Réttur - 01.02.1942, Page 18
hlutverki og aðstöðu dómsvaldsins og veilum þess.
Með grein þessari hef ég viljað gera mitt til að vekja
athygli hennar á ástandinu. Finnist sérfræðingum í
réttlætismálum hér ekki rétt meö farið á allan hátt,
þá tel ég það ekki á neinn hátt fyrir neðan sóma
þeirra að gera sínar athugasemdir hér við. Og um
leið og ég afhendi þessa ritgerð mína Rétti til
birtingar, þá lýsi ég þvi yfir, að Réttur tekur góð-
fúslega á móti andmælum gegn orðum mínum og
athugasemdum, sem á rökum eru reistar. Það er
þjóðarnauðsyn, að hreyfing komist á um réttarfars-
mál hennar og hún fái að átta sig á því, hvemig
sakir standa á því sviði.
Staddur á Landráðavöllum við Skólavörðustíg,
7.—9. febrúar 1942.
Gunnar Benediktsson.
Hlöðrcr Sígurðsson:
Tvö Ijóðskáld
Tómas Guðmimdsson hefur nú gefið út þrjár ljóða-
bækur og hlotið allmiklar vinsældir fyrir. Þeirra Vin-
sælda er hann á margan hátt maklegur. Ljóð hans
hafa yfirleitt mjög persónulegan blæ. Það er nokkuð
auðvelt að þekkja ljóð hans frá ljóðum annarra
skálda. Hugðnæm ljóðræna talar í öllum kvæðum
hans. Hættirnir eru léttir. Formið allt er óbrotið, en
sérlega vandað. Og svo er hann líka snillingur að
18