Réttur


Réttur - 01.02.1942, Side 5

Réttur - 01.02.1942, Side 5
til móts við mig, heilsar mér með handabandi og býðm* mér til sæitis í mjög góðum stól við boröið andspænis hans eigin öndvegi. Þá réttir hann mér skjal nokkurt frá forsætisráðherra, þar sem saka- dómara er fyrirskipaö að efna til rannsóknar út af grein, sem ég hafði skrifað' í Nýtt dagblað og bar nafnið: „Hinir stærri sér”. Þar var honum fyrir- skipað að höfða gegn mér sakamál að rannsókn lokinni fyrir brot gegn ákveðinni grein hegningalag- anna. Þá var mér réttur svolítill blaðsnepill, sem mér varð starsýnt á og þótti mjög merkilegur. Það var vottorð um það frá mjög háum aðilum, að mistri Hellyer væri á þessari stundu staddur hér á landi. Formið var einna líkast lífsvottorði barna, sem prestur gefur og látið er fylgja rukkun um bamsmeðlög. Var mér á allan hátt hulin þýðing þessa vottorðs, en öðlaöist síðar skilning þessa merkilega fyrirbæris, svo sem síðar kemur í ljós. Ve'ifar sakadómari nú framan í mig Nýju dagbiaði, þar sem áðurnefnd grein stóð áþrykkt, og spyr mig, hvort ég sé ritstjóri þessa blaös. Já kvað ég við því, en spurði jafnframt, hvort ég væri hér fyrir rétti. Honum hafði nú reyndar láðst að geta þess áður, en viðurkenndi þó að svo væri. Ekki áminnti hann mig heldur um sannsögli, hefur sennilega vitað, að gagnvart mér var það óþarfi. Hinsvegar er þaö enn ekki komið í venju hér að mönnum sé fyrirskipað að ljúga fyrir 'rétti. Þá spyr hann mig, hvort ég hafi skrifað áminnsta grein, og kvað ég já við. Og að lok- inni skýrslutöku um æfiferil minn, spurð* hann mig, hverjar varnir ég hefði fram aö færa. Ég spurði auðvitað, hvað þaö væri, sem mér væri gefið að sök. „Þessi grein”, segir haim og bendir á blaöiö. „Hvað í gi'eininni?” spurði ég. „Þér vitiö líkasttil, hvaö þér hafið skrifað", sagði hann. Jái það er nú svo. Það er meira en ég get tekið að 5

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.