Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 18

Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 4. apríi 1992 Fyrsti hópurínn í Seljasókn var fermdui um síöustu helgi og um þessa helgi veröa fermingarbörnin 26. í gær var síðasta æfing fyrir stóru stundina sem svo mörg þessara ungmenna hafa beðið eftir. Tímamynd Ami Bjama Séra Valgeir Ástráðsson í Seljasókn fermir í ár flest börn eins og flest undanfarin ár, eða um 180: Vantar þig rafmagn í sumarbústaðinn Tímabundinn afsláttur tengigjalda 1992 Rafmagnsveitur ríkisins hafa ákveðið að veita tímabundinn afslátt frá gjaldskrá um tengigjöld í sumarhúsahverfum árið 1992. Afsláttur þessi er byggður á því að hægt sé í samvinnu við umsækjendur að ná fram meiri hagkvæmni við heimtaugalagnir. Eftirfarandi meginskilyrði eru fyrir afslættinum: 1. Um er að ræða hverfi sem þegar hafa verið rafvædd að einhverju leyti. Um ný hverfi gilda almennir skilmálar gjaldskrár, sjá þó lið 7. 2. Umsókn heimtaugar þarf að berast fyrir 15. maí 1992. 3. Gengið skal frá greiðslu fyrir 10. júní 1992. 4. Unnt þarf að vera að tengja a.m.k. 10 heimtaugar í sama hverfi, eða 5 á sömu spennistöð, í einni verklotu. 5. Verktími (dagsetning) verði ákveðinn í samráði umsækjanda og Rafmagns- veitnanna. Umsækjendurtilnefni einn tengilið í hverju tilviki. 6. Umsækjendur munu sjá til þess að nauðsynlegum frágangi innan lóðarmarka, samkvæmt skilmálum í gildandi gjaldskrá, sé lokið á réttum tíma, sbr. lið 5. 7. Heimilt er að víkja frá þessum skilmálum, þar sem aðrar jafn hagstæðar aðstæður gefa tilefni til afsláttar að mati Rafmagnsveitnanna. Rafmagnsveit- urnar munu yfirfara umsóknir og gefa svör um afslátt fyrir 5. júní 1992. Þessi afsláttur nemur 22,8%, þannig að grunngjald lækkar úr 162.000 kr. (án vsk.) í 125.000 kr. (án vsk.) Þeim aðilum sem eiga óafgreiddar umsóknir frá fyrra ári, er bent á að hafa samband við Rafmagnsveiturnar hið fyrsta. £ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS 91-605500 lífendÍafL STYKKISHÓLMUR 93-81154 95-24600 AKUREYRI 96-26500 97-11300 HVOLSVÖLLUR 98-78232 REYKJAVÍK BLÖNDUÓS EGILSSTAÐIR Valgeir að venju ferm- ingakóngur Séra Valgeir Ástráðsson, sóknar- prestur í Seljasókn í Reykjavík, er fermingakóngur þetta árið, eða fermir flest ungmenni eins og oftast áður á síðari árum. í ár fermast í sókninni um 180 ungmenni, en það er þó einhver faekkun frá síðasta ári. „Þetta hefur nú verið svona lengst af frá stofnun Seljasóknar, eða frá ár- inu 1980. Við höfum verið með þessa krakka í fræðslu frá því í októ- berbyrjun og það hefur gengið vel. Þetta er mjög skemmtilegur tími og það er mjög gaman að vinna með krökkunum og þeir eru yndislegt fólk. Ég vil nú ekki líkja þessu við vertíðarvinnu, en þetta er gríðarlega mikil en skemmtileg vinna. Það þarf mikið skipulag svo að vel sé og er reyndar dálítil tarnavinna," sagði Valgeir Ástráðsson sóknarprestur í samtali við Tímann. Fræðslugjald fyrir hvert fermingarbam er 4700 krónur og kirtlagjald er 600 krónur. Heimilt er samkvæmt gjaldskrá Prestafélagsins að innheimta svo- kallað pappírsgjald, 250 krónur, en það er ekki gert í Seljasókn. Tíminn hefur heimildir fyrir því að slíkt sé gert í nokkrum sóknum, þar á með- al í Grafarvogssókn. -PS Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk- fræöings, óskar eftir tilboöum í inniveggi og innihuröir I Iþróttamiöstööina I Grafarvogi. Helstu magntölur eru: Inniveggir 1.200 m2 Innihuröir 100 stk. Fyrri hluta verksins á að vera lokiö 15. júlf 1992. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 28. apríl 1992, kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 PÓSTFAX TÍMANS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.