Tíminn - 04.04.1992, Side 25
Laugardagur 4. apríl 1992
Tíminn 25
Pálmi Jónsson:
Höfiim það er
sannara reynist
Laugardaginn 28. mars sl.
skrifar Jón Kristjánsson rit-
stjóri pistil í Tímann sem
hann kallar Menn og málefni.
Þar nefnir hann mitt nafn og
afstöðu Sjálfstæðisflokksins
fyrir síðustu kosningar og
verður það á að fara rangt
með.
Jón ritstjóri er dagfarsprúður
maður og þægilegur félagi. Hann
er borinn og barnfæddur Skagfirð-
ingur, uppalinn á góðu heimili. í
þeirri sveit þykir það dyggð að
komast hnyttilega að orði en halla
þó ekki sannleikanum. Þetta er
góð heimanfylgja og ég trúi að Jón
hafi stundað það eftir megni að
hafa hana að vegvísi. Mér finnst
samt skiljanlegt að stundum sé
villugjarnt á refilstigum Fram-
sóknar og síst að undra þó stöku
sinnum sé farið út af veginum.
Þetta hendir Jón í fyrrnefndri
grein. Þar segir: „í kosningabarátt-
unni héldu taismenn Sjálfstæðis-
flokksins því fram fullum fetum að
flokkurinn myndi lækka skatta,
fengi hann einhverju ráðið eftir
kosningar.
Fulltrúi flokksins í fjárlaga-
nefnd, Pálmi Jónsson, missti það
einhvers staðar út úr sér að þetta
myndi ekki vera hægt strax, að
minnsta kosti. En meginstefið var
skattalækkun."
Þetta er rangt með farið og
þætti ekki góð latína í Óslandshlíð.
Ég „missti" ekkert út úr mér um
þetta efni. Mér var fullkunnugt um
viðskilnað ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar í fjármál-
um ríkisins og lýsti honum oftar
og vonandi skýrar en aðrir tals-
menn Sjálfstæðisflokksins á Al-
þingi, á fundum og í dagblöðum.
Það var ótvíræð skoðun mín að
þessi viðskilnaður, arfurinn sem
þjóðin og ný ríkisstjórn þyrfti að
taka við, væri svo hrikalegur að
skattalækkun yrði ekki möguleg,
a.m.k. tvö íyrstu ár nýs kjörtíma-
bils. Þessu lýsti ég afdráttarlaust
yfir og allir vita nú að ég sagði
sannleikann.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins gáfu fyrrverandi og núverandi
formenn Sjálfstæðisflokksins sam-
bærilegar yfirlýsingar í ræðum
sínum. í stjórnmálayfirlýsingu
landsfundarins var í raun sagt hið
sanna. Þar segir að fyrsta skrefið
verði að hverfa frá skattahækkun-
arstefnu þáverandi ríkisstjórnar,
stöðva þenslu í umsvifum ríkis-
kerfisins og ná jafnvægi í þjóðar-
búskapnum. f framhaldi af því
verði unnið að lækkun skatta.
Flestum mun nú Ijóst að þess-
um markmiðum verður fullerfitt
að hrinda í framkvæmd. Það ræðst
á næsta ári hvort jafnvægi næst.
Aðeins að því loknu voru gefin fyr-
irheit um að vinna að skattalækk-
un. Þetta var ábyrg stefna og til-
efnislaust fyrir Jón Kristjánsson að
gera tilraun til að snúa henni við.
Hafi einhverjir talsmenn Sjálf-
stæðisflokksins túlkað stefnu
flokksins en hér hefur verið lýst,
hafa þeir ekki stuðst við yfirlýsing-
ar forystumanna sinna eða stjórn-
málayfirlýsingu landsfundar.
Bændum meinað að
nýta loðdýrahúsin
Flestallir refa- og minnkaskálar á
landinu, sem ekki eru lengur notað-
ir undir loðdýrarækt, standa auðir
og ónotaðir vegna þess að bændum
er meinað að nýta þá. Þetta kemur
til af því að þinglýstar kvaðir eru á
loðdýrabúum um að ekki megi nota
loðdýrahús undir aðra starfsemi en
loðdýrarækt í 10 ár eftir byggingu
þeirra.
Málið snýst um það, að samkæmt
lögum, er voru í gildi þegar húsin
voru byggð, þurfti að endurgreiða af
þeim söluskatt væru þau seld eða
notuð til annars en loðdýraræktar.
Til þess hafa skuldsettir eigendur
þeirra fæstir fjárhagslegt bolmagn
og að auki er þessi kvöð ekki í sam-
ræmi við gildandi skattakerfi. Þess
vegna hefur nefnd, sem skipuð var
til að gera úttekt á greininni, lagt til
að ríkissjóður aflétti skyldu loðdýra-
bænda til að endurgreiða söluskatt-
inn af loðdýraskálunum. -ÁG.
Á mánudag koma ut ný frímerki
tileinkud fundi Ameríku
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum urn land allt.
Einnig fást þau með pöntun frá Frímerkjasölunni.
FRÍMERKJASALAN
PÓSTUR OG SÍMI
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík, Sími 63 60 51
FRA ALÞINGI
íbúð fræðimanns í
Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús
Jóns Sigurðssonar
Ibúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús
Jóns Sigurðssonar er laus til afnota timabilið 1. september
1992 til 31. ágúst 1993. Fræðimenn, sem hyggjast stunda
rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta
sótt um afnotarétt af íbúðinni sem er í St. Paulsgade 70 (ör-
skammt frá Jónshúsi). Hún er þriggja herbergja (80 ferm.),
en auk þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jónshúsi.
íbúðinni fýlgir allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður og er
hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúðinni er að
jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða
lengri eftir atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu Alþingis
eigi síðar en 15. maí nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl sinni í
Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Enn
fremur hvenær og hve lengi óskað er eftir íbúðinni. Tekið
skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti út-
hlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis í Alþing-
ishúsinu í Reykjavík og í sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykjavlkur,
óskar eftir tilboöum I viögeröir og viðhald á pappalögöu þaki unglinga-
álmu Breiöholtsskóla viö Amarbakka.
Helstu magntölur eru:
Pappalögn 1.300 m2
Þakkantur 50 m
Þakkantur meö rennum 110 m
Áfellur á þakkanta 50 m
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vom, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuð á sama staö miövikudaginn 15. apríl 1992, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar, f.h. Reykjavikurhafnar, óskar eftir
tilboöum í byggingu hafnarbakka.
Verkiö nefnist: Austurbakki — Miöbakki
Helstu verkþættir eru:
1) Stálþil, alls 277 m
2) Rif eldri mannvirkja sem fyrir eru.
3) Uppsetning 139 staga ásamt framleiöslu og uppsetningu á 139
akkerisplötum.
4) Frágangur fyllinga og gröftur efnis utan þils, alls um 20.000 m3
5) Bygging kantbita um 280 m
6) Frágangur boröarlags og malbikun á 2.600 m2
7) Holræsalagnir á 0 800 og 0 1.000 um 190 m
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofú vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk, frá
og meö þriöjudeginum 7. aprll gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 28. aprll 1992, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræöings, óskar eftir tilboöum I dúkalögn I Iþróttamiöstööina I Grafarvogi.
Um er aö ræöa u.þ.b. 700 m2 af gólfdúk.
Hluta verkslns á aö vera lokiö 15. ágúst 1992.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö fimmtudaginn 30. aprll 1992, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800