Tíminn - 26.06.1993, Síða 18

Tíminn - 26.06.1993, Síða 18
18Tíminn Laugardagur 26. júní 1993 4 / Jón Gauti Jónsson, atvinnumálafulltrúi Akureyrarbæjar. Blómahúsiö var opnaö I vor. Þar eru boönar veitingar, blóm og gjafavara. Viðhorf ferðamanna í Eyjafirði könnuð: Markaðsfyrirtæki ferðamála stofnað á Akureyri? Myndir og texti: Þórgnýr Dýrfjörð i m merg Athugið breytt og nýtt símanúmer hótelsins: 1 Varmahlíd: sundlaug p ó sthú s verslanir veiðileyfi hestaleiga Vegna mikillar aðsóknar bendum við viðskiptavinum okkar á að staðfesta pantanir sem allra fyrst. Njótið lífsins í Skagafirði! Velkomin ó Hótel Varmahlíó! 560 Varmahlíð s: 95-38170 fax: 95-38870 Hótel VARMAHÍÐ, Skagafirði, verður opnað formlega 18. júní í nýju og endurbættu húsnæði. Rúmgóð björt herbergi og glæsilegur I 10 manna matsalur 195-38170 Akureyri hefur lengi haft það orð á sór sem ferðamannabær að vera „gegnumstreymisstaður" eða áningarstaður þar sem fðlk staldrar við stutta stund á leið sinni ettthvað annað. Blaðamaður Tímans kom aö máli viö Jón Gauta Jónsson, atvinnumálafulltrúa Akureyrarbæjar, en hann hefur haft ferðamál á sinni könnu. — Er það rétt að ferðamenn ataldri almennt stutt við á Akur- eyri? „Akureyri hefur lengi haft þetta slyðruorð á sér, en ég held að við sé- um smám saman að reka það af okk- ur. Það hefur gerst með hægri þró- un undanfarin ár, en ég er ekki frá því að á þessu ári hafi orðið og séu að verða nokkur kaflaskil í þessum efnum. Bæjarfélagið veitir umtals- verðum fjárhæðum til ferðamála eða u.þ.b. 10 milljónum á þessu ári, þ.e.a.s. beint f þennan málaflokk. Þessum peningum er varið í útgáfu bæklinga fyrir ferðamenn, rekstur upplýsingamiðstöðvar á móti Bif- reiðastöð Norðurlands, í styrki til einstakra verkefna og svo rekstur á snyrtingum í bænum. Rekstur á tjaldstæði, sundlaug, söfnum og öðru sem kemur ferðamönnum einnig til góða er semsagt fyrir utan þetta. Ég held því að Akureyri taki nokkuð myndarlega á þessum mál- um, auk þess sem stór hluti af mín- um vinnutíma fer í þessi mál.“ Nýtt markaðsfyrirtæki á sviði ferðamála í Eyjafirði — Hefur straumur ferðamanna og viðhorf þeirra eitthvað verið athug- uð? „Atvinnumálanefnd hyggst gera viðamikla könnun í sumar á við- horfi fólks til ferðaþjónustu á Eyja- fjarðarsvæðinu og reyna þá einmitt að fá svarað spurningunni um hvort fólk standi stutt við. Við vonumst þá einnig til þess að fá upplýsingar um hvað á vantar, ef eitthvað. Akureyr- arbær hefur einnig verið í farar- broddi fyrir þeirri hugmynd að sveitarfélögin á svæðinu setji á stofn kynningar- og markaðsfýrir- tæki sem sæi um ferðamál fyrir allt Eyjafjarðarsvæðið, jafnt gagnvart innlendum sem erlendum ferða- mönnum. Draumurinn er sá að þetta fyrirtæki taki til starfa um næstu áramót, en hugmyndin verð- ur kynnt nú á vorfundi héraðs- nefndar 29. júní. Ef af verður, mundi það þýða margskonar hag- ræðingu t.d. bara í auglýsingakostn- aði. Auk þess sem markaðsmál hvers sveitarfélags yrðu á einni hendi." Fimm nýir veitingastaðir — Þú nefndir að það hefðn jafnvei orðið nokkur kaflaskil í þjónnstn við ferðamenn i þessu iri? Ji, það eru vissir hlutir sem hrint hefur verið í framkvæmd og á eftir að hrinda f framkvæmd á þessu ári af hálfu bæjarins og svo nýir hlutir í bæjarlífinu, sem geta breytt miklu. Það komu saman nokkrir hags- munaaðilar nú uppúr áramótum til þess að koma af stað átaki undir heitinu JVkureyri, staður til að slaka á!“ þar sem byggt var á skíða- aðstöðunni annarsvegar og menn- ingunni hinsvegar. Þessu verkefni lauk nú í vor og það er mál manna að vel hafi tekist að laða að ferða- menn sem sóttu skfðin, sáu Leður- blökuna eða Evftu f Sjalianum og veitingahús og hótel nutu góðs af. Þetta var í vetur, en í sumar er Eitt af nýju veitlngahúsunum á Akureyri, Viö Pollinn. ) U +

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.