Tíminn - 04.04.1992, Side 32
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI • BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Momfellsbm
Slmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Óðravisl bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
iel
HÖGG-
jí. DEYFAR
Versiið hjá fagmönnum
Hamarsböföa 1 - s. 67-67-44
B
44j
Sannkallaður eðalvagn
á ótrúlega góðu verði.
Nissan Primera 2.0 SLX
16 ventla með öllum
aukabúnaði á aðeins kr.
1.323.000 stgr. *
* Verð án ryðvarnar og skráningagjalds.
Bílasýning í Reykjavík
og á Akureyri laugardag
og sunnudag kl. 1400 - 1700
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992
Loðdýraræktin:
95 BÚ
EFTIR
Starfandi loðdýrabú á landinu
eru nú einungis 95 talsins og af
þeim eru ekki öll í fullum
rekstri.
Þegar búin voru flest voru þau
um 260 talsins, eða tæplega þre-
falt fleiri en þau eru í dag. Heild-
arskuldir greinarinnar eru rúm-
lega 3,5 milljarðar, þannig að
velflestir refa- og minnkaskálar
landsins eru að fullu veðsettir
fyrir skuldum, hvort sem ein-
hver framleiðsla fer fram í þeim
eða ekki. Sumar byggingarnar
sem áttu að hýsa loðdýr hafa
aldrei verið notaðar vegna þess
að þegar lokið var við byggingu
þeirra var staða greinarinnar það
slæm að framleiðslan borgaði sig
ekki. - ÁG.
Barnaverndarmál: Svavar
Gestsson alþingismaður:
Svavar og
Jóhanna voru
sama sinnis
í frétt á forsíðu Tímans sl. fimmtu-
dag var sagt frá frumvarpi til laga
um vernd barna og unglinga sem nú
liggur fyrir Alþingi.
í fréttinni var sagt að Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra og
Svavar Gestsson, þáverandi mennta-
málaráðherra, hefðu deilt um það í
tíð ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar hvaða ráðuneyti ætti að
fara með bamavemdarmál.
Svavar Gestsson tekur fram af
þessu tilefni að þau Jóhanna hafi
ekki deilt um hvaða ráðuneyti skyldi
fara með forræði barnaverndarmála.
Hann hafi sjálfur lagt til að þau mál
heyrðu undir félagsmálaráðuneytið.
Síldarsöltun:
Saltað í 103
þúsund tunnur
Alls voru saltaðar 102.988 tunnur
af ýmsum tegundum saltsíldar. Þar
af voru 40.012 tunnur af sfldar-
flökurn, aðallega roðlausum. Þetta
er um 20 þúsund tunnum færra en
í fyrra og meira en helmingi minna
en árið þar áður.
Alls var söltuð sfld á 18 stöðum á
landinu og var mest saltað á Höfn í
Hornafirði, eða 20.498 tunnur. Eski-
fjörður kemur næstur með 14.535
tunnur og Grindavík í þriðja sæti
með 12.225 tunnur. Það voru 33
sfldarsöltunarstöðvar sem söltuðu í
tunnumar 103 þúsund og var mest
saltað í söltunarstöð Pólarsfldar hf.
á Fáskrúðsfirði, eða 11.893 tunnur.
Næst kom Skinney á Hornafirði
með 10.306 tunnur og því næst
Fiskimjölsverksmiðja Homafjarðar
með 10.192 tunnur. Aðrar söltunar-
stöðvar vom mun lægri. -PS