Tíminn - 26.06.1993, Page 19
Laugardagur 26. júní 1993
Tíminn 19
Úr sjóstangaveiði.
margt að gerast. Ég vil byrja á því að
nefna nýja veitingastaði sem komið
hefur verið á fót. Eg vil ekki gera lít-
ið úr þeim sem voru hér fyrir, þeir
hafa allir staðið sig vel, en það hafa
opnað og eru að opna fimm nýir
veitingastaðir nú í vor og hver með
sinn blæ, þannig að fjölbreytnin
hefur aukist gífurlega. Það má
nefna staði eins og Blómahúsið,
sem byggir á fjölskyldunni og að
sjálfsögðu blómum og gjafavöru,
Við Pollinn, sem er huggulegur
kaffi- og vínveitingastaður, og svo
kaffíhúsið Karólínu í Listagilinu.
Auk þessara staða opnar nýr staður í
Sunnuhlíð og nýr matsölustaður
við Strandgötu. Ég tel að þessir
staðir berjist ekki innbyrðis eða
ekki á sömu mörkuðum, þó að ég
geri mér grein fyrir að sjálfsagt
verði erfitt hjá einhverjum í haust
þegar það dregur úr ferðamanna-
straumnum.
í öðru lagi þá beittu atvinnumála-
nefnd, Ingólhir Ármannsson menn-
ingarfulltrúi og Guðný Gerður
Gunnarsdóttir, forstöðumaður
Minjasafnsins, sér fyrir því að auka
hlut lista og menningar í ferðaþjón-
ustu á Akureyri. Við boðuðum
nokkra aðila til fundar f Laxdalshúsi
og báðum þá að fara á hugarflug,
setja upp dagskrá sem miðaði að því
að koma listum og menningu f
„söluhæfan" búning. Niðurstaðan
varð sú að gefa listamönnum kost á
að koma fram með aðstoð bæjarins,
en samt sem áður á eigin áhættu."
Uppákomur á hveijum
degi í rúman mánuð
— Hvernig kemur Akureyrarbær
inn í þetta verkefni?
„Bærinn er f raun ekki að kaupa
neitt. Það sem hann leggur til er
einn starfsmaður í sumar, sem hef-
ur umsjón með verkefninu og
Ferðamáíafélag Eyjafjarðar, Gilfé-
lagið og MENOR greiða laun hans á
móti bænum. Bæjarfélagið leggur
auk þess til húsnæði í Tilraunasaln-
um f Listagilinu, Laxdalshúsi eða
öðru húsnæði sem bærinn hefur yf-
ir að ráða. Þá geta listamenn fengið
sviðsvagn til afnota við það sem ger-
ist utandyra. Vinnuskólinn leggur
einnig til einn vinnuflokk með um-
sjónarmanni til þess að auglýsa og
kynna þær uppákomur sem verða á
boðstólum. Þessi vinnuflokkur mun
fara um bæinn, upp á tjaldstæði og
víðar til þess að kynna það sem fram
fer. Við ætlum ekki að auglýsa út á
við, heldur ætlum við að auglýsa
meðal þeirra sem eru í bænum, í
von um að þeir staldri lengur við.
Með þessu móti vonumst við til að
geta boðið upp á ýmiss konar list-
viðburði á hverjum degi frá 5.-10.
júlí fram í miðjan ágúst. Það er svo
listamönnunum í sjálfsvald sett
hvort þeir selja inn á sína viðburði
eða ekki.“
— Hvað um aðra þættl ferða-
mannaþjónustunnar?
„Það er eitt sem hefur verið að auk-
ast á undanförnum árum, en það
eru skemmtisiglingar um Eyjafjörð.
í sumar er kostur á þremur bátum í
siglingar og sjóstöng, fyrir utan Sæ-
fara sem siglir reglulega til Hríseyj-
ar og Grímseyjar. Ég hef alltaf litið á
Eyjafjarðarsvæðið sem eitt ferða-
mannasvæði og geri ekki greinar-
mun á því hvort báturinn er gerður
út frá Dalvík eða Akureyri.
Við bjóðum auk þessa upp á ýmis-
Iegt sem hefur verið hér lengi og
stendur alltaf fyrir sínu. Þar má
nefna Kjarnaskóg, sem er paradís
sérstaklega fyrir íslendinga, Lysti-
garðinn, söfn af ýmsu tagi, góðan
golfvöll, hestaleigu og hjólaleigu.
Ferðaféíag Akureyrar hefur stikað
gönguleið upp á Súlur og inn Gler-
árdal og inn á Lamba og reist þar
brú yfir Glerána svo hægt sé að
ganga til baka hinum megin.
Ég spyr nú bara: Hvað vill fólk
meira?“
Séð yfir þingið í íþróttahúsi Sauðárkróks. Tímamynd: Guttormur Óskarsson
Umdæmisþing Rotary haldið á Sauðárkróki:
Verðlaun veitt fyrir
árangur í hrossarækt
Umdæmisþing Rotary á fslandi var Hákon Magnússon, Rotary-klúbbi ary-umdæmisins voru veitt og hlaut
haldið á Sauðárkróki fyrir skömmu. Seltjarnamess, við af honum. Sveinn Guðmundsson frá Sauðár-
Við það tilefni lét Gestur Þorsteins- 230 Rotary-félagar sóttu þingið, króki þau fyrir góðan árangur í
son, Rotary-klúbbi Sauðárkróks, af sem þykir hafa tekist vel í alla staði. hrossarækt
starfi umdæmisstjóra og tók Jón Verðlaun úr starfgreinarsjóði Rot- -GKG.
Sam vin n ubókin
f
6,50% nafnvextir
6,61% ársávöxtun
Arsávöxtun
á síðasta ári
var 6,92%
Raunávöxtun á
síðasta ári
var 5,35%
Innlánsdeild Kaupfélags
Skagfirðinga