Tíminn - 04.04.1992, Síða 16
16 Tíminn
Laugardagur 4. apríl 1992
Fyrstu togveiði-
ferðir á
Halamiðum
annað. Um morguninn, nokkru eftir
birtingu, var haldið austur yfir
Djúpið og ætlaði ég að reyna í aust-
urhalla þess þegar lokið væri við-
gerðum netanna.
Aldrei komist í annaö
eins mok
Þegar komið var austur á kantinn
mættum við þar Skallagrími; skip-
stjóri á honum var Guðmundur
Jónsson frá Reykjum. Töluðum við
saman, og sagðist hann hvergi hafa
fengið fisk, en ég sagði honum frá
afla þeim, sem við höfðum fengið
þar úti. Ákváðum við að halda þang-
að út aftur og var svo snúið við og
byrjað á nýjan leik. Var þá komið
besta veður og hélst í næstu 4-5
daga, og bætti það mjög aðstæður
allar. Aldrei áður hafði ég þá komist
í annað eins netarifrildi og festur, og
aldrei í annað eins mok af fiski, þeg-
ar vel gekk, tvo til þrjá drætti rifrildi
og festur, næstu tvo til þrjá máske 7-
8 pokar eftir 20-30 mínútur. Kom-
um við svo þarna niður á kantinum
sínu duflinu hvor, og fór þá heldur
að minnka rifrildi, en var þó alltaf
mjög mikið. Afli virtist bestur á 115-
120 föðmum, oft hreinn þorskur.
Ekki var asfiski nema á þessu dýpi.
Vöruðum við okkur ekki á hve kant-
urinn sveigði mikið til norðurs;
héldum fyrst að hann mundi vera
ANA, en hann reyndist liggja mikið
meira til norðurs. Hefði þá komið
sér vel að hafa dýptarmæli. Héldum
við svo áfram veiðum þar til við vor-
um alveg orðnir í vandræðum með
Iifur og salt næstum því búið. Fór-
um við þá til Dýrafjarðar og létum í
land 40-50 tunnur af lifur og tókum
dálítið salt. Var svo haldið út aftur
og byrjað á líkum stað. Nokkru síðar
fór Skallagrímur heim, hann losaði
ekki lifur fyrir vestan. Afli var líkur,
þó meiri ufsi. Eftir þrjá daga var
haldið heim, var þá saltið búið og
lifrarföt öll full, enda var túrinn orð-
inn alllangur. Fáliðaðir vorum við
frekar þennan túr, tuttugu og þrír á,
en einvalalið. Höfðum við eitthvað
yfir 200 föt lifrar og þótti þetta mjög
mikill afli á þessum tíma árs. Meira
en helmingur aflans reyndist þorsk-
ur. Þegar við höfðum verið þarna í
tvo til þrjá daga kom botnvörpung-
urinn Baldur, skipstjóri Þorgrímur
Sigurðsson, og var það fyrsti túr
Baldurs. Hann var á ísfiskveiðum og
fyllti sig á mjög skömmum tíma.
Snorri Sturluson, skipstjóri Sigurð-
ur Guðbrandsson, kom sömuleiðis
og var á heimleið, hafði verið á
Hornbanka allan túrinn, en fiskaði
þarna úti í einn dag.
Óvíst hver nafnið gaf
Ekki hef ég heyrt, hver hefir gefið
þessu fiskimiði nafn, en þennan vet-
ur komst það á og hefir gengið und-
ir Halanafninu síðan. Eins og sagt
var í byrjun þessarar greinar, er Hal-
inn tvímælalaust besta togveiðimið,
sem enn hefir fundist, hvort sem
um innlend eða erlend fiskimið er
að ræða.
í Sjómannablaðinu Víkingi II.
árg. 1940, í grein, sem Guðmundur
Jónsson skipstjóri, Reykjum, skrifar
og lýsir Halanum, stendur:
„Guðmundur Guðmundsson, nú
bóndi á Móum á Kjalarnesi, sem
stýrði Þórólfi, varð til þess að reyna
á Halanum fyrstur þennan vetur."
Og í bókinni „Um láð og lög“ eftir dr.
Bjarna Sæmundsson stendur á bls.
274:
„íslenskir fiskimenn höfðu að
vísu komið fyrr á þetta svæði og
fiskað þar, en með Iitlum árangri,
þangað til haustið 1921, er Kveld-
úlfsskipin, fyrst Þórólfur einn og svo
Skallagrímur, byrjuðu að fiska þar.“
lenskt stnpr
5 00 gromm
„Kar
Andófsmenn gegn
reykingum reiðir
víðlesnum karla-
tímaritum sem birta
myndir af frægu
reykingafólki
Á forsíðu á víðlesnu tímariti blasir
mynd af best klædda manni Bret-
lands, Bryan Ferry, við þar sem
hann kveikir sér í Dunhill sígarettu.
Forseti formannaráðs bandarisku
heilsuræktarsamtakanna, sem er
enginn annar en Amold Schwarze-
negger, sést totta vindil á forsiðu
annars. Leikarinn Ray Liotta, sem
gjama leikur kalda karia, stillir sér
upp til myndatöku með hálfreykta
sígarettu. Þá kemurfyrir að við sjá-
um fólk i þessum blöðum klætt eft-
ir nýjustu tísku, en sem minnir á
kvikmyndahetjur frá fimmta ára-
tugnum að því leyti að það er um-
vafið tóbaksreykjarskýi.
Þeir frægu og vinsælu
Þetta er sú ímynd frægra og vin-
sælla karla og kvenna sem tóbaks-
framleiðendur einmitt dreymir um.
Væri um beinar auglýsingar að ræða
þá væru þetta brot á tóbaksvamar-
reglunum, þ.e. í Bretlandi og víðar.
Þær auglýsingar mundu valda upp-
námi, enda mundu þær vega þungt
gegn átaki á borð við „reyklausa
daga“ sem víða er efnt til, en t.d.
Bretar álíta að á reyklausa daginn
leggi um ein milljón manna sígar-
ettupakkann til hliðar í 24 stundir.
En segja má að tóbaksframleið-
endur fái auglýsingamar frítt með
þessu móti. Víðlesin tímarit á borð
við GQ, Esquire og Arena birta
myndir eins og þær sem hér er á
minnst á forsíðu. Það hefur nú orðið
til þess að baráttumenn gegn reyk-
ingum hafa látið mörg ámælisorð
falla í þeirra garð.
Bera vott um karl-
mennsku?
„Þessar myndir af myndarlegu og
aðlaðandi fólki, öllu reykjandi, vinn-
ur gegn þeirri heilsuverndarstefnu
sem við viljum efla,“ segir Mike
O’Connor, formaður samtaka lækna
er berjast fyrir bættum lifnaðarhátt-
um. „Þær valda okkur miklum
áhyggjum." „Reykingar hafa alltaf
þótt bera vott um karlmennsku,"
maldar ritstjóri Arena, Dylan Jones, í
móinn. „Þær bæta við ímynd fólks,
rétt eins og réttur jakki eða erma-
hnappar." Skömmu eftir 1980 fóru
kvenncblöð eins og Cosmopolitan að
útiloka myndir af reykingafólki af
helstu síðum sínum. Árið 1986 var
það samkomulag gert að bresk blöð
ætluð ungum konum höfnuðu tób-
aksauglýsingum. Upp frá því hafa
kvennablöð lagt metnað sinn í að
birta ekki efni sem gefur til kynna að
það sé „fínt“ að reykja.
Karlablööín þráast viö
En karlablöðin fylgdu ekki í kjöl-
farið og að sumra mati leggja þau sig
nú mörg fram um að birta myndir
sem gefa til kynna að reykingar auki
á karlmennskuímyndina. í einu nýj-
asta tölublaði Arena getur að líta
mynd af Ray Liotta á forsíðunni þar
sem hann heldur á sígarettu hinn
makindalegasti á svip. Þetta er í
fjórða skiptið á skömmum tíma hjá
sama blaði. Áður hafa þeir birst
reykjandi á forsíðu Bryan Ferry, Mi-
chael Caine og Sean Ferry. Sama á