Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 21

Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 21
Laugardagur 4. apríl 1992 Tíminn 21 „Ég fékk eitt póstkort í fermingargjöf'1 — segir Rósa Guðmundsdóttir, sem fermdist í Bœgisárkirlgu 1914 „Ég er fædd þann 19. október 1899 og fylgi því öldinni að aldrí,“ segir Rósa Guðmunds- dóttir. „Þegar ég fermdist átti ég heima á Ásgerðarstöðum, næst- fremsta bæ í Hörgárdal, og labb- aði til spurninganna niður að Ytri-Bægisá til séra Theódórs Jónssonar. Ég var yfirheyrð úr „Ianga kverinu", eða Helgakverí og varð að kunna það utanbókar. Það stóð ekkert í mér, en ég fór með kverið út í fjós og lærði þar. Þar var hlýrra en inni í bænum. Langt var út að Bægisá og ég fór vanalega út að Myrká og fékk að sofa þar hjá fermingarsystur minni. Verst var þegar veður voru vond og áin í vexti og einu sinni varð ég að ganga langa leið til þess að komast yfir ána. Þá fór bróðir minn á móti mér hinum megin, þangað til yfir varð komist. Ég var ein átta systkina (það ní- unda fæddist andvana), og ég fermdist á annan í hvítasunnu 1914. Ekki man ég hve mörg við fermingarsystkinin vorum en mörg vorum yið þó ekki. Börnin voru bæði úr Öxnadal og Hörgár- dal. Fermingarveislan var sú að Jó- hanna prestsfrú á Bægisá, mikil myndarkona, bauð í kaffi og með- læti á prestssetrinu. Önnur veisla var ekki. En jörð var algödduð á leiðinni frá fermingunni og það varð að skaflajárna hestana. Ég átti þá eina kind með tveimur lömbum og þegar heim kom var veðrið orðið svo vont að taka varð til að koma fénu í hús. Annað lambið mitt lét ég inn í bakaraofn- inn í eldavélinni til þess að ylja því. Hitt lambið dó. Nú eru Ás- gerðarstaðir komnir í eyði. Þeir voru uppi undir fjallinu, en bróðir minn Skúli byggði síðar í landar- eigninni niðri á sléttunni og kall- aði Staðarbakka. Ég fékk eitt póstkort í fermingar- gjöf. Það gaf systir mín mér þegar við komum heim og það var með einhverju blómamynstri á. Aðrar voru gjafirnar ekki. Það þætti ekki mikið núna, þegar allt er orðið svo yfirdrifið. Fólk veit ekki hvað það á að gefa og eyðir í allra handa óþarfa." Rósa Guömundsdóttir: „Ég fór með kveriö út f fjós og lærði þar' (Tlmamynd Ámi Bjarna). 1J Oddvitinn gaf mér fimm krónur" — segir Þórunn Ólafsdóttir, sem fermdist í Krosskirkju 1921 „Móðir mín veiktist mikið í spönsku veikinni sem var nokkru áður en ég fermdist, en ég fermdist 1921. Hún var rúm- liggjandi heima í tvö ár á eftir og náði sér aldrei. Þetta setti skugga á fermingarárið mitt,“ segir Þórunn Ólafsdóttir, fædd 1906 á Kirkjulandi í A-Landeyj- um. „Við vorum sex systkinin og sá- um við tvær systur um heimilið. Ég átti líka eldri systur en þær höfðu gifst burt um þetta leyti. Ég fermdist í Krosskirkju og það var séra Sigurður Norland á Berg- þórshvoli sem fermdi mig. Hann var prestur þarna í þrjú ár. Ég fékk öll fermingarfötin að láni hjá góðu fólki á bæ nærri okkur og fermdist því í lánuðum kjól og lánuðum skóm. Fermingarundir- búningurinn var ekki mikill og ég gekk aðeins í þrjú skipti til prests- ins. Ég lærði minna kverið eða „tossakverið" svonefnda, því Helgakverið gamla var miklu stærri bók. í tvö fyrri skiptin var mér hlýtt yfir hálft kverið en allt í þriðja sinn. Ég lærði þetta auð- veldlega og kunni reiprennandi á kirkjugólfinu. En það kunnu ekki allir vel, en við fermdumst fjórtán saman sem var óvenjumargt. Ég fermdist á hvítasunnunni 11. maí og fékk 25 krónur í ferming- argjöf og fyrir þær keypti ég mér skó, sem einmitt kostuðu 25 krónur. Fimm krónur hér af gaf mér oddvitinn okkar. Hann hafði lánað mér hest á íþróttamót, en lánaði mér hann með því skilyrði að ég færi ekki á ball fyrr en eftir ferminguna. Honum leist ekki á að unga fólkið sækti böll. Ég stóð við þetta, þótt ég væri orðin fimmtán ára er ég fermdist, og á fermingardaginn kom hann og spurði hvort ég hefði staðið við heitið. Ég sagði svo vera og hann gaf mér þá þessar fimm krónur. Svo gaf systir mín mér tíu krónur og tvær og þrjár krónur fékk ég hér og þar. Fermingarveislan var kaffi og eitthvað meðlæti, en ég man að við höfðum engan sykur að baka úr, því ferðir voru þá strjálar út í Vestmannaeyjar. Þaðan var keypt til heimilisins. Nú er flest breytt og ekki sambærilegt. Það er ynd- islegt hvað börnin hafa það gott og svo hafa kringumstæður ein- hverra sjálfsagt verið aðrar en mínar þegar ég fermdist." BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartún 3.105 Reykjavík. Sími 26102. Myndsendir 62319 Laugavegur 126-146, Þverholt 3-7 og Mjölnisholt 4-10: Tillaga að deiliskipulagi Tillaga að deiliskipulagi á staðgreinireit nr. 1.241.0 sem afmarkast af Þverholti, Laugavegi, Mjölnisholti og Stakkholti er auglýst samkvæmt 17. og 18. grein skipulagslaga nr. 19/1964. Uppdráttur með greinargerð verðurtil sýnis hjá Borg- arskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð, kl. 8.30 til 16.15 alla virka daga, frá 6. apríl til 15. maí 1992. Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi síðar en 29. maí 1992. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Þórunn Ölafsdóttir: „Eg fermdist því i lánuðum kjól og lánuöum skóm. (Tlmamynd Árni Bjarna) Hús til sölu Einnar hæöar timburhús meö trégólfi. Þarf að fjarlægjast af lóð. Nánari upplýsingar í sima 91-641250 og 985-25830. (case ih) \ FJOLBREYTT URVAL bobcat r v r Vapormatic Ýmsir varahlutir í dráttarvélar KAB-sæf/ í allar geröir dráttarvéla 3E W r TB-Turbo Túrbínusett i flestar dieselvélar Coopers Síur í miklu úrvali r Rutland Electric Fencing Viðurkennt girðingarefni Polydress Bindinet á rúllubagga r • Brynningartæki • Rúllubaggabætur • Vökvastjórnlokar og slöngur • Drifslöngur og drifskaftsefni • Rafgeymar o. fl. o. fl. Vandaðar vörur — Hagstætt verð r P JM H LÓ** VELAR& ÞJÓNUSTAHF Sími 91- 68 32 66

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.