Réttur


Réttur - 01.08.1961, Blaðsíða 18

Réttur - 01.08.1961, Blaðsíða 18
242 R E T T U R og Euraton (kjarnorkusamsteypu sexveldanna). Þingmenn eru kosnir af þjóðþingum aðildarríkjanna: 36 frá hverju stóru landanna þriggja, 14 frá Belgíu og Hollandi hvoru, 6 frá Luxemborg, Alls 142. Síðar er gert ráð fyrir að kjósa til þingsins með beinum kosn- ingum í öllum aðildarríkjunum. b) Ráðið; í því situr einn ráðherra frá hverju aðildarríki, og skipt- ast þeir á í forsætinu. Það hefur ekki fastan samkomustað. c) Framkvœmdastjórnin, sem situr í Briissel. í henni eru 9 menn, tilnefndir af ríkisstjórnum aðildarríkjanna í samvinnu. Þeir eru tilnefndir til 4 ára, og tilnefna má sama manninn eins oft og vill. Ekki mega vera fleiri en 2 menn frá sama ríki í framkvæmda- stjórninni. Forseti hennar er próf. Hallstein frá V-Þýzkalandi. d) Dómstóll Efnahagsbandalagsins, sem situr í Luxemburg. í hon- um sitja 7 dómarar og 2 saksóknarar, tilnefndir af samvinnandi aðildarríkjastjórnum til 6 ára, en tilnefna má þá eins oft og vill. Váldsvið stofnananna: Þingið hefur „íhugunar- og eftirlitsrétt“ segir í 137. kr. Vald þess gagnvart ráði og framkvæmdastjórn er tekið fram í 140 gr.: „Ráðið skal láta álit sitt í ljós á þinginu við þær kringumstæður, sem það ákveður sjálft í fundasköpum sínum.“ „Framkvæmdastjórnin skal svara, munnlega eða skriflega, fyrir- spurnum, sem þingið eða þingmenn bera fram við hana.“ Einnig í 144. gr.: með % hlutum greiddra atkvæða, sé það meiri- hluti þingmanna, getur þingið samþykkt vantraust á framkvæmda- stjórnina, sem þá skal fara frá. En að sjálfsögðu hefur þingið engin áhrif á það, hvernig hin nýja framkvæmastjórn verður samsett. Það mætti hverjum manni vera augljóst, að þetta þing er í raun- inni grínsamkunda. Ráðin og íramkvæmdastjórnin eru ekki á nokkurn hátt bundin af tillögum þess og ályktunum (nema í þessu eina tilfelli, sem segir í 144. gr., en það þýðir þó ekkert annað en vald til að tefja mál). Til ákvarðana framkvæmdastjórnarinnar nægir meirihluti at- kvæða. Til ákvarðana ráðsins þarf ýmist samhljóða atkvæði eða meirihluti.81) Sáttmálinn gerir ráð fyrir að ákvæðin um samhljóða

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.