Réttur


Réttur - 01.02.1942, Page 24

Réttur - 01.02.1942, Page 24
Hin beztu kvæbí hans, sem ópólitísk eru, s. s. Stjömu- fákur, hefSu aldrei oröið slík snildarverk, ef hann hefði ekki lært í hinum pólitíska skóla. En í þeim skóla hefur hann glatað allmiklu af sinni „bama- trú” og þau trúarskipti hafa ekki orðiö sársauka- laus. I ; „Og þó er eitthvaö sviplegt, þegar sannleikurinn kallar, og signing bamsins týnist 1 andvökunnar hyl- dýpi við nýrra tíma tákn”. og öðru veifi þráir hann þessar gömiu blekkingar og þá kemur fyrir „að gamall þanki vaknar, sem í leyndum hjartans lifir, mikið Ijómandi væri gaman, ef einhver vekti yfir mér og allt um kring í nótt”. Þessvegna tekst honum líka svo snilldarlega, þegar hann fer að yrkja fyrir börnin um þessi gömlu og góðu ævintýr. En það er líka þessi söknuður,. sem veldur stærstu missmíöunum í kvæöum hans. Hon- um nægir ekki að varpa frá sér gömlum blekking- um. Til að hyljist söknuðurinn verður hann að hefn- ast á þe'im og þá kemst hann næst því að verða ó- smekklegur. — Maríuvers, í grasgarðinum. — Þegar farið er að hreinsa burt illgresið er alltaf hætt við að nokkur hveitiöx fylgi með. Jóhannes hefur samt sloppið furðanlega frá því. Reynsla hans hefur síður en svo kennt honum að fyrirlíta menn. Það er ör- væntingarfullt verk að berjast fyrir fegurra lífi, þeim sem lífið er einskisvirði, og Jóhannesi er lífið mikils virði. í gegnum allt hefur hann eig'inlega varðveitt þá björtu lífstrú, sem var hans heimanfylgja. Gott dæmi þess er kvæðið „Blut und Erde”. 24

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.