Réttur - 01.07.1927, Blaðsíða 52
Í50 HEIMSPEKI EYMDARINNAR [Rjettur
íhugunarvert í svörum herra Jinarajadasa. En ég hygg
þó, að það drepi meira og minna á flest þau atriði í
svörum hans, er skifta þau sjónarmið einhverju máli,
er spurningar mínar voru miðaðar við. En sökum þess
að hér er ekki svarað einu svari, heldur mörgum eða
öllu heldur pörtum úr mörgum svörum, þá varð efni
bréfsins dálítið sundurlaust. Þrátt fyrir það má lesa
nokkurn veginn út úr þessum hugsanabrotum megin-
þráðinn og andann í allri svarræðu varaforsetans. Og
mér vitanlega er hvergi hallað réttu máli né neitt sagt
í bréfi þessu, sem fer í bága við þau atriði í svörum
Jinarajadasa, er mér vanst ekki tími til eða taldi á-
stæðulaust að svara. Þess skal þó getið, að einstaka at-
riði eru rakin hér lítið eitt gjör en í frumtaxta mínum
á esperantó. En þeir viðaukar hagga í engu efni frum-
ritsins.
Upphaflega gerði ég ekki ráð fyrir, að þetta bréf
mitt birtist á prenti. En nú hefir Morgunblaðið stilt
svo til, að spunnist hafa opinberar umræður út af
nokkrum atriðum í svörum herra Jinarajadasa. Og
Lögrétta hefi'r flutt lesendum sínum fregnir af þeim.
Ennfremur er ég nú kominn á þá skoðun, að flest eða
öll þau svör varaforsetans, sem hér eru gerð að um-
ræðuefni, séu í raun og veru almenn og opinber lífs-
speki, er hann hlýtur að hafa velt fyrir sér áratugum
saman og boðað mannkyninu á fyrirlestrarferðum sín-
um út um heiminn síðustu tuttugu árin. Eg hefi áð
minsta kosti rekist á margt af þessu áður í sumum rit-
um hinna meiriháttar guðspekinga. Og hér heima fyrir
er þessi hugsanaferill mér of kunnur á vegum margra
guðspekinema. Eg er þess vegna hér að svara opin-
berri lífsspeki, sem hræsnarar eða einfeldningar beita
til þess að deyfa réttlætiameðvitund manna, afsaka
glæpsamlega meðferð á smælingjum mannkynsins og
draga viturlega heimspeki niður í mannspillandi
klerkasiðfræði og trúarlega hleypidóma. Loks hafa