Tíminn - 04.04.1992, Page 22
Laugardagur 4. apríl 1992
Victor Estefan var umferðarlög-
reglumaður og var drepinn við
skyldustörf sín. Hann ætlaði að
áminna ökumann fyrir að aka án
ökuljósa, en lenti þá á örvæntingar-
fullum glæpamönnum á flótta und-
an lögreglunni.
Victor Estefan átti aö baki 20 ára gifturíkan feril innan lögreglunnar er
hann var skotinn.
Miðvikudaginn 30. mars 1988 var Vic-
tor Estefan, umferðarlögreglumaður á
Miami, á kvöldvakt Um níuleytið um
kvöldið stöðvaði hann bifreið og
komst að því að skírteini ökumannsins
var útrunnið. Hann kallaði því á drátt-
arbfl til að draga bflinn heim til öku-
mannsins.
Þegar dráttarbfllinn kom á staðinn
sagði Estefan ökumanni hans hvert
átti að draga bflinn, en fór sjálfur á lög-
reglubflnum að elta ljóslausa bifreið
sem ók hjá í þann mund.
Þetta var grár smábfll, og í stað þess
að sinna stöðvunarmerkjum lögregl-
unnar jók ökumaður hans hraðann.
Estefan bað því fjarskipti að senda sér
aðstoð.
Aöstoöin barst
of seint
Þetta voru síðustu fjarskiptaboðin
sem Estefan sendi um ævina. Þegar
aðstoðin barst fundu lögreglumenn-
imir bifreið hans þar sem hún stóð
hálf inni á akreininni og að hálfu fyrir
utan veg. Sjálfur lá Estefan fyrir utan
bifreiðina, greinilega mikið saerður.
Hann var með meðvitund og gat skýrt
frá því að maður af latneskum upp-
runa, á litlum gráum bfl, heföi skotið
hann.
Estefan var mjög þjáður og óttaðist að
hann væri dauðvona, en lýsti árásar-
manninum fyrir félögum sínum og
endurtók lýsinguna í sjúkrabiffeiðinni
á leið á sjúkrahúsið.
Hann skýrði frá því að það heföi verið
farþegi í bflnum sem skaut hann. Öku-
maðurinn heföi beygt sig niður og
hann heföi því aldrei séð hann al-
mennilega. Hann sagði skotmanninn
af latneskum uppruna, tæplega þrítug-
an, lágvaxinn og þrekinn, hann heföi
verið hvítklæddur og með svart úfið
hár, en skegglaus.
Hann skýrði ennfremur frá því að
skemmdir væru aftan á gráa bflnum
því hann hefði ekið lögreglubflnum
utan í hann þegar hann var að reyna að
fé ökumanninn til að nema staðar.
Lögreglumoröingja
leitaö
Lögreglan hóf nú víðtæka rannsókn,
því faa glæpi telja lögreglumenn alvar-
legri en þegar menn úr þeirra röðum
eru drepnir að því er virðist að ástæðu-
lausu.
Margir höföu heyrt skothvellina en
ekki fundust nein vitni sem séð höfðu
sjálfa árásina.
Á meðan á leitinni að morðingjunum
stóð börðust læknar fyrir lífi Estefans á
skurðstofunni. En sár hans voru alvar-
leg og innvortis blæðingar miklar,
þannig að Estefan lést eftir faeinar
klukkustundir.
Fréttin um lát hans barst skjótt með-
al lögreglumannanna, sem þá hertu
leitina um allan helming. Bæði starfs-
félagar og ættingjar voru yfirheyrðir til
að komast að því hvort eitthvað gæti
bent til þess að einhver heföi getað sóst
eftir lífi hans persónulega eða sem lög-
reglumanns. Ekkert fannst sem bent
gæti til að hann hefði átt sér slíkan
óvildarmann.
En það var ekki fyrr en tæpum mán-
uði eftir morðið að fréttir bárust frá
lögreglunni í San Luis í Kalifomíu
sem hjálpuðu til við lausn málsins. Þar
haföi verið gerð tilraun til að drepa tvo
vegalögreglumenn.
Arásarmennimir tveir höföu sjálfir
orðið fyrir skotum og lágu nú á sjúkra-
húsi. En með þeim f bflnum haföi ver-
ið þriðji maður, Jose Lopez, sem haföi
sloppið ómeiddur. Sá gat gefið upplýs-
ingar um morð á lögreglumanni á Mi-
ami.
Málglaöur félagi
Allar upplýsingar sem lögreglumað-
urinn í San Luis haföi efdr Lopez
komu heim og saman við morðið á
Estefan tæpum mánuði áður.
Lopez sagði að árásarmennimir væru
bræður, Douglas Martin Escobar, 27
ára, og Dennis J. Escobar, 26 ára. En
lögreglumaðurinn bætti því við að
Douglas Escobar væri eftirlýstur í
Kalifomíu fyrir að hafa stungið af ffá
100.000 dala tryggingu sem haföi ver-
ið sett fyrir hann er hann var ákærður
fyrirvopnaðrán.
Lögreglumenn ffá Miami flugu nú til
San Luis til að hafa tal af Jose Lopez og
bræðmnum.
Þeir hittu Lopez fyrst að máli. Hann
sagðist hafa þekkt þá bræður ffá bam-
æsku, en þeir heföu allir verið skólafé-
lagar. Hann hitti þá ekki í nokkur ár,
fyrr en fyrir um hálfum mánuði að þeir
komu á vinnustað hans. Þeir komu
síðan heim til hans um kvöldið og
sögðust þarfnast aðstoðar hans við að
selja kókaín sem þeir heföu undir
höndum.
Þeir fengu sér í glas og ekki leið á
Iöngu áður en bræðumir ákváðu að
skýra Lopez frá afrekum sínum.
Þeir sögðust hafa verið á stolinni
Mazda-bifreið þegar lögreglan heföi
byrjað að elta þá. Þeir reyndu að kom-
ast undan en það tókst ekki. Douglas
keyrði og varð að lokum að stöðva bif-
reiðina. Lögreglumaðurinn fór þá út