Réttur - 01.01.1948, Page 48
A. LEONIDOFF:
Helgreipar einokunarauðvaldsins
(Hlutverk ensk-þýzk-ameríska Schröderbankans)
I. Bakhiarlar alþjóSlega aiturhaldsins
Nú standa yfir örlagaríkir tímar. Hið alþjóðlega afturhald
er að hefja sókn á móti lýðræðinu, friðarvilja fólksins og
félagslegum framfaraöflum. Þetta afturhald er innblásið og
stjórnað af leyndum auðvaldsöflum, sem gædd eru óhemju
krafti og auk þess mjög vel skipulögð. Það eru þessi öfl, sem
starfa bak við tjöldin og dreymir um ótakmörkuð yfirráð
yfir auðlindum jarðarinnar og framleiðslugetu fólksins til
arðráns heilla þjóða. Þau dreymir um útrýmingu allra á-
hrifa, sem andstæð eru heimsauðvaldinu. Og það eru þessi
öfl, sem stjórna gerðum stjórnmálamanna og leiðtoga hinna
borgaralegu flokka í þágu einokunarauðmagnsins. Það eru
þessi leyndu auðvaldsöfl, sem stjórna því baráttuæði, sem
fyrir stuttu var sett í gang og stefnir að því eina marki að
skapa bæði hernaðarlega og pólitíska blökk á móti Sovét-
ríkjunum. Enn fremur beita þau sér fyrir myndun banda-
ríkja Evrópu, sem einnig er ætlað að beina geiri sínum í
sömu átt. Og allt er þetta sett í gang vegna þess, að Sovét-
ríkin eru sterkasti og áhrifamesti andstæðingur hins alþjóð-
lega afturhalds.
Fjöldi fólks í ýmsum löndum reynir að neita þessum stað-
reyndum. Það fullyrðir að leynilegar alþjóðlegar einokunar-
klíkur, séu aðeins orðagjálfur, lieilaspuni og skáldskapur.
Slíkir hlutir séu alls ekki til í veruleikanum. í stuttu máli:
Þetta sé aðeins ein af hinum mörgu og röngu ímyndunum
kommúnista.