Réttur - 01.01.1948, Page 42
42
RÉTTUR
staðreyndir hefur „sósíalistinn“ Arnulf Överland ekkert að
setja. Hann virðist vera farinn að trúa því, að auðkóngarnir
í Wall Street og negramorðingjarnir í Ku Klux Klan séu
orðnir hinir sönnu brautryðjendur frelsis og lýðræðis í
heiminum.
VII
Ég sagði hér að framan, að öld sú, sem vér lifum á, væri
mikil úrslitatíð. Það veit líka Arnulf Överland manna bezt.
Sú staðreynd rétti lionum skeinisblöð til að skrifa á og
hengdi lýs á brjóst hans í staðinn fyrir orður. En átökin hafa
reynst honum ofurefli. Sú barátta, sem hann áður tók þátt í
og hefur nú frelsað milljónir alþýðufólks úr niðurlæging-
unni, er orðin að hatursfullu, glæpsamlegu ofbeldi í augum
hans. Hún glataði sínu siðferðilega gildi um leið og hún
samsvaraði ekki einstaklingseðlinu í einu norsku skáldi.
En baráttan heldur áfram — og harðari nú en nokkru sinni
fyrr. Þegar breyta skal hugsjón í veruleika, duga engin vett-
lingatök. Það veit félagi Stalin, ráðstjórnin og rússneska
þjóðin öll, það vita allir sannir sósíalistar um gervallan
heim. Enn dynja ógnirnar yfir hinn stríðandi lýð. Afhöggvin
höfuð grísku skæruliðanna bera hinu „vestræna lýðræði“
fullkomið vitni. Enn á auðvaldið nóg af skeinisblöðum
handa snillingum til að skrifa á.
Hver heilbrigður alþýðumaður þráir frið. Hver sannur
sósíalisti þráir frið. En lögmál lífsins verður ekki umflúið.
Það krefst baráttu, unz sköpuð hafa verið skilyrðin fyrir
friði. Var það sósíalisminn, sem hratt af stað tveim heim-
styrjöldum? Eru stríðsæsingamenn Ameríku kannski sósíal-
istar? Mundi það skapa frið á jörðu, ef sósialsiminn legði
niður baráttu sina gegn orsölt slyrjalda?
Það er enginn efi á því, að stjórnin í Rússlandi er sterk.
Stalín er vissulega valdamikill maður. En hann er ekki orð-
inn það fyrir 80 þúsundir falsaðra atkvæða, heldur rótgróið
traust 200 milljóna lifandi fólks, sem hann hefur leitt gegn-