Réttur - 01.08.1961, Síða 17
R É T T U R
241
yggismál á vinnustööum í aðildarríkjunum, og þó þannig, að hvergi
verði um afturför að ræða. Er líklegt að atvinnurekandi erlendur
hér á landi myndi flýta sér að veita fyrrverandi atvinnuleysingjum
frá Sikiley sömu kjör í öllum atriðum og íslenzkum verkamönnum
hefur tekizt að knýja fram? Ekki er ég á þeirri skoðun, eða hver
getur sótt hann til saka fyrir að gera það ekki? Miklu fremur er ég
á þeirri skoðun, að hann fái þá flutta hingað til að undirbjóða ís-
lenzka verkamenn.
Einnig eru í 118. gr. ákvæði um að samræma „upp á við“ löggjöf
um verkalýðsfélög og kjarasamninga. Borgarastéttinni þykir ástand-
ið í þessum málum einna „lægst“ hér á landi, þ. e. verkfallsrétturinn
meiri en annars staðar í Vestur-Evrópu. Það er því enginn vafi, að
„upp á við“ verður skilið sama skilningi og Sj álfstæðisflokkurinn
leggur í hugtakið og fram kom bæði í ályktunum 16. þings SUS á
Akureyri 8.—10. sept. s.l. og landsfundar Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík 19.—22. okt.29) Sj álfstæðisflokkurinn mun ætla sér að fá
Alþingi til að viðurkenna þennan skilning í vetur, án efa til að undir-
búa þessa samræmingu „upp á við“.
Það er því engin ástæða til bjartsýni fyrir íslenzka verkamenn,
verði af aðild okkar að Efnahagsbandalaginu. Það er full ástæða
fyrir þá að gæta að sér áður en svo verður komið, að erlendir verka-
menn ákveða það, hve mikil laun þeir fá, ef nokkur, hjá erlendum
verksmiðjueigendum á íslandi.
3) Ákvörðun um afnám sjálfsákvörðunarréttar
aðildarríkjanna.
Rómarsáttmálinn kveður á um, að upp skuli komið 4 stofnunum,
sem grípa inn í löggjafar-, framkvæmda- og dómsvald aðildarríkj-
anna í veigamiklum málum. Slíkar „yfirþjóðlegar“ stofnanir voru
óþekktar í ríkjabandalögum fyrr en í kola- og stálsamsteypunni,
sem nær yfir sömu lönd og Efnahagsbandalagið og er fyrirrennari
þess30) og nú í Efnahagsbandalaginu. Þessar stofnanir tóku til starfa
við gildistöku sáttmálans og eru:
a) Þing bandalagsins, sem kemur saman í Strassbourg. Það er sam-
eiginlegt fyrir Efnahagsbandalagið, Kola- og stálsamsteypuna