Réttur - 01.08.1961, Page 24
248
R É T T U K
ing.41) Þessi lækkun fiskandvirðisins er svo liverfandi lítill, að
hrein firra er að afsala efnahagslegu sjálfstæði landsins fyrir hana.
5) Þeir, sem er annara um hundraðshlutann eina en sjálfstæðið
og landhelgina, ættu að athuga, að hætta er á því, að við töpum þess-
um markaði á miklu hættulegri hátt við að ganga í Efnahagsbanda-
lagið en að standa utan við það. Ekki er nokkur vafi, eins og áður
er getið, að eftir inngöngu okkar risu hér upp útgerðarfyrirtæki og
fiskvinnslustöðvar. Ekki er ósennilegt að þessi fyrirtæki megi reka
hagkvæmar en þau íslenzku. Bæði er, að hinir erlendu aðilar hafa
á mörgum sviðum fiskiðnaðar meiri reynslu en við, sérlega þó um
niðursuðu og niðurlagningu, og svo er hitt, að þeir munu verða
fjársterkari og því eiga auðveldar en íslenzkir með uppsetningu
allra nýtízku véla og verksmiðja. I þessu sambandi er rétt að benda
á, að búizt er við, að samþjöppun í v-þýzkum sjávarútvegi muni
aukast á næstunni, þ. e. að fyrirtæki þar verða stærri og auðugri.42)
Þessir aðilar veiða fisk á Islandsmiðum, jafnvel í íslenzkri land-
helgi, með erlendum skipum og erlendri áhöfn, fiskinum er landað
hér í erlend fyrirtæki, sem vinna úr honum, jafnvel án þess að nokk-
ur íslendingur komi þar nálægt, síðan er honum skipað út í erlend
skip ög fluttur til V-Evrópu. Þar er hann seldur í samkeppni við
þann fisk, sem við íslendingar veiðum sjálfir og vinnum úr. Hvað
verður, ef hann þolir lægra verð en okkar fiskur?
Það verður ekki í okkar valdi að koma í veg fyrir það, að það
vopn, sem íslenzka borgarastéttin ætlar Efnahagsbandalaginu að
verða í markaðsmálum okkar, snúist í hendi okkar.
B) Nýju framleiðslugreinarnar og erlenda
fjármagnið.
Fullyrt hefur verið, að við þurfum á erlendri tækniaðstoð að
halda og reiknað hefur verið út, að við þurfum á erlendu fjármagni
að halda í svo og svo miklum mæli til að koma hér upp nýjum fram-
leiðslugreinum og standa straum af nauðsynlegri framleiðsluaukn-
ingu. Það er alveg rétt, við þurfum hvort tveggja til þess að svo
mætti verða. En til þess er ekki nauðsynlegt að útlendingur eignist
eitt einasta fyrirtæki á landi hér. Hvort tveggja getum við fengið,
tækniaðstoðina og féð, í formi einkalána og ríkislána, í austri og