegna óformlegra tengsla eða af ýmsum öðmm ástæðum. Starfsmenn við Rauðakrosshúsið em 7 allir í fullu starfi, þar af fimm kennaramennt- aðir. - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.