Réttur


Réttur - 01.01.1948, Blaðsíða 38

Réttur - 01.01.1948, Blaðsíða 38
38 RÉTTUR er eins og hans gamli borgaralegi Adam geti ekki með nokkru móti fyrirgefið sósíalismanum það að hafa bjargað þessum fótumtroðnu hugsjónum úr prísundinni og gefið þeim nýtt innihald og líf. VI Arnulf Överland leggur sjálfur á borðið höfuðástæðuna fyrir sinnaskiptum sínum í fyrirlestri, sem hann flutti í Stúdentafélaginu í Osló. Morgunblaðið hefur birt megin- atriði hans á íslenzku og eru tilvitnanir mínar hér á eftir teknar úr þeirri þýðingu. Þar stendur meðal annars þessi klausa: „Það er ekki skemmtilegt að vinna. Rússum finnst það ekki heldur. Þeim finnst líka gaman að liggja við ofninn og láta fara vel um sig, og syngja og dansa og drekka vodka. Þeim er það ekkert lijartfólgið mál að koma fimni ára áætl- unum í framkvæmd, komast fram úr áætlununum og vinna það verk á fjórum árum, sem ætlað var til fimm ára. Þess vegna gera þeir það ekki. Það getur verið, að það sé auðveld- ara að leggja út í frelsisstríð með öllum þeim hörmungum og fórnum en það er að ganga ár eftir ár að þreytandi endur- reisnarstarfi. Það kann að vera, að stjórnarstörf Lenins hafi verið auðveldari heldur en fyrir Stalin.“ Síðan drepur hann nokkuð á erfiðleikana við uppbygg- ingu Ráðstjórnarríkjanna, einkum þó samyrkjubúskapinn í Úkraínu. „Það er ekki vitað, hve margir voru skotnir," segir hann, „hve margir sveltir í hel eða fluttir úr landi.“ Enn biðu þó verkamenn heimsins þolinmóðir eftir því að sjá, hver endir yrði á þessum ósköpum. Síðan segir orðrétt: „Þar til sú spurning vaknaði: Hvað á maður að bíða lengi? Hvenær verður mælirinn fullur? Skiptar skoðanir eru á því enn í dag. Nú hefur aftur verið styrjöld. Nú þarf kannski að bíða aftur mannsaldur til þess að hœgt sé að mynda sér skoðun á sósíalismanum i framkvœmd. Við getum ekki beðið svo lengi. Sovétsambandið hefur mikil áhrif á stjórnmál
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.