Tíminn - 26.06.1993, Blaðsíða 13
Laugardagur 26. júní 1993
Tíminn 13
Ferðaþjónusta að Ytri-Vík:
Sjávar-
rétta-
hlaðborð
úti á
miðjum
Ferðaþjónustan að Ytri-Vík við
vestanverðan Eyjafjörð hyggst
fara af stað með nýjung í þjónustu
við ferðamenn í sumar. Það eru
feðgaralr Sveinn Jónsson, bóndi
að Kálfskinni, og sonur hans Nar-
inó Sveinsson sem standa að fyr-
irtældnu.
Auk þess að reka ferðaþjónustu á
bænum Ytri-Vík, þar sem boðið er
upp á gistingu, fæði, hesta-
mennsku o.fl., ætla menn þá á bæ
að bjóða upp á sjóstangaveiði frá
Hauganesi, en þangað er aðeins
um fimm mínútna akstur. Það er
báturinn Níels Jónsson frá Hauga-
nesi, sem verður notaður við veið-
amar.
Það sem boðið verður upp á og er
nýtt, er sjávarréttahlaðborð á með-
an rennt er fyrir fisk úti á miðjum
Eyjafirði. Það er fyrirtækið
Traustamenn á Hauganesi sem
leggur til veislukostinn, sem er
blandaðir sjávarréttir, en auk þess
svartfugl sem fyrirtækið framleiðir
f neytendapakkningum. Reiknað
er með að farið verði einu sinni f
viku frá Hauganesi.
Blaðamaður Tímans fór f siglingu
af þessu tagi nú á dögunum ásamt
nokkrum ferðamönnum og ekki
var annað að sjá en að þeir væru
himinlifandi, bæði með veiðina og
veitingamar.
Auk þessa ætlar ferðaþjónustan
að Ytri-Vík að bjóða upp á köfunar-
ferðir í sumar og jaftivel hvala-
skoðun þegar á sumarið líður.
Ferðafól káNor ðurlandi
Fjölbreytt þjónusta við hringveginn — og víðar!
Útibú Kf. Skagfirðinga í Varmahlíð Bjóöum feröafólki fjölbreytta þjónustu á fögrum staö viö þjóöveg nr. 1: • Verslun meö dagvöru og ferðavörur. • Rúmgóð veitingastofa með allar veit- ingar. • Olíur og bensín. • Opið frá kl. 09:00-23:30. Útibú Kf. Skagfirðinga á Hofsósi og Ketilási í Fljótum Dagvöruverslanir, léttar veitingar, olíur og bensín. • Opið frá 09:00-20:45. Verslun og þjónusta á Sauöárkróki, þar sem athafnalífið blómstrar! Á Sauöárkróki býður Kf. Skagfiröinga þjónustu sína: • Skagfirðingabúð, stærsta alhliða vöru- hús á Norðurlandi og ef til vill víðar! • Bifreiðaverkstæði, varahlutir og smur- þjónusta. • Vélsmiðja, rafmagnsverkstæði, afurða- stöðvar o.fl. o.fl., bara að nefna það!
velkomin í Kdllpfcld^ SkU^fÍfðlll^U Skagaljörð. sauðárkróki -varmahlíð - hofsósi - ketilási
Húsavfk á vordegi. '
Margt að sjá og gera fyrir ferðamenn á Húsavík:
Húsavíkurbær selur hótelhlut
Ferðamenn eru farair að láta sjá sig
á Húsavík á þessu sumri, að sögn
Einars Njálssonar, bæjarstjón á
Húsavík, en ferðamannaþjónusta
gegnir æ stærra hlutverki í atvinnu-
lífi bæjarins. Nýlega seldi Húsavík-
urbær hlut sinn í Hótel Húsavík
fyrir um 20 milljónir króna. Kaup-
endur voru einstaklingar á Húsavfit,
sem standa framarlega í þjónustu
við ferðamenn.
Á Húsavík er fyrir hendi ágæt gisti-
aðstaða fyrir ferðamenn, þar er hót-
el, gistiheimili og tjaldstæði. í bæn-
um er rekin ferðaskrifstofa. Hægt er
að komast í dagsferðir að Dettifossi
og boðið er upp á siglingaferðir um
Skjálfandaflóa og í Flatey. Bærinn
rekur stofnanir sem ferðaimenn eru
duglegir að nýta sér, s.s. sundlaug
og safnahús. Margir hafa auk þess
gaman af að skoða fagran skrúðgarð
Húsvíkinga. Einar Njálsson sagðist
því geta sagt með góðri samvisku að
ferðamenn hafi margt að sækja til
Húsavíkur. Það sé kjörið að koma
þar við um leið og farið er um Mý-
vatnssveiL
Nýlega seldi Húsavíkurbær hluta-
bréf sín í Hótel Húsavík. Kaupendur
eru Páll Þór Jónsson og Bjöm
Hólmgeirsson, en þeir hafa báðir
fengist við ferðamannaþjónustu um
nokkurt skeið. Páll er í forsvari fyrir
Ferðamálafélagið og rekur auk þess
gistiheimili. Bjöm rekur ferðaskrif:
stofu og hefur verið umboðsmaður
Flugleiða. Þeir félagar kaupa hlut
bæjarins, sem var rösk 47%, á um
20 milljónir. Einar sagði að rekstur
hótelsins hafi gengið sæmilega,
a.m.k. hafi menn mikla trú á rekstr-
inum. Nýbúið er að ráða nýjan hót-
elstjóra. -EÓ
Sumarbústaðaeigendur!
uið smíðupi fyrir ykkur: glugga,
ojmfnlega glugga, svalahurðir,
GLUGGAR & HURÐIR
Skemmuvegi 18 blá gata, 200 Kópavogi
Slml 641980, fax 670448