Réttur


Réttur - 01.02.1942, Side 63

Réttur - 01.02.1942, Side 63
höfuðin af annarra þjóða mönnum. Hveitibrauðsdag- arnir voru búnir — nú voru launin lækkuð, verkföll bönnuð, vinna féll niður. Frú Meunier dró niður gluggatjöldin; mennimir í eldhúsinu lækkuðu röddina. Ökunni drengurinn lygndi augunum rétt eins og hann væri hræddur um, að hin hvössu augu hans mundu koma upp um hann. Hann var svo fölur og þunnur á vangann, að Meunier horfði á hann fýlulegur á svipinn og sagðist vera hræddur um, að hann hefði tekið sótt og mundi smita hin börnin. Frú Meunier skrifaði sjálfri sér bréf, þar sem „frænka“ hennar bað hana um að hafa drenginn dálítið lengur — maðurinn hennar væri svo veikur og hún vildi vera viö sjúkra- beð hans um stund. „Hún gerir sér ekki miklar grill- ur út af snáðanum“, sagði Meunier. Frú Meunier flýtti sér að hrósa stráknum. Hann væri svo fengsæll: „Á hverjum morgni fer hann á fætur klukkan fjögur til þess aö komast á markað- inn; hann náði til dæmis í morgun í þetta inndæla nautakjöt og þurfti engan matarmiöa". í sama húsi og Meunierhjónin, bjuggu tvær systur. Þær höfðu alltaf haft illt orð á sér. Nú fóru þær að venja komur sínar á knæpuna hinumegin viö göt- ima og sátu á hnjám hinna þýzku vélfræðinga. Lög- reglumaður einn kom auga á þær og fór með þær báðar á lögreglustöðina. Þær urruðu og börðust eins og óðar væm, en hann fékk þær skráöar á lista vafa- gemlinganna. Öll gatan fagnaði þessu. En systurnar urðu nú hálfu verri en áður. Þýzku vélfræöingarnir gengu eins og gráir kettir í híbýlum þeirra. Inn í í eldhús Meuniershj ónanna mátti greinilega heyra í þeim hávaðann. Þetta var ekki lengur hlátursefni Meunier og vinum hans. Meunier hrósaði ekki leng- ur þýzkri reglusemi. Þessi agi og regla hafði spillt lífi hans öllu — lífi hans á vinnustaðnum og í heima- 6S

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.