Réttur


Réttur - 01.02.1942, Page 34

Réttur - 01.02.1942, Page 34
Hvað hefur þá breytzt frá því í fyrra? Stjómarflokkamir óttuðust kosningar í fyrravor og þeir hafa enn meiri ástæð'u til að óttast þær nú. En það hefur margt breytzt í heiminum á einu ári. Horfurnar eru nú þannig, aö valdhafarnir eru sannfæröir um aö hlutur þeirra verður því verri', því lengur sem kosningum er slegið á frest. Stjórn- arblööin hafa ekki farið dult meö það, aö Alþingi væri í raun og veru óstarfhæft, vegna hins stöð’uga ótta viö yfirvofandi kosningar. — Ef afturhaldsflokk- arnir halda meiri hlutanum, hafa þeir frið í 4 ár til hverskonar óhæfuverka aö kosningum loknum. Það kann aö vera, aö valdhafarnir líti svo á. að þessi 4 ár verði dýrmætur tími til undirbúnings undir úr- slitatök milli stéttanna um völdin x landinu. Ef til vill gera þeir ráð fyrir að svo kunni aö fara, aö ekki veröi kosið til Alþingis framar; aö vera megi að þeir dagar séu nú taldir, aö þingræðið dugi til þessVö tryggja völd auð'mannastéttarinnar á íslandi. Alþýöuflokkurinn flytur frumvarp um breyting á stjórnarskránni, sem fjallar um endurbætur á kjör- dæmaskipuninni og kosningum til Alþingis. Samkv. frumvarpinu skal hver kaupstaöur á landinu vera eitt kjördæmi, 8 þingmenn kosnir hlutbundinhi kosningu í Reykjavxk og hlutfallskosning í tvímenn- ingskjöi’dæmum. Þingmenn geta orðiö 54. Þegar þetta er rita,Ö er máliö til meöferöar í nefnd, sem Sósíalistaflokkurinn hefur fulltrúa i. ásamt hinum flokkunum. Er það í fyrsta skipti , sem Sósíalista- flokkurinn fær fulltrúa í þingnefnd. Frumvarp þetta hefur aö visu mikla galla, en er þó mikil endurbót frá því sem nú er. Allir flokkar að undanskildum Framsóknarflokknum, hafa lýst fylgi sínu við tilgang þess. Ætti málinu því að vera tryggður öruggur meiri hluti á þingi. Samt er erf- 34

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.