Réttur - 01.01.1948, Page 56
56
RÉTTUR
Hinar opinberu höfuðstöðvar hans eru þó í Englandi. En
það er fyrst í Bandaríkjum Norður-Ameríku — miðstöð
heimsauðmagnsins, — sem hann er orðinn sá áhrifavaldur,
sem hann er nú eftir aðra heimsstyrjöldina. Þeir þræðir, sem
lagðir voru vestur yfir Atlantshafið, hafa tryggt honum bæði
fjárhagsleg og pólitísk tæki til að koma í framkvæmd víð-
feðmum áætlunum. Án þeirra sambanda mundi bankinn
nú, eftir ósigur nazismans hafa glatað áhrifum sínum, bæði
á fjármálasviðinu og í alþjóðastjórnmálum. En í dag er
hann með og leikur djarfan leik.
Eða nánar útskýrt. Schröderbankinn er sjálfur orðinn að
taug, sem aðrir kippa í, í sömu stefnu, að sama marki. Hin
ensk-þýzka fjármálasamsteypa er orðin „litli bróðir“ í ennþá
voldugra og skipulagðara einokunarveldi, sem nú þegar
framkvæmir sínar áætlanir á heimsmælikvarða.
Það, sem hér um ræðir, er yngsta deildin — New York
bankinn — (J. Henry Schröder, Banking Corporation) og
þeir aðilar, er að baki honum standa.
IV. Schröderbankinn tengist auðmagni Ameríku
Fáum árum eftir fyrri heimsstyrjöldina hófu stjórnendur
bankans í London nýja útvíkkunarstarfsemi, eftir að liafa
prófað kraftahlutföllin á fjármálasviði heimsins. Eins og ætt-
feðurnir höfðu áður flutt sig frá Hamborg til London, fluttu
þeir nú sjálfir frá London til New York. Þar var opnað nýtt
útibú. Þetta skeði einmitt á þeim tíma, þegar helzta við-
fangsefnið var að efla þýzka þungaiðnaðinn með ensku og
amerísku fé.
Fyrirtækið í New York efldist með ineiri hraða en dæmi
eru til áður, jafnvel um forustufyrirtæki slíkrar tegundar.
Ástæðan var sú staðreynd, að bak við tjöldin hafði verið
myndað samband við ákveðin amerísk fjármálafyrirtæki.
Þar var að verki ein þekktasta lögfræðingaskrifstofa í New