Réttur - 01.01.1948, Blaðsíða 17
BRYNJÓLFUR BJARNASON:
Innlend víðsjá
Innlenda víðsjáin { Rétti hefur nú fallið niður um all-
langt skeið. Að nokkru hefur það verið bætt um með grein-
um um stjórnmálaástandið á hverjum tíma. En nú vill rit-
stjórn Réttar að víðsjáin hefjist á ný. Þykir nú rétt, að reynt
sé að hafa hana stuttorðari en áður og ekki eins rúmfreka.
Upphaf hennar miðast í þetta sinn við áramótin 1947—1948.
Gagnsókn gegn kaupþvingunarlögunum
Síðan um áramót hefur ríkisstjórnin stritast við að halda
hinni skráðu vísitölu niðri með auknum fölsunum og aukn-
um niðurgreiðslum. Jónas Haralz hagfræðingur telur í
grein, sem hann hefur ritað í síðasta hefti „Vinnunnar", að
ef vísitalan væri rétt út reiknuð mundi hún nú vera 380—
390 stig, svo ef niðurgreiðslurnar kæmu ekki til mundi hún
nú vera allhátt á fimmta hundraðinu. Þegar sósíalistar báru
fram þá tillögu á alþingi að rétt húsaleiga væri tekin með í
vísitöluútreikninginn, í því skyni, að fá réttari hagskýrslur,
mælti Stefán Jóhann ákaft á móti með þeim rökum, að það
yrði vopn í hendi sósíalista.
Allan þennan tíma hefur staðið yfir stöðug og árangurs-
rík gagnsókn af hálfu verkalýðssamtakanna.
í Reykjavík hafa strætisvagnabílstjórar fengið mjög veru-
lega kauphækkun og auk þess hefur ,,Hreyfill“ samið um
kauphækkun, sem nemur allt að 250 kr. í grunnlaunum á
mánuði, fyrir bifreiðastjóra á langleiðum. Eftirvinnukaup
hækkar um 30 grunnaura á mánuði. Pípulagningamenn og
múrarar hafa hækkað grunnkaup sitt um 30 aura á klukku-
stund, en blikksmiðir og rakarar 12 krónur á viku. „Hlíf“
2