Réttur


Réttur - 01.02.1942, Page 10

Réttur - 01.02.1942, Page 10
legs þjóðfélags, og engum sósíalista dettur 1 hug að bera brigður á það, að maður, sem lifir á arðráni, geti á allan hátt verið hinn sómasamlegasti borgari og geti meira að segja lifað í mjög fullkomnu sam- ræmi við grundvallarlögmál borgaralegs þjóðfélags, þar sem það hefur komizt hæst í siögæöi. Og án arðráns er það að heita má algerlega útilokað í borg- aralegu þjóðfélagi að komast í tölu hinna sómasam- legu borgara. Þannig er eðli þessara orða, sem saka- dómari metur á 200 krónur og telur til landráða, ef notuð eru í sömu grein og minnzt er á brezkan mann. Valdimar hleypir sínu máli til hæstaréttar, og rétt- vísin hleypir mínum 200 króna landráðum sömu leið. Þá hefst 2. þáttur gamanleiksins. III. Málafærsla fyrir hæstarétti er munnleg, svo að engar skriflegar heimildir liggja fyrir um sqkn máls- ins og vörn. Þar voru þó skipaöir sækjendur jafn- framt því að verjandi var hinn sami og áður, Pétur Magnússon hæstaréttarlögmaður. Sækjandi í mínu máli var Guðm^ndur nokkur I. Guðmundsson, sam- starfsmaður Stefáns hins nafnkunna Jóhanns og er Guðmundur þessi I. mér mest kunnur að því, hvern- ig Stefán Jóhann hefur beitt honum fyrir sig, þegar hann hefur unnið sín mestu hermdarverk á samtök- um verkalýösins. Þegar út voru gefin bráðabirgöalög um verkamannabústaði, þar sem byggingarfélög verkamanna voru svift þeim frumstæðustu félags- réttindum að fá sjálf að kjósa sína eigin stjórn, þá var þessi Guömundur I. látinn ganga fram fyrir skjöldu. Þetta voru fyrstu bráðabirgðalög á íslandi, sem gengu beint í berhögg við stjórnarskrá ríkisins og hafa engin önnur gert það á greinilegri og ótví- ræðari hátt. Þegar Sjúkrasamlag Reykjavíkur var 10

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.