Tíminn - 04.04.1992, Blaðsíða 23
Laugardagur 4. apríl 1992
Tíminn 23
Lögregluskilrlki Victors Estefan.
úr sínum bíl og gekk í áttina til þeirra
með byssuna á lofti. Douglas sagði
Dennis þá að skjóta lögreglumanninn.
Dennis fór út úr bílnum og skaut
þremur skotum. Síðan fór hann aftur
inn í bílinn og þeir bræður flúðu af
vettvangi.
Bíllinn hafði skemmst í eltingaleikn-
um og því ákváðu þeir að losa sig við
hann. Þeir lögðu honum fyrst á bif-
reiðastæði við verslunarmiðstöð, en
færðu hann síðan daglega til að lög-
reglan fyndi hann síður. Að lokum
ákváðu þeir að fara með hann á þvotta-
stöð til þess að fingraför þeirra yrðu
útmáð og aðeins yrðu í bílnum fingra-
för starfsmanns þvottastöðvarinnar.
Þeir lýstu bílnum sem grárri Mözdu
626, femra dyra, fimm gíra með sól-
þaki. Þeir losuðu sig við hann en stálu
síðan hvítum bíl.
Bræðumir sögðu Lopez að Estefan
hefði verið skotinn með stolinni .357
magnum byssu. Þeir kváðust hafa los-
að sig við hana en eitthvað var á reiki á
Ráðning
á krossgátu
hvem hátt Ýmist sögðust þeir hafa
hent henni í sjóinn eða í stöðuvatn,
eða jafnvel grafið hana.
Lopez sagðist hafa vitað að Douglas
Escobar hefði verið á flótta undan lög-
reglunni vegna vopnaðra rána sem
hann hafði framið. Hann sagði að
Douglas hefði sagt að hann myndi
skjóta sér leið út ef lögreglan reyndi að
stöðva hann, því hann ætlaði sér ekki
aftur í fangelsi.
Fóru við jarðarför fórn-
arlambsins
Bræðumir höfðu fylgst vel með öll-
um fréttaflutningi af morðinu og fóm
jafnvel í kirkjugarðinn til að fylgjast
með þegar Estefan var jarðsettur. Þeir
vildu ekki missa af neinu í sambandi
við þetta afrek sitt
Lopez klykkti síðan út með því að
segja að bræðumir hefðu hótað því að
ganga af honum dauðum ef hann
skýrði nokkmm frá því sem þeir hefðu
trúað honum fyrir.
Nú var komið að því að tala við bræð-
umar. Til að byija með neituðu þeir að
vita nokkuð um morðið í Miami. Dou-
glas kvaðst að vísu vera bílaþjófúr og
ræningi, en ekki morðingi. Hann
sagði lögregluna alla tíð hafa komið
illa fram við sig, en hann hefði þó alls
ekki hom í síðu hennar.
Þeir bræður em ættaðir frá Níkarag-
va og hafði verið vísað úr landi nokkr-
um ámm áður vegna glæpastarfsemi.
Þeim hafði þó tekist að komast aftur
inn í Bandaríkin á ólöglegan hátt Þeir
áttu þar af leiðandi ekki aðeins fang-
elsisdóm yfir höfði sér, heldur einnig
að verða vísað aftur til síns heima.
Eftir nánari yfirheyrslu gafst Douglas
upp og játaði á sig aðild að morðinu á
Estefan. Hann sagði alveg sömu sögu
og Jose Lopez hafði sagL nema hvað
hann var ekki viss hvort bróðir hans
hefði skotið Estefan þrisvar eða fjór-
um sinnum.
Blóðblettir voru í malbikinu á
staðnum þar sem Estefan var
skotinn til bana.
Hann sagði alveg sömu sögu um það
hvemig þeir höfðu losað sig við bílinn,
en hafði miklar áhyggjur af því að
fingraför þeirra bræðra kynnu að hafa
orðið eftir á bensínlokinu.
Hann iðraðist einskis nema þess helst
að hafa gert Jose Lopez að trúnaðar-
manni sínum.
Dennis játar loks
Dennis var erfiðari viðureignar en
bróðir hans. Hann kvaðst vita að bróð-
ir hans, Douglas, hefði orðið Estefan
að bana, en sjálfur hefði hann ekki
verið viðstaddur. Honum var sagt að
Douglas hefði skýrt lögreglunni frá
því sem gerst hefði og þá vildi Dennis
endilega fá að vita hvað hann hefði
sagt.
Lögreglumennimir ákváðu þá að
ganga út, en Dennis kallaði þá til baka
og vildi halda áfram að ræða málin.
Við yfirheyrslumar kom í Ijós að
frænka þeirra bræðra hefði haft vitn-
eskju um að þeir hefðu myrt Estefan.
Hún hafði verið yfirheyrð áður, þar
sem hún bjó rétt hjá morðstaðnum og
var talin hugsanlegt vitni. Nú kom í
ljós að hún hafði farið með bræðmn-
um þegar þeir fóm til þess að losa sig
við byssuna. Hún taldist því samsek.
Dennis Escobar hafði miklar áhyggj-
ur af þessari frænku sinni og eftir
miklar málalengingar ákvað hann að
játa ef tryggt yrði að aðild hennar að
málinu yrði látin niður falla.
Tálið var sannað að Jose Lopez hefði
enga aðild átt að því er skotið var á
lögreglumennina í San Luis. Enn-
fremur hafði hann verið mjög sam-
vinnuþýður við lögregluna við að
leysa málið og var hann því Iaus allra
mála.
Þungur dómur
En það sama varð ekki sagt um þá
Dennis og Douglas Escobar. Fyrst
komu þeir fyrir rétt í Kalifomíu fyrir
morðtilraun gagnvart tveimur lög-
reglumönnum. Þeir vom báðir sekir
fundnir.
Að því loknu vom þeir framseldir til
Flórída til að svara til saka fyrir morð-
ið á Estefan lögreglumanni.
Þeir vom ákærðir um morð af fyrstu
gráðu, stórþjófhað, ólöglegan vopna-
burð og að hafa borið vopn í glæpsam-
legum tilgangi.
Kviðdómur úrskurðaði að þeir væm
báðir sekir um öll ákæmatriði. Þá
kom til kasta dómarans. Hann ákvað
að þeir skyldu báðir dæmdir til dauða
í rafmagnsstólnum.
Þeir em nú báðir á dauðaganginum í
fangelsi í Flórída og bíða þess að dóm-
inum yfir þeim verði fullnægt.
Victors Estefan mun ávallt verða
minnst sem góðs lögregluþjóns og
góðs manns í röðum lögreglumanna í
Flórída.
Lögreglumennimir tveir sem stjóm-
uðu rannsókninni vom heiðraðir sér-
staklega fyrir góða framgöngu við
Iausn málsins. Það er þó heiður sem
þeir vilja ekki verða aðnjótandi oftar,
því fátt er lögreglumönnum erfiðara
en rannsókn á morði félaga þeirra.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræöings, óskar eftir tilboöum i fullnaðarfrágang undir malbik viö frjáls-
fþróttaaðstööu i Laugardal.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 5.000 m3
Pipulagnir 900 m
Frágangur rennu 1.000 m
Steinsteypa 100 m3
Raflagnir 1.500 m
Snjóbræðslulagnir 800 m
Frágangur undir malbik 6.600 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuö á sama stað þriöjudaginn 21. apríl 1992, kl. 15.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Revkjavíkur,
óskar eftir tilboöum ( endurnýjun á 42 gluggum á Laugarnesskóla við
Reykjaveg.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vomi, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 15. apríl 1992, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræðings, óskar eftir tilboðum í málun innanhúss á um 6.000 m2 i (þrótta-
miöstööina í Grafarvogi.
Hluta verksins á að vera lokiö 15. ágúst 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama staö miövikudaginn 22. apríl 1992, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgarverkfræðingsins i
Reykjavík, óskar eftir tilboðum í gerð hringtorgs á gatnamótum Reykja-
vegar, Sigtúns og Engjavegar.
Ennfremur að undirbúa hluta af Engjavegi undir malbik og hellulögn
ásamt ýmiss konar frágangi.
Verklok 15. ágúst 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vom, Frikirkjuvegi 3, Reykjavik,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 21. apríl 1992, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræöings, óskar eftir tilboðum f byggingu 4. áfanga Selásskóla.
Húsiö er 789 fermetrar og 3.627 rúmmetrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama staö þriðjudaginn 5. maf 1992, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800