Réttur - 01.01.1948, Síða 70
70
RÉTTUR
(„Treuhánderverwaltung fiir die gesamte Stahlindustri der
britischen Zone“).
Brúin milli Essen og London er komin í lag á ný. Því má
heldur ekki gleyma, að hinn þýzki armur Schröderfjölskyld-
unnar á enn í dag sína hluti í enska og bandaríska Schröder-
bankanum. Þessi armur vinnur gegnum Veritasfélagið í
Hamborg og London ,sem er, þó leynt fari, meðeigandi
bankans í City. Og frá hinum þýzku meðlimum Schröder-
ættarinnar liggja þræðirnir nú í dag til allra greina innan
þýzka peningaaðalsins, sem ekki gafst upp árið 1945 þrátt
fyrir það þótt öll bygging hans rambaði þá á helvítis barmi.
Nú hefur hann endurnýjað bandalagið við hina gömlu
vini sína.
Það var heldur engin tilviljun að fríherra Kurt von
Schröder, víxlari og lánardrottinn Hitlers og Himmlers, var
gerður að fulltrúa Þýzkalands í stjórn hins alkunna alþjóða-
greiðslubanka í Basel, sem allir áhrifamiklir bankar í auð-
valdsheiminum hafa viðskipti við. Þessi banki hefur leikið
alþekkt hlutverk í baktjaldamakki Munchenmannanna.
Einn af stjórnendum þessa banka var Montagu Norman,
hinn gráhærði, valdamikli ráðgjafi Chamberlains í peninga-
málum, sem var aðalbankastjóri Englandsbanka.
Formaður alþjóðagreiðslubankans var fyrir stuttu síðan
Ameríkumaðurinn McKittrich, sem á stríðsárunum hafði
dvalið í Sviss og tekið þátt í leynisamningunum við Þjóð-
verja ásamt Allen Dulles og Lada-Mocarski, — þessi McKit-
trich, sem aflað hefur sér afar mikillar þekkingar og reynslu
í þeirri refskák, sem leikin liefur verið að tjaldabaki í þágu
Þýzkalands. Og nú fyrir nokkrum mánuðuin síðan var hann
gerður að varaforseta Chase National bankans í New York,
sem er aðalstoð Rockefeller auðkónganna og nánasti banda-
maður Schröderauðjöfranna.
Þá skal enn fremur bent á það, að Gerhardt Westrick,
hinn gamli umboðsmaður þessarar klíku og fulltrúi mál-
færslufélags Dulles bræðranna í Þýzkalandi er nú kominn í