Réttur


Réttur - 01.08.1961, Qupperneq 16

Réttur - 01.08.1961, Qupperneq 16
240 R É T T U R sj ávarútvegi. ÞaS þarf því ekki að óttast atvinnuleysi, og það skiptir Iangmestu máli. Burtséð frá því, hversu sennilegar þessar líkur eru, skulum við í þessu sambandi athuga 48. gr. Rómarsáttmálans: — Frjáls tilfiutningur verkamanna innan Bandalagsins skal tryggður. — Það er ekki aðeins að íslenzkt atvinnulíf geti útlenzkast með er- lendum eigendum atvinnutækjanna, heldur líka með erlendu verka- fólki, sem vinnur við þau. í sumum héruðum Efnahagsbandalagsins, sérlega á Suður-Ítalíu, hefur atvinnuleysi verið landlægt áratugum saman. Eftir stofnun Bandalagsins hafa verkamenn streymt þaðan til þróaðri landa þess. Sumir áætla, að nú vinni um hálf milljón ítala í öðrum löndum Bandalagsins, og verða þó ekki allar hömlur á „frjálsum tilflutningi verkamanna“ afnumdar fyrr en við lok millibilsástandsins. A Suður- Ítalíu og Portúgal, sem sennilega gerist einnig aðili að Bandalag- inu, hafa þjóðartekjur á íbúa verið undir 300.00 bandarískir dollar- ar á ári.27) Á íslandi voru þjóðartekjurnar 1957 3.800 milljónir.28) Það þýðir: 600.00 dollarar á mann, skv. gengi eftir 22. febr. 1960 (ca.) (tæpl. 1.400.00 dollarar á mann eftir þáverandi gengi). Það eru því mjög sterkar líkur til þess að fólk úr þessum héruð- um myndi koma hingað í atvinnuleit, ekki sízt þegar þess er gætt, að 123. gr. Rómarsáttmálans kveður á um stofnun Félagsmálasjóðs Ev- rópu, sem m. a. skal notast til að „auka landfræðilegan og faglegan hreyfanleik“ verkamanna, eins og þar er til máls tekið, þ. e. myndi borga fargjaldið fyrir þetta fólk hingað. Sömuleiðis er öruggt, að hinir erlendu atvinnurekendur munu flytja með sér erlenda sérfræðinga í hinar nýju verksmiðjur sínar hér. Dvöl þessara útlendinga á íslandi hlýtur að varpa fram ýmsum spurningum. verða þeir ekki allir íslenzkir ríkisborgarar eftir 5 ára dvöl sína hér á landi? Yrðu þrátt fyrir það nokkrar líkur til þess að þeir aðlöguðust íslenzkri menningu og lærðu íslenzku? Líkurnar til þess minnka auðvitað í réttu hlutfalli við fjölda útlendinganna. — Verða þessir útlendingar félagar í íslenzkum verkalýðsfélögum? Ef já, er þá ekki hætta á að þeir nái þar meirihluta? Ef nei, stofna þeir þá ekki eigin verkalýðsfélög? í Rómarsáttmálanum eru ákvæði (117. og 118. gr.), sem kveða á um, að samræma skuli lífskjör, tryggingamál, iðnfræðslu og ör-

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.