Réttur


Réttur - 01.02.1942, Síða 57

Réttur - 01.02.1942, Síða 57
ið einn hótelgestinn, sem hefði verið skráður Elsass- búi í' gestabækurnar, en síðar hefði það vitnast, að hann hefði fiúið úr þýzkum fangabúðum fyrir nokkr- um árum. Annetta hamaðist á gluggarúðunum með- an hún lét dæluna ganga. Gesturinn hefði verið flutt- ur í Santefangelsið. Það mundi verða farið með hann til Þýzkalands og sennilega mundu þeir skjóta hann þar. En hvað um það, stríð er stríð, eða er ekki svo? En annað tók hana samt sárar: sonur gests- ins. Þjóðverjinn átti barn, tólf ára gamlan dreng, sem svaf í sama herbergi og hann. Snáðinn gekk í skóla og talaði frönsku eins og innfæddur maður. Það var eitthvað dularfullt við ætternið, eins og títt var um útlendinga. Drengui’inn frétti um handtöku föður síns þeg- ar hann kom heim úr skólanum. Hann mælti ekki orð og felldi ekki tár. En þegar leynilögreglumaður- inn skipaði honum að tína saman pjönkur sínar •og búast til brottferðar heim til Þýzkalands á fund ættingja sinna, öskraði drengurinn, aö hann mundi frekar kasta sér fyrir bifreið en snúa aftur til ætt- menna sinna. Lögi’eglumaðurinn hreytti út úr sér, áð hér væri ekki spurning um áð fai’a heim eða heim ekki — amxaðhvort færi hann til ættingja sinna eða í betrunarskóla. Drengurinn treysti Annettu. Þetta kvöld leitaöi hann fulitingis hennar. Snemma um morguninn fór hún með hann í lítið veitingahús, en eigandi þess var vinur hennar. Og nú sat drengurinn þar og beið. Hún hafði haldiö, aö ekki yrði mikill vandi aö skjóta yfir hann skjólshúsi. En alisstaðar gekk hún bónleið til búða. Fólk var svo hrætt. Kona veitingamannsins var hrædd viö þýzku leynilögregl- una og kunni illa návist drenghnokkans. Lovísa hlustaði þegjandi á sögu Annettu. Þegar henni hafði verið sagt allt af létta, sagði hún: „Eg 51

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.