Réttur - 01.02.1942, Qupperneq 53
menningu, en varð' ekki að veruleika fyrr en á dög-
um hinna rómversku keisara.
Ríki þau, sem risu upp í Austurlöndum eftir
dauða Alexanders, komu á pólitísku jafnvægi í þess-
um hluta Miöjarðarhafslandanna. En nú tók jafn-
vægið að raskast í vesturhlutanum, er hin rómverska
bændaþjóð í Latium við Tíberfljót, hóf hina sögu-
frægu landvinninga sína. Róm braut imdir sig
ítalska skagann, síðan lagði hún verzlunarveldi
Karþagóborgar að velli, en, neyddist um leið til aö
verða sjálf verzlunarþjóð Miðjarðarhafsins. Hér skal
ekki rakin landvinningasaga Rómverja, þar rekur
hver landvinningurinn annan, eins og af náttúru-
nauðsyn, og í byrjun annarar aldar e. K. nær það
yfir 6 millj. ferkm. Þá voru öll Suöurlönd á einni
hendi. Þá var Miöjaröarhafið, mare nostrum, okkar
haf. Skipulagning hins rómverska ríkis mun jafnan
veröa talin til furöuverka sögunnar. Borgaralegar
nýlendur og hermannanýlendur Rómverja spretta
upp víðsvegar um hið víölenda ríki, ryöja nýtt land,
ræsa fram mýrar, veita vatni á eyöisanda og reka
villimennskuna á brott. í iðnaöi og akuiyrkju er
mikil verkaskipting milli héraöa ríkisins. Miöjaröar-
hafiö morar af skipum, sem flytja öll dýrindi heims-
ríkisins hafna á milli. Það eru engir tollmúrar, sem
hefta blóðrásina í atvinnukerfi þess. Pax romana
Rómafriöur ríkir meö öllum þjóðum ríkisins. Æ fleiri
uröu rómverskir borgarar og rómverkst réttarfar
ríkti í öllum héruöum. Tvær heimstungur voru tal-
aöar í þessu ríki, grískan var mál heimspekinganna
og menntamannanna, latínan var viðskiptamál allra
íbúa. ViÖ landamæri ríkisins voru hlaönir múrar og
víggiröingaf, vel búinn her stóö þar á veröi gegn er-
lendum innrásum. Hinir ágætustu vegir lágu um
rikiö þvert og endilangt; þrotlaus straumur her-
manna og stjórnarerindreka voru þar á ferö; en þar
3
53