Réttur


Réttur - 01.02.1942, Page 58

Réttur - 01.02.1942, Page 58
mundi vilja sjá svona strák“. Annetta sagði henni nafni'ð á veitingahúsinu og bætti við: ,.Þú mundir kannske ekki vera hrædd við að færa drengnum hrein föt?“ Lovísa fór á fund veitingamannsins og sýndi hon- um bréfmiða frá Annettu., Hann fór með hana irm í billíardherbergið, sem var venjulega læst á morgn- ana. Drengurinn sat þar og horfði út í húsagarðinn. Hann var á líku reki og elzti sonur hennar og eins klæddur og hann. Hann hafði grá augu. Ekkert var i fari hans, sem benti á erlendan uppruna. Frú Meunier sagði honum, að hún væri meö hrein föt handa honum. Hann þakkaði henni ekki fyrir, en allt í einu horfði hann rannsakandi í augu hennar. Lovisa hafði alltaf verið móðir eins og mæður ganga og gerast: hún hafði talið það sjálfsagt, að hún yrði að gera skyldu sína, að hún yrði að leita langt yfir skammt og vinna verksmiðjuvinnu heima hjá sér í viöbót'viö heimlisstörfin. En nú margfald- aðist vinnuþrek hennar frammi fyrir augnaráöi drengsins. Hún færöist í ásmegin. Hún sagði: „I kvöld kl. sjö á Cafe Biard hjá bæjarmarkaöinum“. Hún flýtti sér heimleiöis. Það tók langan tíma a'ö búa til boðlegan mat í eldhúsinu. Bóndi hennar var þegar kominn heim. Hann hafði verið í eitt ár í Maginotvirkinu. Fyrir þrem vikum var honum sleppt úr herþjónustu, í eina viku hafði hann stundað iðn sína. Hann vann hálfa daga, en eyddi tómstundum sínum á knæpu. Hann kom síðan heim, bálvondur við sjálfan sig fyrir að hafa eytt mestu af aurunum sínum á knæpunni. En nú var konu hans svo mikiö niöri fyrir, aö hún tók ekki eftir andliti hans og fór að segja hon- um söguna meðan hún spældi eggin. Þegar hún var komin að þeim stað í sögunni, er flóttadrengurinn > 58

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.