Réttur - 01.01.1948, Síða 62
62
RÉTTUR
snertir, stendur hún jafnvel framar en Morgan og du Pont-
samsteypumar.
Rockefeller ræður yfir hinum alþekkta olíuhring Stand-
ard Oil, er teygir arma sína um víða veröld, og mörgum
öðrum stórum einokunarhringum. Enn fremur ræður
Rockefeller yfir stærsta banka Bandaríkjanna, sem á hreina
eign 4,7 milljarða dollara.
Þessi staðreynd er nægileg skýring fyrir þá, sem nokkuð
þekkja kerfi einokunarfjármagnsins ameríska. Sérstaklega
gefur hún hugmynd um það óhemju auðmagn er stendur
bak við lögfræðingafélag Dulles-bræðranna. Hún skýrir
einnig í aðalatriðum hver er ástæðan til þeirra miklu áhrifa,
sem þeir hafa innan Republikanaflokksins.
Hinir ráðandi milljarðaeigendur í Bandaríkjunum styðja
og leggja fé í báða flokkana, Republikana og Demokrata.
Þetta er alviðurkennt. En hagsmunir auðhringanna rekast
þó á í vissum tilfellum, sérstaklega þegar skipta á gróðanum.
Þannig kemur stundum til opinberra árekstra og baráttu
um einokunaraðstöðu innan vissra iðngreina, eða þegar fá
verður fram vissar pólitískar breytingar til að þjóna innri
hagsmunum ákveðinna aðila. Undir slíkum kringumstæðum
togar hver af auðhringum peningaaðalsins í sinn skækil.
Svo sem kunnugt er fylgdi hinn látni forseti Roosevelt
fram stjórnmálastefnu sem oft leiddi til árekstra við hags-
muni peningaaðalsins. Það er oft fullyrt í Bandaríkjunum,
að ýmsir af forustumönnum Demokrataflokksins, t. d.
Thomas Lamont, Myron Taylor og Edward Stettíníus séu
beinir erindrekar auðmannaættarinnar Morgan. Morgan er
sem kunnugt er gamall keppinautur Rockefellers, þótt báðir
hringarnir vinni saman á mörgum sviðum. T. d. tók Morg-
anhringurinn, þegar í byrjun stríðsins í Evrópu mjög á-
kveðna afstöðu á móti einangrunarsinnum innan Republik-
anaflokksins, því Morgan hafði hugsmuna að gæta vegna
fjármála og viðskiptasamninga við Englendinga. Hins vegar