Tíminn - 08.04.1993, Síða 14

Tíminn - 08.04.1993, Síða 14
14Tíminn Fimmtudagur 8. apríl 1993 Halldór Blöndal landbúnaðarráöherra veitti þeim Þórði Erni Amarsyni, Áma Guðbjörnssyni og Áma Kristinssyni sérstök verðlaun fyrír skil á örmerkjum úr veiddum löxum á fundi Veiðimálastofnunar i gær. 1.500 kr. A MANUÐI OG ÞIÐ FAIÐ Já, það er ódýrara en margir halda að teppaleggja stigana. Hér eru dæmi um verð á viðurkenndum teppum sem þola mikið álag. Dxmi 1:6 íbúða stigahus i Flúðaseli. Dæmi 1:8 ibúða stigahús i Stóragerði. Staógreiðsluv. Ur. 26.147,- pr. íbúó. M/afborgunum. kr. 27.200,- pr. íbúó. 8 mánaóargr. kr. 3.400,- pr. íbúð. 12 mánaðargr. kr. 2.300,- pr. íbúð. 18 mánaðargr. kr. 1.500,- pr. íbúð. Staðgreiðsluv. |<r. 22.000,- pr. íbúð. M/afborgunum. kr. 23.200,- pr. íbúð. 8 mánaðargr. |<r. 2.900,- pr. íbúð. 12 mánaðargr. |<r. 1.900,- pr. íbúð. 18 mánaðargr. |<r. 1.300,- pr. íbúð. * Algengt er að útborgun nemi 1/3 af kaupverði og eftirstöðvar greiðist á 6 mánuðum. Sumir kjósa að greiða með greiðslukorti og dreifa afborgunum á allt að 11 til 18 mánaða greiðslutímabil. Með þeim hætti getur mánaðargreiðsla á hverja íbúð farið niður í kr. 1.500,- pr. íbúð Gerum góð staðgreiðslutilboð. VORTILBOÐTIL I.JÚNÍ Á vormánuðum bjóðum við sérstakt tilboðsverð á teppum fyrir stigahús. Við fjarlægjum gömul teppi, mælum upp, sníðum og leggjum ný teppi fljótt og vel. Við lánum stórar teppaprufur og sendum ráðgjafa á húsfund ef óskað er. ^MR GEro.R Í tugum L(Ta, TEPPABUÐIN. TEPPI»FLÍSAR • PARKET • DÚKAR • MOTTUR • GRASTEPPI • VEGGDÚKAR • TEPPAFLÍSAR • GÚMMÍMOTTUR • ÖLL HJÁLPAREFNI GOLFEFNAMARKAÐUR • SUÐURLANDSBRAUT 26 • SIMI 9 I -68 I 950 Allt að 400 þús. göngu- seiði merkt Á hverju ári eru merkt allt að 400 þúsund gönguseiði með örmerkj- um á vegum Veiðimálastofnunar. Stofnunin veitir vegleg verðlaun fyrír innsend merki, þar sem þau eru mjög nauðsynleg til að kanna feril físksins. Sveiflur í iaxveiði eru miklar, en á síðasta sumrí varð aft- ur aukning í laxveiði. Þetta kemur m.a. fram í fyrsta fréttabréfi Veiðimálastofnunar, sem lá frammi við verkefnakynningu stofnunarinnar í gær. Þar segir að eftir lægð í veiði þrjú ár á undan ár- inu 1992 hafi aftur orðið aukning á laxveiði. Til marks um það veiddust 41.700 laxar á stöng eða um 10.000 löxum meira en árið áður. Netaveiði var hins vegar minni, aðallega vegna þess að ekki var stunduð netaveiði í Hvítá í Borgarfírði annað árið í röð. Fram kemur að sveiflur í laxveiði séu oft miklar á milli ára, einkum norðanlands, og er það talið stafa af minni laxgengd í ám. Þá segir að fyr- ir nokkrum árum hafi byrjað lang- tíma rannsóknarverkefni til að Ieita orsaka fyrir þessu. Sagt er að þunga- miðja þeirra séu rannsóknir í Elliða- ánum og í Vesturdalsá í Vopnafirði. Rannsóknin fer þannig fram að fylgst er árlega með seiðabúskap ánna og gönguseiðafjöldi á hverju vori er metinn. í gær veitti stofnunin í fyrsta skipti verðlaun fyrir innsend örmerki. Dregin voru nöfn tíu veiðimanna úr fjölmennum hópi veiðimanna og fengu þrír þeirra veiðidaga í góðum laxveiðiám í verðlaun. Yfir 10.000 manns notið meðferðar 3ja kírópraktora Kírópraktorar segjast eina sjúk- dómsgreinandi heilbrígðisstéttin á íslandi, sem veiti viðurkennda heil- brigðisþjónustu sem ekki er niður- greidd af ríkinu. Sjúkrasjóðir verkalýðsfélaga hafa hins vegar greitt fyrir meðferð fé- lagsmanna sinna að hluta eða að fullu; einnig er nokkuð um að vinnuveitendur greiði fyrir meðferð starfsmanna sinna, og tryggingafé- lög greiða fyrir meðferð í vissum til- fellum. Þrír kírópraktorar starfa nú á íslandi. Sá fyrsti hóf störf 1978, en hinir tveir komu til starfa 1989. Yfír 10.000 íslendingar hafa þegar notið meðferðar þeirra, flestir af Reykja- víkursvæðinu. Tilvísunum frá lækn- um hefúr fjölgað nokkuð á síðustu árum. Kírópraktorar á Norðurlöndum hafa nýlega staðfest formlegt sam- band sín á milli með stofnun Sam- bands kírópraktorafélaga á Norður- löndum. Mun sambandið m.a. vinna að lagalegri samræmingu varðandi störf kírópraktora á öllum Norður- löndunum. í Noregi, Svíþjóð og Danmörku hafa nýlega verið lögfest réttindi kírópraktora til þess að starfa sem sjálfstæð heilbrigðisstétt, þ.e. án samráðs við lækni. Samband- ið mun einnig vinna að samræmdri menntun kírópraktora á háskóla- stigi, og hafa þeir notið stuðning Norðurlandaráðs til þess. í frétt frá Kírópraktorafélagi ís- lands segir m.a. að fjórar milljónir Norðurlandabúa hafi notið þjónustu kírópraktora á síðustu árum. Þar sem Norðurlandabúar eru alls um 23 milljónir, svarar þetta til þess að meira en sjötti hver hafi farið til kír- ópraktors á skömmum tíma. Sam- svarandi hlutfall fyrir ísland þýddi að um 45.000 manns færu til kíróp- raktors á nokkurra ára tímabili. - HEI REYKVIKINGAR! NÚ ER KOMINN TÍMI NAGLADEKKIN AF FYRIR SUMARDEKKIN SUMARDEKKIN Á GATNAMÁLASTJÓRI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.