Tíminn - 26.06.1993, Side 12
12Tíminn
Laugardagur 26. júní 1993
Hjá okkur fáið þið fiest, er ykkur vanhagar um
á ferðalagi, og veitingaskáli okkar býður upp á:
ÝMISLEGT TIL HRESSINGAR
Verið velkomin á félagssvæði okkar
Kaupfélag Langnesinga
ÞÓRSHÖFN - BAKKAFIRÐI
gistihús að Hraunbæ í Aðaldal
í Suður-Þingeyjarsýslu,
við þjóðveg nr. 845.
Nánari upplýsingar og pantanir í
símum: 96 - 4 35 95 og
96 - 4 36 95
Ýmislegt áhugavert fýrir ferðamenn á Dalvík, segir Hannes Garðars-
son, form. ferðamálanefndar:
Miðnætursólarsigl-
ingar og sjóstanga-
veiði það nýjasta
„Fyrst og fremst finnst manni nú kannski feguröin hér inni í Svarfaðardai
hafa aödráttarafl. En hér á Datvík er einnig ýmislegt áhugavert að finna,"
sagði Hannes Garöarsson, formaður féröamálanefndar Dalvíkur. Tím-
inn spurði hvað hann benti áhugasömum ferðamönnum á að skoða og
gera, ef þeir leggja leiö sína til Dalvíkur.
„Byggðasafnið okkar Hvoll, sem
um leið er náttúruminjasafn,
finnst mér t.d. mjög áhugavert.
Þar er m.a. mikið af uppstoppuð-
um fuglum, eggjasafn, plöntu-
safii, steinasafn og stór upp-
stoppaður ísbjöm með selskóp
undir hramminum, svo nokkuð
sé nefnt. Mörgum þykir líka
gaman að sjá herbergi Jóhanns
risa, sem er í safninu. Og einnig
herbergi sem þar er tileinkað
Kristjáni Eldjárn, fyrmm forseta
íslands." Sjáífur sagðist Hannes
hafa farið nokkmm sinnum á
safnið og þó eiga eftir að fara oft
í viðbót.
Sömuleiðis nefndi hann nýlega
stofhað fyrirtæki, sem býður upp
á sjóstangaveiði og siglingar,
ekki hvað síst næturferðir í mið-
nætursólina núna um þessar
mundir. Sjálfur hefur Hannes
ekki enn komist í ferð með bátn-
um. „En ég hitti mann, sem far-
ið hafði í eina slíka ferð og var al-
veg yfir sig hrifinn. Hann sagði
það afar áhrifaríkt og stórfeng-
legt að sigla hér undir björgun-
um í miðnætursólinni." Eigend-
ur sama báts bjóða upp á ferðir
til sjóstangaveiði. Hópar gætu
jafnvel leigt bátinn sérstaklega f
slíkar ferðir.
Og fleiri möguleikar til stang-
veiði standa til boða á Dalvík,
m.a. í Hrísatjörn, þar sem sleppt
hefur verið iöxum. Sérstök verð-
laun verða veitt þeim veiði-
mönnum sem tekst að veiða þá
tvo þessara laxa sem merktir
vom sérstaklega áður en þeim
var sleppt. Síðast en ekki síst er
svo veiði í Svarfaðardalsá.
Enn nefndi Hannes prýðilegt
íþróttasvæði fyrir þá sem vilja
hlaupa eða reyna sig í öðmm
íþróttum. Golfvöll í Svarfaðar-
dal. f nágrenni Dalvíkur geti fólk
leigt sér hesta. Og þeim sem hafi
rúman tíma mætti benda á mjög
skemmtilegar gönguleiðir. Það
sé t.d. góð dagsferð að ganga yfir
í Ólafsfjörð, eða hæfilegur 6 tíma
gangur.
En hvar er þá auðveld leið til að
fá nánari upplýsingar um þetta
allt saman fyrir þann, sem renn-
ir f hlað á Dalvík ókunnugur og
óundirbúinn?
„Það er nokkur brotalöm hjá
okkur, að það er engin sérstök
upplýsingaþjónusta héma.“
Hannes sagði það hins vegar
tfðkast á þessum smærri stöð-
um, að ferðamenn geti bara
spurt næsta heimamann sem
þeir hitta. Flestir geta leiðbeint
fólki um þá hluti sem það vantar
að vita eða hvert þeir geti snúið
sér. „Þannig að okkur hefur ekki
fundist þetta neitt stórvanda-
mál,“ sagði Hannes. - HEI
ÁSBYRGI
GOÐAFOSS
ALDEYJARFOSS
DETTIFOSS
Veriö velkomin á félagssvæði okkar, sem
býður upp á marga fegurstu staði landsins
Við bjóðum þjónustu okkar á HÚSAVÍK í:
K.Þ. Matbæ (matvöruverslun)
K.Þ. Miðbæ (fatnaður - ferðavörur - íþróttavörur o.fl.)
K.Þ. Smiðjunni (vélavarahlutir - byggingavörur - verkfæri o.fl.) i
Söluskálanum Naustagili (matur - drykkur o.fl. o.fl.)
í útibúum að: Fosshól við Goðafoss - Laugum, Reykjadal -
Reykjahlíð við Mývatn - Ásbyrgi - Gljúfrabúi við Laxárvirkjun -
sem öll veita ferðamönnum margvíslega þjónustu.
ESSO þjónusta.
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA