Réttur - 01.02.1942, Blaðsíða 12
og miklu veldi kveður hann upp svohljóðandi dóm
í málinu: Réttvísin gegn Gunnari Benediktssyni:
„í ummælum þeim, sem ákærða eru til sak-
ar talin í máli þessu, er það gefið í skyn, að
fulltrúi brezku stjórnarinnar, sem þar er
veitzt að, noti aðstöðu sína sér til auögunar.
Þykir 'refsing ákærða því hæfilega ákveðln 15
daga varðhald11.
Nú er vert að nema staðar og athuga þessar sakar-
giftir, því að þær eru sannkölluð rúsina.
IV.
Það hafa oft verið sendar sanminganefndir frá
íslandi til útlanda og ekki sízt til Bretlands. Einn
fulltrúinn í þeim nefndum hefur oftlega verið Ric-
hard Thors. Af hverju skyldi hann svo oft hafa verið
valinn til slíkra sendiferða? Ástæðan liggur í augum
uppi. Hann er einn af stórútgerðarmönnum landsins
og hann er sendur til’ að gæta hagsmuna stórút-
gerðarinnar. Mun honum nú vera bannað það beint
eða óbeint að nota aðstööu sína hér til auögunar?
Nei, honum er þvert á móti boðið það, hann er beih-
línis settur í nefndina til þess að hann geri það.
Standi hann sig vel í umboðsstarfa sínum, þá nær
hann hagkvæmum samningum fyrir útveginn, og um
leið græðir hann sjálfur á samningunum, af því að
hann er við útveg riöihn. Trúmennskan við umboðið,
sem honum er gefið, og hans eigin hagsmunir fara
saman, það er ekki hægt aö bregðast öðru án þess að
bregðast hvorutveggja. Þessvegna bera umbjóðendur
sérstakt traust til hans og fela honum þennan starfa
á hendur.
Nú leyfi ég mér að álíta, að eitthvað líkt þessu
ráði fulltrúavali, þegar brezka ríkið sendir samn-
inganefnd hingaö til íslands. Meö í förinni eru full-
12