Réttur - 01.01.1963, Side 20
20
R E T T U R
eins og nú. Sé þetta lögmál framkvæmt með harkalegum aðferöum
auðvalds, jafngildir það sívaxandi gjaldþrotum hinna smáu. Sé fólki
hins vegar gert Ijóst að þessi þróun þarf að eiga sér stað og við-
komandi hvattir til samstarfs, getur slík þróun orðið sársaukalaus,
ef hún gerist í þjóðfélagi, sem tryggir örugga vinnu og batnandi
lífskjör þeirra, sem að framleiðslunni starfa.
6. Það þarf að gera stórkostlegt félagslegt átak í húsnæðismálun-
um, hverfa burt frá allri braskstefnu í þeim málum, — hækka vexti
og lengja lán, svo að sá liður úr kaupgjaldi launþegans, sem fer til
húsaleigu eða afborgana af eigin húsnæði lækki niður í það að vera
ekki hærra en fimmti hluti dagkaups. Slíkt átak krefst gerbyltingar
þeirrar löggjafar, sem nú gildir og gerbreyttrar fjármálastefnu í
þeim efnum, því taka yrði upp aftur þá stefnu, er einkenndi löggjöf-
ina um verkamannabústaði 1929.
7. Það þarf að skapa nokkurn veginn stöðugt verðlag, standa vörð
urn gengi krónunnar, en hætta þeim ljóta leik að gera gengið og
verðlagið að leiksoppi og vopni í hendi ósvífinna fjármálabraskara.
8. Það þarf að bæta og efla alþýðutryggingarnar og kemur það
launþegum eðlilega að notum, ef almennt er gert.
9. Til þess að nokkur von sé til að slíkar ráðstafanir séu gerðar,
sem hér eru greindar, Jrarf örugga heildarstjórn á Jijóðarbúskapn-
um og sérstaklega fjárfestingunni. Sú heildarstjórn Jiyrfti um leið
að vera Jrað vald, er réði Seðlabankanum og þar með bankapólitík-
inni í samræmi við heildarstefnu ríkisstjórnar, er setti sér það mark
að framkvæma hugsjónina um 8 tíma vinnudag með núverandi 10
tíma kaupi og undirbyggja Jjá hugsjón Jieim efnahagslegu ráðstöf-
unum, er dygðu , svo sem nú hefur að nokkru verið gerð grein fyrir.
Sumar af þeim ráðstöfunum, sem hér hafa verið taldar, eru um
leið sjálfstæð, þýðingarmikil úrræði lil að leysa vandkvæði efna-
hagslifsins, en af Jreim lausnum leiðir um leið að miklu auðveldara
verður fyrir atvinnulífið að bera miklar kauphækkanir án verð-
bólgu eða verðlagshækkana.
Pólitísk forsenda þessarar styltingar vinnudagsins í 8 stundir
með 10 tíma kaupi er sem fyrr segir stórsigur Sósíalistaflokksins og
Jieirrar samfylkingar, er hann tekur Jjátt í.
Til þess að vinna Jrann stórsigur þarf voldugt átak verkalýðsins
á sjó og landi og allra Jieirra aðilja, sem eiga sameiginlegra hags-
muna að gæta með honum: menntamanna, starfsmanna, bænda og